Morgunblaðið - 07.06.2014, Qupperneq 6
SVIÐSLJÓS
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Mikið mannlíf var í miðbæ Reykja-
víkur í gær en þangað streymdi fólk
á öllum aldri til að njóta veðurblíð-
unnar, en hitinn var í kringum 13-14
gráðurnar í Reykjavík. Auðséð var
á borgarbúum að þetta sólríka veð-
ur hafi glatt þá en sumarið fer mun
betur af stað í ár en í fyrra. Met var
slegið í júní í fyrra, sólarstundir
höfðu ekki mælst jafn fáar í Reykja-
vík síðan árið 1995. Sólarstundir
voru ekki nema 121,7 í júní 2013 og
var það 90 stundum undir meðaltali
síðustu 10 júnímánaða þar áður, eða
frá árunum 2003–2012. Úrkoma í
júní í fyrra var 30 prósentum yfir
meðallagi og höfðu úrkomudagar í
Reykjavík ekki verið jafn margir
síðan árið 2003, líkt og fram kemur
á heimasíðu Veðurstofu Íslands.
Mikið var um að vera í gær. Tóm-
bóla, útimarkaður með handverk og
tónleikar á Ingólfstorgi með hljóm-
sveitinni White signal var meðal
þess sem gestir miðborgarinnar
gátu notið í gær.
Nóg að gera í veitingarekstri
Kaffihús borgarinnar voru full út
að dyrum og voru veitingamenn
mjög ánægðir með þetta sólríka
veður.
„Sumarið fer frábærlega af stað,“
segir Brynjar Eymundsson, sem
rekur veitingastaðinn Höfnina við
gömlu höfnina í Reykjavík en þar
var margt um manninn í hádeginu
en margir veitingamenn fundu veru-
lega fyrir skorti á sólskini síðasta
sumar sem kom niður á rekstrinum.
Brynjar segir sumarið fara mun
betur af stað en síðasta sumar og að
hann sé bjartsýnn á að veðrið verði
gott í sumar.
Starfsfólk í ísbúðum landsins
höfðu einnig í nógu að snúast í gær
þegar afgreiða þurfti fjölda ísþyrsta
Íslendinga.
„Það er búið að vera nóg að gera,
við erum búin að vera á haus,“ segir
Karen Ósk Pétursdóttir, en hún
starfar í ísbúðinni Valdís. Hún segir
sorbe-ís, ís sem inniheldur enga
mjólk, vinsælasta ísinn á dögum
sem þessum og þá sérstaklega þann
með sítrónubragði.
Aukning í reiðhjólasölu
„Það var aukning í hjólasölunni
hjá okkur í dag og í gær, en maí
kom einnig mjög vel út, talsverð
aukning frá því í fyrra,“ segir Jón
Þór Skaftason, verslunarstjóri í
Erninum. Hann segir vont veður
síðasta sumar ekki hafa haft mikil
áhrif á þá en telur það hafa bitnað á
nokkrum aðilum innan geirans og
að margir hafi haft miklar vænt-
ingar síðasta sumar. Hann telur
ýmsar ástæður liggja að baki auk-
inni sölu á reiðhjólum en segir að
margir Íslendingar líti á reiðhjól
sem raunhæfan valkost þegar kem-
ur að fararskjóta. „Svo keppa núna
fleiri í þessu, þetta spilar allt sam-
an,“ segir Jón.
Sól og blíða í höfuðborginni
„Sumarið fer mun betur af stað í ár en í fyrra,“ segir Brynjar Eymundsson, matreiðslumeistari
Tombóla, útimarkaður og tónleikar í blíðskaparveðrinu í miðbæ höfuðborgarinnar í gærdag
Tónleikar Fjöldi fólks hlustaði á tónleika á Ingólfstorgi en hljómsveitin White signal nýtti góða veðrið undir tónleikahald við mikla kátínu viðstaddra.
Ánægður Brynjar Eymundsson, sem rekur veitingastaðinn Höfnina, segir
sumarið fara mun betur af stað í ár en í fyrra og var að vonum ánægður.
Morgunblaðið/Þórður
Tombóla Vinkonurnar Bahía og Camilla héldu tombólu á Laugaveginum.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014
Sumarkort á
16.900.-
Gildir til 1. sept. 2014
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Sumartilboð
Komdu í gott
form í sumar
Persónulegt þjónusta og vinalegt umhverfi
Margir nýttu góða veðrið í gær til sundferða. Sundlaug
Seltjarnarness var þétt setin þegar ljósmyndara Morg-
unblaðsins bar að garði.
Á höfuðborgarsvæðinu eru samtals 17 sundlaugar
sem búast má við að verði vel nýttar í dag og á morgun,
en samkvæmt veðurfræðingi hjá Veðurstofu Íslands á
sólin að skína hátt á lofti um land allt um helgina. Á
myndinni má sjá íbúa Seltjarnarness og aðra gesti
sundlaugarinnar njóta sólarinnar í gær. Armkútarnir
hafa nú fengið nýtt hlutverk í lauginni en kútarnir
virðast auka þægindi sundlaugargesta til muna á góð-
um sumardögum sem þessum.
Morgunblaðið/Þórður
Sundgestir baða sig í sólinni í sundlauginni á Seltjarnarnesi