Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 2
Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014 Verður maður ekki að nota strætó? Sigurður Óli 56 ára Ég bý í Hafnarfirði og ég ætla að nota strætó, maður kemst ekkert öðruvísi í bæinn. Gunnar Guðmundsson 56 ára. Ég mun ganga niður í bæ. Gunnhild Öyahals 53 ára Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Ég ætla bara að fara labbandi niður í bæ. Ólöf Anna Jónsdóttir 49 ára. Morgunblaðið/Styrmir Kári SPURNING DAGSINS HVAÐA FERÐAMÁTA KÝST ÞÚ AÐ NOTA Á MENNINGARNÓTT? Ragnheiður Skúladóttir hefur ekki gert upp við sig hvort hún sækist eftir því að verða aft- ur leikhússtjóri Leikfélags Akur- eyrar. Hún segist í viðtali þakklát fyrir þann tíma sem hún hefur átt fyrir norðan. Svipmynd 12 Í BLAÐINU Heimild: Hagstofan 2003 2013 STARFSFÓLK LEIKSKÓLA 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Leikskólakennarar/uppeldismenntun Ófaglærðir og annað starfsfólk 4.684 3.243 1.441 3.138 2.688 5.826 31% 46% 69% 54% Fjöldi leikskólabarna 2003 2013 16 .6 85 19 .7 13 Nú ertu bæði heims- og Evrópumeistari í spjótkasti. Hvernig tilfinning er það? Það er mögnuð tilfinning og fátt sem toppar þetta – hún er eiginlega ólýsanleg. Hverjum þakkar þú fyrir að hafa náð alla leið? Það eru margir þættir sem spila þar inn í – þjálfarar, vinnuveitandi, styrkt- araðilar – þetta spilar allt stóran þátt í því að ná þeim takmörkum sem ég setti mér. Svo að sjálfsögðu ég fyrir að leggja á mig alla þá vinnu sem þarf til að ná árangri. Hvað vilt þú segja við fólk sem nennir ekki að standa upp úr sófanum? Það er bara að byrja strax ef það er löngun til að hreyfa sig. Bara taka sinn tíma í hlutina og keppa við sjálfan sig til að byrja með og hlutirnir fara að ger- ast. Er það rétt að síðan þú byrjaðir að hlaupa á ný hafir þú varla stoppað? Það má eiginlega segja það. Þegar ég byrjaði að vinna hjá Össuri komst ég al- mennilega í tæri við þær frábæru vörur sem fyrirtækið hef- ur upp á að bjóða og hef ekki stoppað síðan. Þú þóttir efnilegur í handbolta. Kemur kast- krafturinn þaðan? Hann hjálpar klárlega. Það er svip- aður taktur í spjótinu sem ég er ekkert búinn að gleyma. Þú ert einnig frambærilegur í golfi. Hvað ertu með í forgjöf? Mér finnst gaman að spila golf og gerði mikið af því eftir að ég missti fótinn. Komst niður í níu í forgjöf. Hún hefur reyndar farið eitt- hvað upp eftir að ég byrjaði í frjálsum – það tekur allan minn tíma núna þannig að golfið er bara í góðra vina hópi og til að hafa gaman. Þegar þú ert ekki að æfa, hvað gerir þú þá í lífinu? Þá reyni ég að spila golf, veiða – geri reyndar alltof lítið af því, og bara eyða tímanum með fjölskyldunni. Hefur Össur hjálpað þér mikið í gegnum þetta ferli? Ég held að það sé bara ekki til lýsingarorð yfir það hversu mikið það er Össuri að þakka að ég skuli vera á þessum stað í dag. Þar komst ég af stað, þar vinn ég, þar er ég innan um alla þá frábæru íþróttamenn sem Össur er að aðstoða og gefa mér þannig aukinn kraft til að gera meira. Hvað er svo fram undan? Ég ætla að taka mér smá hvíld núna, aðeins að hlaða batteríin. Svo byrjar veislan aftur. Það er heimsmeist- aramót á næsta ári þar sem ég stefni á að gera góða hluti – ég er ekki orðinn saddur ennþá. Íþróttasamband fatlaðra HELGI SVEINSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Ekki orðinn saddur Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson Á Dunhaga 19 í Vestur- bænum er einstök íbúð sem notuð var í kvikmyndinni ́79 af stöðinni. Hún var nýlega gerð upp en reynt var eftir megni að halda í útlit og stíl fyrri tíma. Heimili og hönnun 24 Dómharka í eigin garð hjálpar engum að taka upp heilbrigðan lífsstíl. Hjúkrunarfræðingur og sál- fræðingur halda námskeið um breyttan lífsstíl þar sem áhersla er lögð á jákvætt viðhorf til eigin lík- ama. Heilsa 22 Halldór Ragnarsson ætlaði að teikna mynd fyrir hvert orð í Orðabókinni en sá að það var ógerlegt. Hann ákvað að halda sig við teikn- ingar af orðum sem byrja á stafnum A. Menning 49 Helgi Sveinsson, spjótkastari úr Ármanni, varð í vikunni Evrópumeistari á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum í Swansea. Helgi kastaði 50,74 metra og er hann nú ríkjandi heims- og Evrópumeistari í greininni. Helgi missti fótinn 19 ára vegna krabbameins en lætur það ekki stöðva sig.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.