Morgunblaðið - 04.07.2014, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.07.2014, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2014 SKARTAÐU ÞÍNU FEGURSTA Bankastræti 4 I sími: 551 2770 I www.aurum.is Skartgripalínan Svanur fæst í verslun Aurum, Bankastræti 4. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ýmsum lykilspurningum í launa- deilu Más Guðmundssonar seðla- bankastjóra er enn ósvarað eftir að Ríkisendurskoðun birti í fyrrakvöld úttekt á málskostnaðargreiðslum Más vegna málsóknar hans gegn Seðlabanka Íslands. Fór bankaráð Seðlabankans fram á slíka úttekt. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær er það meginniðurstaða Ríkis- endurskoðunar að Láru V. Júlíus- dóttur, þáverandi formanni banka- ráðs, hafi borið að bera þá ákvörðun undir ráðið að Seðlabankinn greiddi málskostnaðinn. Um þetta segir orð- rétt í svari Ríkisendurskoðunar: Átti að bera undir ráðið „Þá hefur athugun stofnunarinnar ekki leitt í ljós að í gildi séu reglur, samþykktir eða umboð til handa for- manni bankaráðsins til þess að taka tilteknar ákvarðanir f.h. bankaráðs- ins utan funda, svo sem um útgjöld tengd bankastjóranum. Með vísan til þessa og í ljósi þess að hér var um umtalsverð útgjöld að ræða hefði að mati Ríkisendurskoðunar átt að bera ákvörðun um greiðslu þeirra upp til samþykktar í bankaráðinu.“ Þegar óskað var viðtals við Láru á lögmannsstofu hennar fékk blaða- maður það svar að hún væri komin í sumarfrí fram á mánudag. Hún svar- aði ekki símaskilaboðum í gær. Óskað var upplýsinga um nöfn þeirra einstaklinga sem kallaðir voru til viðtals hjá Ríkisendurskoðun vegna efnisöflunar fyrir skýrsluna. Svar Ríkisendurskoðunar var að rætt hefði verið við fleiri aðila en þá sem vísað væri til í skýrslunni. Nöfn heimildarmanna eru ekki tilgreind, heldur koma fram stöður þeirra. Eins og Morgunblaðið greindi frá 18. mars eru ekki til sérstakar skrár í stjórnarráðinu yfir samtöl Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi forsætis- ráðherra, á tímabilinu þegar hún ræddi við Má um launakjör hans, í júní 2009. Hefur Már vísað til þeirra samtala og samtala við Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu á þeim tíma. Af því tilefni var það borið undir Svein Arason ríkisendurskoðanda hvort Jóhanna væri á meðal þeirra sem starfsmenn stofnunarinnar ræddu við. Svar hans var svona: „Í svarinu [við erindi bankaráðs] er fjallað um mat okkar á viðbrögð- um vegna úrskurðar kjararáðs, málshöfðunar og greiðslu máls- kostnaðar í framhaldi af ákvörðun bankaráðs um kjör seðlabankastjóra og breytingu á lögum um kjararáð. Það var mitt mat að viðtal við fv. for- sætisráðherra myndi ekki bæta neinu við svarið.“ Aðdragandinn enn á huldu Vekur þetta athygli í ljósi þess að annars staðar í svari Ríkisendur- skoðunar segir orðrétt um afstöðu Más til þess að taka við starfi seðla- bankastjóra: „Áður en hann tók endanlega ákvörðun um að taka starfinu telur hann sig hafa, fyrir orð ráðuneytis- stjóra forsætisráðuneytisins, fengið loforð forsætisráðherra um að laun hans yrðu ekki lægri en tæplega 1,5 milljónir kr. á mánuði jafnvel þó svo að breytingarnar kynnu að verða gerðar á lögum um kjararáð.