Morgunblaðið - 07.06.2014, Síða 1
Stofnað 1913 133. tölublað 102. árgangur
L A U G A R D A G U R 7. J Ú N Í 2 0 1 4
VA
5HUGMYNDIRAÐ HOLLUNESTI
* Einfalt,bragðgott ennæringarríktnesti fyrir
börnin í
SUNNUDAGUR
BJÖRG LÉT GESTI SÍNASJÁ UM MATSELD
SAMSTÆÐUR ERUTÖFF
ÍSLAND ER GÓSEN-LAND KYLFINGSINS FJÁRMÁL 44
MATUR 32
TÍSKA 42
GOLFVELLIR 22
SKELLTU ÞÉRTILÚTLANDA FYRIR SLIKK
8. JÚNÍ 2014
GÐIR
Í TEXAS Í BANDARÍKJUNUM. GUÐJÓN ER NÚ ORÐINN BANDARÍSKUR RÍKIS-
BORGARI OG GAF ÚT BÓK UM ÞAÐ FERLI 48
ÓTRÚLEGATBURÐARÁS
Dýr 0%
kortalán
Morgunblaðið/Ómar
Í sól og sumaryl Börnin fögnuðu sólinni og hitanum í Nauthólsvík í gær og sulluðu kát í sjónum. Áframhaldandi blíðu er spáð á öllu landinu í dag.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hiti fór yfir tuttugu stig á nokkrum stöðum á
landinu í gær. Hæstur mældist hann í Húsafelli,
21,1 stig, þá fór hann í um 21 stig á tveimur stöð-
um í uppsveitum Árnessýslu, við Bræðratungu-
veg og í Árnesi. Hlýjast var sunnanlands í gær en
hiti náði þó 16 stigum á Norðausturlandi. Svalara
var við ströndina, t.d. náði hitinn ekki 10 stigum
við Húnaflóa. Búist er við svipuðu veðri á landinu í
dag, heitast verður inn til landsins, í uppsveitum
Árnessýslu og innsveitum norðanlands.
Þó að hitinn hafi náð tuttugu stigum í gær
voru slíkar hitatölur seinna á ferðinni þetta árið
en undanfarin ár. Hitinn komst fyrst upp í 20 stig
á landinu á fimmtudaginn og er það um hálfum
mánuði seinna en síðustu ár. Á tímabilinu frá 1995
til 2009 er meðaltalsdagsetningin 23. maí sem hit-
inn fór fyrst upp í 20 stig á árinu. En ef tímabilið
frá 1949 til 2009 er tekið á mönnuðum stöðvum er
meðaltalsdagsetningin 5. júní, eins og var í ár.
Vorleysingar á hálendinu eru miklar núna í
hlýjunni og rennsli í ám því nokkurt, sérstaklega á
Norðausturlandi og Austurlandi. Búist er við að
hlýindin um helgina auki rennslið enn frekar.
Staðan á miðlunarlónum Landsvirkjunar batnar
nú hratt vegna vorflóðanna. Langt er þó í að lónin
fyllist og ekki víst að þau nái öll að fyllast vegna
lágrar vatnsstöðu í vor eftir kaldan vetur. »4 og 6
Sumarblíða um allt land
Hiti fór yfir 20 stig á nokkrum stöðum Heitast í innsveitum Spáð jafn góðu
í dag 20 stiga hiti seinna á ferðinni þetta árið en síðustu ár Staða lóna lagast
Í HEIÐURSFÉLAGI
MEÐ FYRRVERANDI
FORSETUM
SAMTÍÐAR-
PORTRETT
Á AKUREYRI
ALLIR MIÐLAR UNDIR 38STÆRÐFRÆÐINGUR ÚR MIT 2
Kjartan Kjartansson
Ómar Friðriksson
Frá því að lota kjarasamninga
hófst síðasta haust á almenna og
opinbera vinnumarkaðinum, hafa
verið gerðir hátt í 150 kjarasamn-
ingar, bæði með og án milligöngu
ríkissáttasemjara.
Að sögn Þorsteins Víglundsson-
ar, framkvæmdastjóra Samtaka at-
vinnulífsins, má ætla að búið sé að
semja við 98–99% alls vinnumark-
aðarins, þ.e. þeirra sem voru á ann-
að borð með lausa samninga.
