Morgunblaðið - 04.07.2014, Síða 8

Morgunblaðið - 04.07.2014, Síða 8
VIÐTAL Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Kvíði, þunglyndi, streita og annar til- finningavandi er algengur, lamandi og líklegur til þess að vera vangreindur og meðhöndlaður með ófullnægjandi hætti hér á landi sem erlendis. Þetta segir Kristbjörg Þórisdóttir sálfræð- ingur, sem vill taka upp aðferð sem gengur út á að finna þá einstaklinga sem glíma við slíkan heilsubrest með einföldum skimunartækjum og bjóða upp á viðeigandi úrræði út frá vanda viðkomandi. „Við viljum veita almenn- ingi aðgang að gagnreyndri sálfræði- meðferð. Samkvæmt klínískum leið- beiningum sem gefnar eru út af landlækni á hugræn atferlismeðferð að vera fyrsta meðferð við kvíða og þung- lyndi. Hugmyndin gengur út á að bjóða almenningi aðgang að gagn- reyndri sálfræðimeðferð í samræmi við þessar leiðbeiningar,“ segir hún. Gróf mynd af vandanum Skimunin færi fram með þeim hætti að fólki yrði boðið að svara stuttum skimunarlista og út frá þeim nið- urstöðum yrði vandinn metinn gróf- lega. „Það er of margt fólk með ógreindan vanda sem leitar sér ekki hjálpar. Við sjáum fyrir okkur að fólk gæti nálgast þessa lista á þjónustu- miðstöðum, heilsugæslustöðvum, skól- um eða á öðrum stöðum í nærumhverf- inu,“ segir Kristbjörg og bætir við að með aðferðinni hafi náðst mikill árang- ur erlendis. „Bretar eru t.a.m. komn- ir miklu lengra en Íslendingar í þessum málum. Þeir hafa verið með verkefni í gangi frá 2006 sem hefur það markmið að auka að- gengi að gagnreyndri meðferð við kvíða og þunglyndi í fram- línuþjónustu. Verkefnið hef- ur sýnt góðan árangur og byggir meðal annars á þrepaskiptri nálgun þar sem þjónustan er í takt við alvar- leika vandans og reynt er að veita að- stoð eins fljótt og mögulegt er.“ Góð reynsla í Breiðholti Kristbjörg starfar á Þjónustu- miðstöð Breiðholts, sem hefur séð um að skima alla unglinga níunda bekkjar í grunnskólum Breiðholts frá árinu 2009. „Það er mjög mikilvægt að fólk fái rétta meðferð sem fyrst, áður en það verður veikara. Við höfum góða reynslu af þessu verklagi með ung- linga hér í Breiðholti þar sem við skim- um fyrir einkennum kvíða og dep- urðar. Þeim unglingum sem eru yfir ákveðnum viðmiðum hefur svo verið boðið á námskeið í hugrænni atferl- ismeðferð. Er það von okkar að það verklag verði sett á fót víðar og jafn- framt að byggð verði upp svipuð þjón- usta fyrir fullorðna,“ segir Kristbjörg. Að sögn hennar er ekki mikil hætta fólgin í því að vandinn verði ofgreindur ef margir fari í gegnum ferlið en hún telur mikilvægt að fólk geri grein- armun á skimun og greiningu. „Flestir greinast með væg einkenni og það er einmitt það sem hugmyndin gengur út á, að fólk fái strax fræðslu og að gripið sé í taumana áður en vandinn eykst.“ Þingsályktun lögð fram Á síðasta þingi var tillaga til þings- ályktunar lögð fram um aðgerðaáætl- un um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra, en Kristbjörg segir þá tillögu snúa vel að þeirri hugmyndafræði sem hún og fleiri hafi talað fyrir. „Alþingi náði ekki að afgreiða tillöguna á síðasta þingi en vonandi verður hún tekin upp á næsta þingi. Staðan er þannig í dag að ef for- eldri ætlar með barnið sitt til sálfræð- ings er það ekki niðurgreitt af ríkinu. Það er verulegur skortur á aðgengi að sálfræðiþjónustu og mikilvægt að við snúum því við. Skimunum fylgir ekki mikil kostnaður og ef við náum að greina vandann snemma spörum við háar upphæðir vegna kostnaðar í heil- brigðis- og félagsþjónustukerfinu,“ segir hún að endingu. Vill koma í veg fyrir vandann áður en það er of seint Morgunblaðið/Golli Heilbrigðisvandi Margir glíma við ógreindan tilfinningavanda eins og kvíða og þunglyndi en slíkt getur haft mikil áhrif á líf og störf manna.  