“ Um aðdraganda þessa loforðs seg- ir síðan orðrétt í úttektinni: „Svo sem áður er getið kom bankaráðið sem slíkt ekki að ákvörð- un um greiðslu málskostnaðarins og er ekki að finna bókanir um hana í fundargerðabók þess. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær eða hvernig ákvörðun um að bankinn greiddi kostnaðinn bar að enda eng- in skrifleg gögn um hana.“ Fram kemur í svari Ríkisendur- skoðunar að kostnaður Seðlabank- ans við álitsgerð Andra Árnasonar hrl., sem greitt var fyrir í júlí 2010, hafi numið 362.174 kr. Til saman- burðar kostaði málarekstur lög- fræðistofu seðlabankastjóra, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og Hæsta- rétti, 4.148.116 kr. og kostnaður lög- fræðistofu Seðlabankans var alls 3.283.240 kr. Kostnaðurinn við mála- reksturinn, að frátalinni álitsgerð Andra, var því 7.069.182 kr. Ekki hlutverk stofnunarinnar Kostnaðurinn við álitsgerðina hafði ekki komið fram áður og af því tilefni óskaði Morgunblaðið upplýs- inga hjá Ríkisendurskoðun um hvernig hinn hluti kostnaðarins væri tilkominn. Var svar Ríkisendurskoð- unar að það væri ekki hlutverk henn- ar að veita þessar upplýsingar. Sama spurning var send Seðlabanka og hafði svar ekki borist í gærkvöldi. Þá sagði ríkisendurskoðandi, að- spurður um kostnað stofnunarinnar og fjölda vinnustunda vegna skýrslu- gerðarinnar, að „almennt gæfi [stofnunin] ekki upp hvað skýrslur kosta“, né heldur hefði hún tekið saman kostnaðinn. Hins vegar upp- lýsti hann að haldið væri utan um verktímann í verkbókhaldi. Þá vekur athygli að haft er eftir Láru í svarinu að bankaráðið hafi tekið ákvörðun um að óska eftir áliti Andra: „Ég var formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands á þessum tíma. Bankaráðið hafði beðið Andra Árna- son hrl. um lögfræðilega álitsgerð um réttarstöðu seðlabankastjóra þar sem hann var meðal annars spurður hvort hægt væri að lækka laun seðla- bankastjóra á skipunartíma og frá hvaða tímapunkti ætti að greiða seðlabankastjóra laun samkvæmt ákvörðun kjararáðs.“ Höfðu efasemdir um skref Láru Í úttektinni segir hins vegar að efasemdir hafi verið í ráðinu: „Rétt er að geta þess að á fundi bankaráðsins hinn 27. maí 2010 var m.a. fjallað um breytingar á launa- kjörum seðlabankastjóra í tilefni af úrskurði kjararáðs frá 23. febrúar 2010 þar um. Af því tilefni tilkynnti þáv. formaður bankaráðsins að hann hefði óskað eftir lögfræðiáliti frá Andra Árnasyni hrl. um það hvernig standa skyldi að launabreytingun- um. Í fundargerð fundarins er greint frá því að fulltrúar í bankaráðinu hafi allir lýst afstöðu sinni til málsins og jafnframt að komið hafi fram efa- semdir um hvort formaður banka- ráðs gæti óskað eftir lögfræðiáliti án fulltingis ráðsins sjálfs.“ Lykilspurningum ósvarað  Ríkisendurskoðun kannaði ekki aðdraganda þess að Seðlabankinn ákvað að greiða málskostnað Más Guðmundssonar seðlabankastjóra  Efasemdir voru í bankaráði um álitsbeiðni þáv. formanns ráðsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Seðlabankinn Í úttekt Ríkisendurskoðunar um launadeilu Más Guðmunds- sonar seðlabankastjóra segir að rætt hafi verið við fleiri en þar er vísað til. