Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 34
Á kveður þú fatnað þinn fram í tímann? Á virkum dögum, þegar ég er að vinna, er ég ekki mikið í áberandi fatnaði. Ég klæðist aðallega því sem mér líður vel í og gæti þess vel að hella ekki yfir mig geli, málningu eða naglalakki. Ég á það til að vera svolítið klaufaleg stundum. Um helgar klæði ég mig hinsvegar upp og nýt þess að klæðast því sem ég geng vanalega ekki í á virkum dögum. Ég reyni að skipuleggja mig svolítið fram í tímann en stundum hef ég eitthvað í huga og enda síð- an á því að skipta um skoðun á síðustu stundu. Venjulega ákveð ég þema fyrir daginn og vel síðan föt út frá þeim ákvörðunum. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Ég elska fljótandi varalit- ina frá Limecrime Velvetines. Ég fíla alla litina frá þeim en Red Velvet er þó í miklu uppáhaldi. Guðdómlegur mattur varalitur, dugir lengi á vörunum, auðvelt að bera hann á og umbúðirnar eru dásam- legar. Ég farða mig ekki mikið dagsdaglega, en mér finnst flottur varalitur skipta höfuðmáli. Áttu þér uppáhalds flík eða fylgihlut? Ég held mikið upp á jakka, sérstak- lega eftir að ég flutti til Íslands. Maður þarf eiginlega að vera í jakka allan ársins hring, svo það er nauðsynlegt að eiga nokkra. Ég á mik- ið að ólíkum jökkum, stuttum, löngum, jökkum úr gerviloði, jakka með göddum, íþróttajakka og fleira. Ef veðrið leyfði myndi ég klæðast pleðurjökkum með göddum á hverjum degi. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Mér finnst söngkonan Kerli með með flottan stíl, hún er nánast eins og lifandi dúkka, virkilega heillandi. Kerli er alltaf með flotta hárgreiðslu og í flottum fötum. Hún kemst upp með hvað sem er, hugsar út fyrir boxið og er því alltaf klædd í eitthvað nýtt og spennandi. Áttu þér uppáhalds fatahönnuð? Það er erfitt að segja. Núna eru merkin Lazy Oaf og Killstar í uppáhaldi. Þetta eru ólík merki en þau henta mín- um óhefðbundnu tískusveiflum. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fata- kaupum? Ég versla aðallega á netinu eða í heimsóknum mínum heim til Kanada, það er mun ódýrara og mér finnst auðveldara að finna föt þar sem ég fíla. Á Íslandi hef þó fundið nokkra gullmola í Kolaportinu. Ég held að lykillinn sé að hafa augun opin og fjárfesta bara í fötum og fylgihlutum sem þú sérð þig fyrir þér klæðast. Annars enda ég á því að kaupa eitthvað sem ég nota afar sjaldan því það passar ekki fötunum sem að ég á fyrir. Einnig er gott að eiga nokkrar grunn- flíkur í látlausum litum og sniðum sem einfalt er að para saman við áberandi fatnað og fylgihluti. Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Köllum það krúttlegt- pönk-goth! Ég elska pönkaraleg föt, svartan lit, brjálaðar augnlinsur, gadda, Dr. Martins-skó og klikkaðan hárlit. Hinsvegar vil ég stund- um bara vera krúttlega klædd í fatnaði innblásnum úr teiknimynd- um, skemmtilegum skissum, nammi, einhyrningum, köttum, hjört- um, slaufum og glimmeri! Ég sæki einnig mikinn innblástur í japanska götutísku. Áttu þér uppáhalds tískutímarit eða blogg? Í sannleika sagt les ég mjög sjaldan tímarit og fylgi ekki bloggum en ég sæki þó mikinn innblástur í instagram. Þar fylgist ég með búðum eða fólki sem veitir mér innblástur. Instagram á það til að verða svolítið ávana- bindandi. Hvað er það síðasta sem þú festir kaup á? Ég keypti mér fal- lega skó frá Irregular Choice í Brighton. Mig hefur dreymt um skó frá þeim í mörg ár, og það var virkilega erfitt að velja rétta parið. Ég stóðst ekki freistinguna og keypti mér einnig hálsmen með fullt af augum á. Þetta var síðasta parið svo það leit út fyrir að þau hefðu verið að bíða eftir mér. Hvað er þín súrrealískasta tískuupplifun? Ég er ekki hrædd við að prófa nýja stíla, förðun eða hárliti, þannig ég átta mig ekki alveg á því hvað telst súrrealískt í mínu tilfelli. Mér finnst eiginlega skrýtið þegar ég er í venjulegum fötum, með brúna hár- kollu, að reyna að fela tattúin mín. Það er svolítið súrrealískt að sjá sjálfan sig á ann- an hátt. Catherine er með afar áber- andi stíl og finnst skrýtið að klæðast hefðbundnum fatn- aði. Morgunblaðið/Styrmir Kári SÆKIR INNBLÁSTUR Í JAPANSKA GÖTUTÍSKU Óhrædd við að prófa nýja stíla CATHERINE CÔTÉ ER KONAN Á BAK VIÐ LITRÍKU OG FALLEGU NEGLUNAR RAINBOW NAILS. CATHERINE HEFUR AFAR ÁBERANDI OG SKEMMTILEGAN STÍL OG NÝTUR ÞESS AÐ KLÆÐA SIG UPP. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Mattur varalitur frá Limecrime Velvetines. Þessi skemmtilegi bakpoki er á óskalistanum. Gadda pleðurjakki frá Kill Star. Catherine fjárfesti nýlega í drauma- skóparinu frá Irregular Choice. Neglurnar sem Cather- ine gerir hjá Rainbow Nails eru listaverk. Tíska Gisele tekjuhæst AFP *Í vikunni birti vefsíðan Forbes.com listayfir tekjuhæstu fyrirsætur heims. Ofur-fyrirsætan Gisele Bündchen er þar efstá blaði, með 47 milljón dollara, sem erfimm sinnum meira en næsthæst-launaða fyrirsæta heims, Doutzen Kro-es, hefur. Gisele er meðal annars andlit tískuhúsanna H&M, Stuart Weitzman, Chanel og Carolina Herrera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.