Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014 R agnheiður Skúladóttir, fyrrverandi leik- hússtjóri Leikfélags Akureyrar, er í for- svari fyrir alþjóðlegu leiklistarhátíðina Lókal sem haldin verður í Reykjavík 27. ágúst - 31. ágúst. Ragnheiður, sem lærði leik- list í Bandaríkjunum og bjó þar lengi og varð síðan fyrsti deild- arforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands, varð listrænn stjórnandi Leikfélags Akureyrar árið 2012 og tók við starfi leik- hústjóra sama ár. Öllum starfs- mönnum félagsins var sagt upp í apríl síðastliðnum, þar á meðal Ragnheiði. Starf leikhússtjóra verður auglýst í haust og spurð hvort hún hyggist sækja um starf- ið segist Ragnheiður ekki hafa gert upp hug sinn. Önnur sýn á Íslendinga „Staðan hjá Leikfélaginu er betri nú en hún var þegar ég kom fyrst að leikhúsinu sem listrænn stjórnandi,“ segir Ragnheiður. „Þegar ég tók við starfi leik- hússtjóra höfðum við úr litlu fjár- magni að spila og þá fór ég af stað með þá yfirskrift að skapa alþýð- legt og framsækið leikhús. Þegar maður er í nauðum staddur er gott að fá aðstoð og eiga samtal við aðra í stað þess að loka sig af. Ég lýsti því yfir að allir gluggar og allar dyr í leikhúsinu yrðu opnuð og bauð fólki upp á samtal og spurði: Hvað getum við gert sam- an? Akureyri hefur sterkan innri strúktúr, þar eru öflugir skólar og sterkt listalíf og tækifæri til að gera ýmsa hluti sem ekki er hægt að gera á stærri stað, til dæmis útvíkka leiklistina á einfaldari hátt en annars staðar. Leikfélag Ak- ureyrar er rótgróið félag með mikla sögu og þegar það var gert að atvinnuleikhúsi árið 1973 kom þangað róttækt fólk eins og Arnar Jónsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Þráinn Karlsson, svo ég nefni einungis nokkur nöfn. Akureyr- ingar eru því vanir að leikhúsið þeirra sé svolítið róttækt og þar er farvegur sem mér finnst vera spennandi. Ég tók leikhússtjórastarfið að mér og auðvitað voru ýmsar holur í veginum sem þurfti að sveigja framhjá eða komast upp úr þegar maður festist í þeim. Þetta hefur verið barátta en á síðasta ári juk- ust tekjur okkar um næstum helm- ing frá árinu áður. Ég er mjög stolt af síðasta leikári þar sem við sýndum nýtt íslenskt leikrit, Sek eftir Hrafnhildi Hagalín, Lísu og Lísu eftir Amy Conroy og Gullna hliðið sem var óskaplega skemmti- legt verkefni. Eldra fólk í bænum ræskti sig og spurði ekki hvort við ætluðum að eyðileggja Gullna hlið- ið heldur hvernig og yngra fólkið sagði: Davíð Stefánsson, Gullna hliðið hvað? En þarna tókst að búa til sýningu sem höfðaði til breiðs hóps á nýstárlegan hátt. Á síðasta ári náðum við því markmiði okkar að búa til skemmtilegt og fram- sækið leikhús, fengum sjö tilnefn- ingar til íslensku leiklistarverð- launanna og fórum heim með fjórar Grímur. Viss íhaldssemi er auðvitað innbyggð í leikhúsið og ég hef áhuga á að þenja formið því leiklistinni halda engin bönd. Verð- launaverkið Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánsson, í samstarfi við Útvarpsleikhúsið og Minjasafnið á Akureyri var til dæmis flutt í Dav- íðshúsi og það voru magnaðar stundir í myrkrinu.