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir það eiga sér eðlilegar skýr- ingar að ekki skuli hafa verið rætt við fv. fulltrúa í bankaráði SÍ. „Sé úttektin lesin sést að spurn- ingarnar beinast að allt öðru en bankaráðinu sjálfu. Það sem við töldum eðlilegt var að ræða fyrst og síðast við þáverandi formann og síðan ræddum við ritara bankaráðs- ins. Ásamt því að lesa fundargerðir ráðsins líka töldum við okkur hafa nægar upplýsingar um það sem gerðist á fundinum varðandi þau mál sem um var spurt.“ – Hvers vegna taldi Ríkisendur- skoðun ekki tilefni til þess að leita til Jóhönnu Sigurðardóttur, í ljósi þess að hún er beinn málsaðili? „Það lá fyrir ákvörðun banka- ráðs um launakjör seðlabanka- stjóra í mars 2009. Það er ekkert sem breytir því fyrr en ákveðið er að fella launa- mál Más, ásamt málum fleiri for- stjóra ríkisstofn- ana, undir kjara- ráð. Þau lög eru samþykkt í ágúst 2009, rétt áður en Már hefur störf. Kjararáð úrskurðar í máli hans í febrúar 2010. Um leið og búið var að fella launakjörin undir ákvörðun kjara- ráðs tekur við nýr kafli í þessu máli. Kjararáð ákveður launakjör. Það sem áður hefur verið gert hefur því enga þýðingu lengur.“ – Fram kemur í úttektinni að Lára V. Júlíusdóttir hafi tekið þátt í umræðum um starfskjör æðstu yfir- manna Seðlabankans innan yfir- stjórnar bankans. Er þér kunnugt um hvaða fulltrúar í stjórn Seðla- bankans áttu samræður við þáv. formann bankaráðs um þau mál? „Nei. Við litum svo á að yfir- stjórnin hefði verið æðstu stjórn- endur bankans á þeim tíma.“ – Má draga þá ályktun að Már hafi verið í þessum hópi? „Nei, ég held einmitt að það hafi ekki verið hann. Þetta laut einmitt að afleiddum þáttum í úrskurði kjararáðs, enda eru launakjör starfsmanna [SÍ] bundin hlutföllum af launum seðlabankastjóra.“ Spurður hvers vegna ekki sé tek- in afstaða til skattalegrar með- ferðar á málskostnaðargreiðslum SÍ segir Sveinn „ekki komið að því enn þá“. „Við leggjum til að banka- ráðið taki ákvörðun um þessi mál.“ Sveinn Arason Nóg að ræða við Láru, ritara bankaráðs og lesa fundargerðir Ríkisendurskoðun fjallar um fyrir- spurn Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns Framsóknarflokksins, sem dreift var á Alþingi hinn 13. nóvember 2012, til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við málaferli Más og þá hvort seðla- bankastjóri myndi greiða kostn- aðinn. Ríkisendurskoðun telur að svar Seðlabankans við fyrir- spurninni hefði „að sönnu mátt vera nákvæmara“, en í svari bank- ans við fyrirspurn þingmannsins í janúar 2013 kom ekki fram að bankinn myndi greiða kostnaðinn að fullu. Már sagði hins vegar orð- rétt í útvarpsþættinum Sprengi- sandi í vor: „Hins vegar lá það fyrir að þegar úrskurður var kominn í héraðsdómi, þá var ég búinn að ákveða það að halda ekki áfram með málið nema ég fengi til þess einhvern atbeina frá bankanum,“ sagði Már. Það var því forsenda áfrýjunar hans til Hæstaréttar að SÍ greiddi málskostnað, en málinu var áfrýjað hinn 20. nóvember 2012. Ríkisendurskoðun vísar hins veg- ar til þess að að endanleg niður- staða málsins fyrir Hæstarétti hafi ekki legið fyrir þegar svar Seðla- bankans var gefið. Svar mátti vera „nákvæmara“ AFSTAÐA RÍKISENDURSKOÐUNAR TIL SVARBRÉFS SÍ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.