Margir leita sér ekki hjálpar  Einföldum skimunartækjum beitt 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2014 Ýmsum þykir miður að það kerfisem stendur hjarta og hags- munum alls þorra fólks svo nærri, lífeyriskerfið, skuli ekki hafa gert trúverðuga grein fyrir því hvers vegna helstu for- sprakkar þess gengu siðlausustu bröskurum landsins svo auðveipir á hönd á bóluárunum.    Hvítþvottsskýrslan skilaði engu,eins og menn muna, nema óheyrilegum kostnaði. Páll Vil- hjálmsson skrifar:    Lífeyrissjóðir voru leiksopparauðmanna fyrir hrun. Sjóð- irnir töpuðu milljörðum króna í glórulausar fjárfestingar. Fram- kvæmdastjórar og yfirmenn í sum- um lífeyrissjóðum þáðu ýmis fríð- indi frá auðmönnum s.s. ferðir á knattspyrnuleiki á Englandi. Eftir hrun var engin hreinsun í lífeyrissjóðunum, skrifuð var skýrsla og eitthvað föndrað við reglur um að mútur væru ekki við hæfi. Að öðru leyti var haldið áfram eins og ekkert hefði í skor- ist. Lífeyrissjóðirnir eru nánast með ótakmarkaða getu til að tapa fé. Innstreymið í sjóðina er sjálfkrafa, launþegar eru skuldbundnir að setja hluta launa sinna í hítina. Sjóðirnir lagfæra bókhaldið sitt með því að lækka réttindi félags- manna sinna og munu, ef í harð- bakkann slær, hækka lífeyris- tökualdurinn. Í ljósi reynslunnar af sukksemi lífeyrissjóðanna á tímum útrásar er full ástæða til að efast um skyn- semi þess að lífeyrissjóðirnir verði ráðandi á hlutabréfamarkaði.“    Hvernig stendur á því að at-vinnulífið lætur þá sem verst höguðu sér enn hafa úrslitaáhrif í kerfinu og fyrirtækjum sem kerfið er að soga undir sig? Páll Vilhjálmsson Hreingerningar þörf STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 skýjað Bolungarvík 7 alskýjað Akureyri 10 alskýjað Nuuk 14 heiðskírt Þórshöfn 11 skýjað Ósló 21 heiðskírt Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 16 skýjað Helsinki 17 skýjað Lúxemborg 27 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 18 skúrir Glasgow 17 léttskýjað London 26 heiðskírt París 27 heiðskírt Amsterdam 23 heiðskírt Hamborg 23 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 25 léttskýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 22 léttskýjað Madríd 18 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 31 léttskýjað Róm 27 heiðskírt Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 21 léttskýjað Montreal 22 alskýjað New York 28 léttskýjað Chicago 21 léttskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:13 23:53 ÍSAFJÖRÐUR 2:11 25:05 SIGLUFJÖRÐUR 1:48 24:53 DJÚPIVOGUR 2:30 23:34 Um þriðjungur er líklegur til að þjást af að minnsta kosti einni geð- röskun á hverju ári og um helmingur er líklegur til að þjást ein- hvern tímann á lífsleiðinni. Þunglyndi er talið vera fjórða mesta orsök örorku í dag og er spáð öðru sætinu 2020. Ómeðhöndl- aður tilfinningavandi veldur einstaklingum og fjölskyldum mik- illi vanlíðan og samfélaginu mikilli byrði og kostnaði á hverjum tíma. Hugræn atferlismeðferð er að sögn Kristbjargar gagn- reynd meðferð við þunglyndi, kvíða og öðrum geðrösk- unum en hún telur að slík meðferð eigi að vera fyrsta meðferð við kvíða og vægu til miðlungs þunglyndi. Mikil byrði á samfélaginu VELDUR MIKILLI VANLÍÐAN Kristbjörg Þórisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.