Morgunblaðið - 03.05.2014, Síða 52
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hrottalegt morð á 8 ára stúlku
2. Er þotan í Bengalflóa?
3. 17 lygar um kynlíf …
4. Bossi Pippu var „óekta“
Í tengslum við fyrstu einkasýningu
Ragnars Kjartanssonar í safni í New
York-borg, sem opnuð verður í New
Museum í næstu viku, verða foreldrar
listamannsins, Guðrún Ásmunds-
dóttir leikkona og Kjartan Ragn-
arsson leikstjóri, sérstakir gestir á
sýningu á kvikmyndinni Morðsögu í
safninu á föstudaginn kemur. Þau
léku bæði í kvikmyndinni sem var
frumsýnd árið 1977.
Sýning Ragnars nefnist „Me, My
Mother, My Father, and I“. Meðal
verkanna sem sýnd verða eru mynd-
bandsverk sem Ragnar byrjaði að
taka fyrir fjórtán árum og sýna hvar
Guðrún spýtir ítrekað á andlit hans.
Þá hefur Kjartan Sveinsson tónskáld
samið tónverk upp úr samtali persón-
anna sem Guðrún og Kjartan leika í
Morðsögu, fyrir tíu tónlistarmenn
sem munu flytja það alla daga í safn-
inu, meðan á sýningunni stendur, til
29. júní.
Guðrún og Kjartan
við sýningu Morðsögu
Áslaug Thorlacius, myndlistarkona,
kennari og þýðandi, hefur verið ráðin
skólastjóri Myndlistaskólans í
Reykjavík. Áslaug hefur haldið fjölda
sýninga, verið framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra myndlist-
armanna og kennt í grunnskóla, há-
skóla og Myndlista-
skólanum. Hún
tekur við af Ingi-
björgu Jó-
hannsdóttur
sem verður
skólastjóri
Landakotsskóla.
Áslaug Thorlacius
ráðin skólastjóri
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
Á sunnudag Suðaustan 5-13 m/s og víða rigning, en hægari og úrkomulítið
með kvöldinu. Hiti 5 til 12 stig, mildast vestanlands.
Á mánudag Austan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast og lítils háttar væta með suður-
ströndinni en annars þurrt. Fer að rigna sunnan- og austantil um kvöldið. Hiti 8 til 13 stig.
Það hefur stundum virst hreinlega
fastur liður á þessum tíma árs, eins og
þessi furðulegu fimmtudagsfrí og
dimitteringar stúdenta, að KR-ingum
sé spáð Íslandsmeistaratitlinum í
knattspyrnu karla. Þannig var það alla
vega í ár enda rík ástæða til. KR-ingar
eru ríkjandi meistarar, eftir að hafa í
fyrra náð mesta stigafjölda sem náðst
hefur á einu Íslandsmóti. »4
Rík ástæða til að spá
KR Íslandsmeistaratitli
„Við ætlum að halda áfram
á þeirri braut sem hefur
verið mörkuð. Það er nægur
efniviður hjá Safamýrarlið-
inu. Okkar markmið er að
byggja upp sterkt lið með
heimaöldum leikmönnum
og leggja talsvert í það frek-
ar en að kaupa til okkar
leikmenn,“ segir Guðlaugur
Arnarsson sem framlengdi í
gær samning sinn við Fram
til 2017. »1
Höldum áfram
á sömu braut
Körfuboltamaðurinn efnilegi Martin
Hermannsson kvaddi KR-inga með Ís-
landsmeistaratitli í fyrrakvöld og var
valinn besti leikmaðurinn í
úrslitakeppninni eftir sig-
ur Vesturbæinga á Grinda-
vík í fjórða leik liðanna.
„Tilfinningin er náttúr-
lega bara einstök og
maður má ekki
gleyma sér, heldur
muna að
njóta sín og
fagna
þessu í
heilt ár,“
segir Martin.
»2-3
Tilfinningin er nátt-
úrlega bara einstök
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Stuðningsmenn íslenska Eurovision-
hópsins ættu ekki að fara framhjá
neinum í Danmörku næstu daga.