“ Þú ert búsett á Akureyri, hvern- ig var að flytja þangað og koma í nýtt samfélag? „Ég bjó í þrettán ár í Bandaríkj- unum en annars hef ég búið meira og minna í 101 Reykjavík og það var því ástkorun að búa utan höf- uðborgarsvæðisins og í því felast líka viss tækifæri. Ég er mjög opin manneskja og verkefnið var slíkt að mér fannst oft og tíðum eins og ég væri í framboði. Ég tók þetta verkefni að mér og bar ábyrgð á því og mér fannst það vera skylda mín að ganga um götur Akureyrar og kynna mig. Hvert sem ég kom sagði ég: Ég er nýi leikhússtjórinn. Áður en ég flutti norður bauð gömul skólasystir mín sem býr á Akureyri mér í lesklúbb og mér var boðið í Rotary-klúbb Akureyr- ar sem er gríðarlega skemmtilegur félagsskapur. Þarna fékk ég á miðjum aldri tækifæri til að upp- lifa eitthvað nýtt og kynnast fólki sem ég hefði annars aldrei kynnst og jafnvel fólki sem ég á eftir að halda ævilangri vináttu við. Það hefur verið lærdómsríkt að búa úti á landi og ég hef fengið aðra sýn á Íslendinga. Það er svo auðvelt að lokast inni í sinni eigin kreðsu og tala einungis við jábræð- ur sína og systur en ég hef fengið tækifæri til að kynnast alls konar fólki og heyra ólíkar skoðanir. Ég vil eiga þátt í að skapa leikhús sem nær til fólksins og þá verður maður að þekkja fólkið sem maður vill ná til.“ Langaði að koma með umheiminn heim Þú ert í forsvari fyrir alþjóðlegu leiklistarhátíðina Lókal sem hefst í næstu viku. Hvað verður á dag- skrá hátíðarinnar? „Við Bjarni Jónsson, maðurinn minn, og Guðrún Jóhanna Guð- mundsdóttir stofnuðum árið 2008 alþjóðlegu leiklistarhátíðina Lókal. Við höfðum öll búið og starfað er- lendis og langaði að koma með umheiminn heim. Við sáum eftir þessa fyrstu Lókal-hátið hversu mikil áhrif slík hátíð getur haft og ákváðum að halda hana árlega. Nú er Lókal orðin málsmetandi úti í hinum stóra heimi, ein af A- hátíðunum í leiklistinni. Og í ár fáum til landsins hátíðahaldara frá fimmtán öðrum hátíðum í Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu til þess að líta á það nýjasta í íslenskum sviðslistum Þetta gerum við í sam- vinnu við Reykjavík Dance Festi- val, en á undanförnum árum hefur Lókal verið haldin á sama tíma og RDF og þessar hátíðir sækja styrk í hvor aðra. Í ár verður áherslan á íslenska leiklist en við höfum séð að þeim erlendu aðilum sem koma á hátíð- ina finnst mest spennandi að sjá Affarasælast að fylgja innsæinu RAGNHEIÐUR SKÚLADÓTTIR, SEM ER FYRRVERANDI LEIK- HÚSSTJÓRI LEIKFÉLAGS AKUREYRAR, UNDIRBÝR ALÞJÓÐ- LEGU LEIKLISTARHÁTÍÐINA LÓKAL. Í VIÐTALI RÆÐIR HÚN UM HÁTÍÐINA, LEIKLISTINA, LEIKHÚSSTJÓRASTARFIÐ OG BÚSETUNA Á AKUREYRI SEM HÚN SEGIR HAFA GEFIÐ SÉR NÝJA SÝN Á ÍSLENDINGA. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is *Það hefur veriðlærdómsríkt aðbúa úti á landi og ég hef fengið aðra sýn á Íslendinga. Það er svo auðvelt að lokast inni í sinni eigin kreðsu og tala einungis við jábræður sína og systur en ég hef fengið tækifæri til að kynnast alls konar fólki og heyra ólíkar skoðanir. Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.