Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Side 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Side 41
Vötnin öll, er áður fjellu undan hárri fjalla þröng, skelfast, dimmri hulin hellu, hrekjast fram um undirgöng; öll þau hverfa að einu lóni, elda þar sem flóði sleit. Djúpið mæta, mest á fróni, myndast á í breiðri sveit. Og rétt eins og í tilfelli Ásbyrgis hafa hin hrikalegu umbrot og tryllingur nátúrunnar ekki einvörðungu farið eyðandi höndum um það sem fyrir varð, þegar jörð skalf og eimyrjan stóð upp úr Skjaldbreið. Þar urðu til, með þúsunda ára þróun, Þingvellir og vatnið sem við þá er kennt og umhverfið allt. Mörgum þykir að þeir hafi ekki litið fegurri stað en þar. Og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson leyfir sér kannski þess vegna að kalla önnur öfl til sögunnar til hliðar við hin: Hver vann hjer svo að með orku? Aldrei neinn svo vígi hlóð: búin er úr bála-storku bergkastali frjálsri þjóð. Drottins hönd þeim vörnum veldur; vittu barn! sú hönd var sterk; gat ei nema guð og eldur gjört svo dýrðlegt furðuverk. Ímyndunarafl snillinga Hannes Hafstein skrifar fyrsta æviágripið um Jónas Hallgrímsson og birtir það sem undanfara Ljóðmæla og annarra rita sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út árið 1883. Hannes lýkur því með þessum orðum: „Þegar menn koma framan Öxnadal, sjá þeir dranga bera við himin, háan og snarbrattan, eins og turn. Það er sagt að gull- kista sje uppi á honum, og sá megi eiga sem nái. Þegar lengra dregur úteptir, sjest tún og bær innan um grjótið undir fjallinu. Það er Hraun, fæðingarstaður Jónasar.“ „Grjót og Hraun,“ hvaða mann hljóta þau tvö orð að kalla fram? Auðvitað Jóhannes S. Kjarval. Hraun voru ekki vel þokkuð af fólki í strjálbýlu landi og óþjálu til ferðalaga. Mörg þeirra, einkum apalhraunin, þóttu ófær fyrir aðra en fuglinn fljúgandi. Óvættir voru þar vísast og kannski útlegumenn á flótta. En Jóhannes Kjarval gerði sér mat úr hrauninu og hreifst af stórgerðri fegurð þess og gaf því lit og líf. Og málarinn mikli gerði meira en að mála og að gefa Erró 12 ára pensla og liti. Hann skrifaði og gaf út bækur: Grjót og Meira grjót. Grjót kom út árið 1930 og var öðru vísi en aðrar bækur. Þar flutu með ævintýri sem Kjarval hafði skrifað á árunum 1907 og 1908 og marg- víslegar hugleiðingar, svo sem um skipulagsmál. Kjarval skrifar Eftirmála bókarinnar og birtir hann auðvitað fremst í henni. Hann segir þar að hann „tali líka dálítið um ástina, það væri nú kannski óþarfi, en einhvernveginn fanst mér það nú eiga við – fanst efnið þurfa einhvern stuðning, frá þeim þektu orðatil- tækjum, fanst orðin og málið fá dálítinn huliðheimablæ við það, fanst stíllinn verða svolítið ævintýralegri við það, en of mikið grjót annars.“ Og í þessari bók á blaðsíðu 25 er eins og Kjarval sjái Perluna fyrir sér: „Einu sinni þegar einn smiður ætlaði að biðja guð afsökunar á, að hann hefði haft áhrif á verk mannanna, þá varð náttúran fyrri til og var búin að gefa honum margar merkilegar hugmyndir, áður en hann var búinn að bera fram afsökunina. Merkilegasta hugmyndin var að byggja höll og musteri inn á Öskju- hlíð. Átti að þekja musterishliðarnar spegilhellum, svo norðurljósin gætu nálgast fætur mannanna – átti að skreyta þakið kristöllum allavega litum, og ljóskastari átti að vera efst á mæninum, sem lýsti út um alla geima. Húsið sjálft átti að svara birtu dagsins og tákn- um næturinnar. Hjelt smiðurinn, að þetta mundi auka á skraut jarðarinnar og birtu himnanna,…“ Áminning Spár og fyrirboðar um Heklu, Kötlu eða Bárðarbungu eru nauðsynlegir, ekki aðeins sem mikilvæg örygg- isvakt um almanna vá, heldur einnig til að minna okkur á, að herra jarðarinnar flytur í Putaland, smár og máttlítill, þegar náttúruöflin ákveða að fara sínu fram. En það má einnig að skaðlausu horfa til þess að jafn- vel verstu hamfarir geta haft sínar björtu hliðar. Það getur þurft óstjórnlegt ímyndunarafl til að nema þann þáttinn og það getur stundum þurft margra manns- aldra bið eftir þeirri glætunni. En allt kann sá sem bíða kann. Það gætu raunar verið einkunnarorð SVR. Morgunblaðið/Árni Sæberg * Einhverjir hafa haldið því framað gosin fyrir Suðurlandi 1963og 1973 kunni að hafa létt á Kötlu, en ekki verður farið nánar út í vangaveltur um það. Og fröken Katla er ekki ein um að vera langt gengin og jafnvel komin á tíma. Systir hennar, fröken Hekla hin fríða og fræga, er það örugglega líka. 24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.