„Langstærsti hluti þessara
samninga er innan þess ramma
sem lagt var upp með ef litið er á
fjölda launamanna. Við einsettum
okkur að kostnaðarhækkanir vegna
kjarasamninga væru innan við 4%
á ári til þess að valda ekki verð-
bólgu,“ segir Þorsteinn. Verðbólg-
an hefur verið lítil að undanförnu
og segir Þorsteinn ýmislegt benda
til þess að hún fari ekki yfir verð-
bólgumarkmið Seðlabankans á
næstu mánuðum. ,,Stærsta áskor-
unin fram á veginn er næsta samn-
ingalota með ASÍ, sem hefur lýst
því yfir að þetta hafi mistekist en
við erum ekki sammála þeirri túlk-
un. Um það verður rætt þegar
næsta lota hefst fyrir alvöru,“ segir
hann.
„Þetta er með meira móti“
Í fyrra var tólf málum skotið til
Ríkissáttasemjara en frá áramót-
um hafa 40 mál verið skráð hjá
embættinu. „Við höfum ekki verið
atvinnulaus. Það er alveg á hreinu.
Það má segja sem svo að þetta er
með meira móti. Í því felast engar
ýkjur,“ segir Magnús Pétursson
ríkissáttasemjari.
Annríkið í gerð kjarasamninga
helgaðist af því að stutt leið á milli
þess að samningar á bæði almenna
og opinbera markaðnum runnu út.
Samningur var gerður fyrir veru-
lega stóran hluta almenna mark-
aðarins 21. desember en aðeins
hluti þeirra félaga sem áttu aðild
að honum samþykkti hann. Jan-
úarmánuður var afar annasamur
þegar reynt var að semja að nýju
fyrir þessi félög og beint í kjölfarið
tóku við viðræður á opinbera mark-
aðnum. Deilumálunum er nú farið
að fækka en á meðal þeirra sem
enn eiga eftir að semja eru leik-
skólakennarar, flugvirkjar og
skólastjórnendur í grunnskólunum.
99% með nýja samninga
Gengið hefur verið frá hátt í 150 kjarasamningum Langflestir innan þess
ramma sem lagt var upp með, segir framkvæmdastjóri SA 52 sáttamál skráð
Vaxtalaus lán eru
ekki ókeypis og það
getur borgað sig fyr-
ir neytendur að
freista þess að fá yf-
irdráttarlán frekar
en að skipta
greiðslum á kreditkort. Ekki er þó
hlaupið að því að bera saman ólík
neytendalán þar sem kostnaður
kemur ýmist fram sem vextir, lán-
tökugjald, greiðslugjald eða blanda
af þessu öllu.
Ný lög um neytendalán áttu að
tryggja bætta upplýsingagjöf til
neytenda um kostnað við lántöku,
en Neytendastofa fékk ekkert fé til
að fylgja löggjöfinni eftir. Margt er
óljóst og stofnunin fær fjölda fyrir-
spurna frá lánveitendum um hvern-
ig eigi að birta neytendum lögboðn-
ar upplýsingar. Sunnudagsblaðið
gerði samanburð á ólíkum neyt-
endalánum.
Óljósir lánakostir
Fyrstu fimm mán-
uði ársins hefur sala
neftóbaks aukist um
tæp 37%. Þá hefur
sala vindlinga aukist
um sex prósent en
undir þann flokk
falla sígarettur.
Sömuleiðis hefur sala reyktóbaks
aukist um þrjú prósent. Viðar Jens-
son, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá
embætti landlæknis, segist vilja
taka þessum tölum með fyrirvara.
„Þessar nýju tölur hafa vakið at-
hygli okkar en þó viljum við helst
sjá tölur fyrir lengra tímabil áður
en við förum að bregðast við. Þetta
er þó úr takti við þróun síðustu ára
þar sem reykingar hafa farið
minnkandi,“ segir Viðar. »12
Aukin sala á tóbaki
það sem af er ári
Þétt umferð var út úr höfuðborg-
inni í gær við upphaf fyrstu stóru
ferðahelgar sumarsins. Veðurspáin
er góð og frídagur er á mánudag
svo margir nýttu tækifærið til að
bregða sér út úr bænum í sumar-
bústað eða útilegu.
Að sögn lögreglunnar bæði á Sel-
fossi og í Borgarnesi virtust margir
hafa tekið forskot á sæluna því um-
ferðin byrjaði að þyngjast í um-
dæmum þeirra þegar upp úr há-
degi.
Þrátt fyrir að margir hafi verið á
ferðinni á þjóðveginum gekk um-
ferðin að mestu án óhappa. Eitt
minniháttar óhapp varð í umdæmi
lögreglunnar í Borgarnesi og þá
voru fimm ökumenn stöðvaðir
vegna hraðaksturs.
Morgunblaðið/Ómar
Ferðalag Talsverð umferð var eftir Vest-
urlandsvegi um kvöldmatarleytið í gær.
Fyrsta ferðahelgin
fór vel af stað