Þeir sýna stuðning sinn í verki og
klæðast margir Pollapönksgöllum í
ýmsum áberandi litum. Það var
FÁSES – Félag áhugafólks um
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva á Íslandi sem stóð fyrir því að
láta sauma Pollapönksgalla á full-
orðna hjá Henson.
Um þrjátíu manns fengu sér galla
en um sextíu keyptu sér aðdáenda-
pakka á keppnina í gegnum FÁSES,
inni í honum eru miðar á öll keppn-
iskvöldin og dómararennslin. Þá
keyptu nokkrir almennan miða en
um áttatíu manns eru í fésbókarhópi
fólks sem er að fara út til Danmerk-
ur á keppnina. Eyrún Valsdóttir,
formaður FÁSES, giskar þó á að
rúmlega hundrað Íslendingar verði
á keppninni enda alltaf ákveðinn
fjöldi sem fer á eigin vegum.
Zumba og upphitun
Hljómsveitin Pollapönk, sem
keppir fyrir Íslands hönd í Eurovisi-
on, flytur lag sitt „No Prejudice“
næsta þriðjudagskvöld á fyrri
keppnisdegi undankeppninnar. Ef
þeir komast áfram keppa þeir til úr-
slita laugardaginn 10. maí.
FÁSES stendur fyrir ýmsum við-
burðum í Kaupmannahöfn í vikunni,
m.a. verður Flosi Jón Ófeigsson,
sem er í stjórn FÁSES, með Euro-
vision-zumba í hádeginu á þriðjudag
og svo verður upphitun fyrir
keppnina um kvöldið á aðal-
aðdáendaskemmtistaðnum í borg-
inni. „Við erum að skipuleggja að
allir komi saman í Köben og
skemmti sér. Íslendingarnir
eiga heldur ekki eftir að fara
fram hjá neinum í þessum
göllum,“ segir Eyrún, hún
fer reyndar ekki út í þetta
skiptið en fékk sér þó gulan
galla til að klæðast heima í sófa á
keppniskvöldinu. En hver var vin-
sælasti liturinn á göllunum? „Það
voru blár og rauður, sem er ekki
skrítið því aðalpollarnir klæðast
þeim litum,“ svarar Eyrún.
Framlagi Íslands til Eurovision í
ár er ekki spáð góðu gengi en aðdá-
endurnir eru bjartsýnir. Eyrún seg-
ir lagið pottþétt munu komast áfram
og Flosi bætir við að mörg róleg lög
séu í sama riðli, sem gæti verið Ís-
landi í hag. „Ég held að þeir eigi eftir
að toppa á réttum tíma,“ segir Flosi.
Litskrúðugir aðdáendur
Íslendingar
verða áberandi á
Eurovision
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áfram Ísland F.v. Alma Tryggvadóttir, Eyrún Valsdóttir og Flosi Ófeigsson, í stjórn FÁSES, og Alma Sigurðardóttir,
Jóhannes Flosi Rúnar Ingason og Guðrún Eva Jóhannesdóttir sem eru öll að fara út til Danmerkur á keppnina.
FÁSES var stofnað haustið 2011 af sex Eurovision-áhugamönnum.
Skráðir félagsmenn eru núna 450 en Eyrún segir um 250 af þeim
vera virka. „FÁSES er hluti af OGAE sem eru stór al-
þjóðleg regnhlífarsamtök yfir aðdáendaklúbba. Við
vorum tekin formlega inn í hittifyrra og erum einn
hraðast stækkandi klúbburinn. Okkur fannst vanta
vettvang fyrir alla þá sem hafa áhuga á keppninni
hér heima, við stöndum t.d. fyrir viðburðum og
höldum úti vefsíðu með íslensku efni,“ segir
Eyrún. Í félaginu eru líka útlendingar sem
halda svo með Íslandi í keppninni að þeir
vilja frekar vera í FÁSES en klúbbi heima-
lands síns.
FÁSES er með heimasíðuna www.fases.is
auk þess að vera á Facebook.
Ört stækkandi klúbbur
SÖNGVAKEPPNI EVRÓPSKRA SJÓNVARPSSTÖÐVA
Skannaðu kóðann
til að sjá meira á
mbl.is.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 8-15 m/s með rigningu á Suður- og Suð-
vesturlandi, hægari vindur og þykknar upp nyrðra og eystra. Hiti 4 til 12 stig.