Morgunblaðið - 07.06.2014, Síða 12

Morgunblaðið - 07.06.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014 ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 Nýr útsölu- bæklingur á www.ILVA.is Lokað hvítasunnudagOpið annan í hvítasunnu 12-18 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Friðrik Friðriksson, framkvæmda- stjóri Skjásins, segir að rangfærslur séu í yfirlýsingu sem Ríkisútvarpið sendi frá sé í gær í kjölfar fréttar í Morgunblaðinu í gær þar sem Frið- rik gagnrýndi beiðni RÚV og 365 miðla til norrænna sjónvarpsstöðva að þær myndu loka fyrir útsendingar af leikjum á HM í knattspyrnu sem nást á Skjá Heimi og Fjölvarpi Stöðvar 2. Í yfirlýsingu RÚV kemur m.a. fram að fyrirkomulagið í ár sé sambærilegt við það sem tíðkast hef- ur áður, t.a.m. á HM 2010 sem RÚV hafði sýn- ingaréttinn á og áframseldi 18 leiki til 365. Þá segir í yfirlýsing- unni að það komi á óvart að Skjár- inn hafi auglýst að leikirnir myndu verða á dagskrá á erlendu stöðvunum í ljósi þess að RÚV hefur sýningarrétt af leikjunum hér á landi. „Það kom stuttur moli um þetta á bls. 60 í Fréttatímanum frá síðustu viku um að norrænu stöð- irnar verða með leikina í boði. Þá kemur þetta fram á heimasíðu okkar á síðu 2. Þetta kallar RÚV auglýs- ingaherferð. Það er ekkert nema út- úrsnúningar. En það sem er ennþá óþægilegra fyrir RÚV er að þeir segja að fyrirkomulagið sé það sama og árið 2010. Undirliggjandi er sú söguskýring að lokað hafi verið fyrir útsendingar á norrænu stöðvunum þá, en þetta er ekki rétt,“ segir Frið- rik. Hann segir að í eina skiptið þar sem lokað var fyrir útsendingarnar hafi verið árið 2002 þegar HM fór fram í Japan og Suður-Kóreu en þá var Stöð 2 með sýningarréttinn. Hann hvetur RÚV og 365 miðla til að endurskoða afstöðu sína. „Að þessi fyrirtæki geri það sem er rétt í mál- inu og dragi til baka beiðni um lok- anir,“ segir Friðrik. Þá kom fram í yfirlýsingu RÚV að Skjánum hafi verið boðið að kaupa sýningarrétt af þeim 18 leikjum sem verða í sýningu á Stöð 2. „Það kemur málinu ekkert við og RÚV hefur ótví- rætt rétt á því að bjóða leikina út. Svo geta menn haft skoðun á því hvort sú ákvörðun hafi verið rétt,“ segir Friðrik. Endurskoði afstöðu sína  Framkvæmdastjóri Skjásins segir rangfærslur í yfirlýsingu RÚV  Ekki ver- ið lokað fyrir útsendingar síðan árið 2002  RÚV í fullum rétti að efna til útboðs Friðrik Friðriksson Sjö sóttu um embætti prests í Dalvíkur- prestakalli, með aðsetri á Möðruvöllum. Umsækjendur- nir eru: Elín Salóme Guð- mundsdóttir, Elvar Ingi- mundarson, Eva Björk Valdimarsdóttir, Karl V. Matthíasson, Oddur Bjarni Þorkels- son, Salvar Geir Guðgeirsson og Viðar Stefánsson. Frestur til að sækja um embættið rann út 3. júní. Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Emb- ættið verður veitt frá 1. júlí 2014, að því er segir í frétt á vef Hörg- ársveitar. Sjö sóttu um prestsembætti Andri Karl andri@mbl.is Lögmaður Hreiðars Más Sigurðs- sonar kærði í fyrra rannsóknarað- gerðir sérstaks saksóknara til ríkis- saksóknara, þ.e. hlerun og geymslu samtala á milli hans og Hreiðars. Saksóknari hélt því fram að um mis- gáning hafi verið að ræða og tók rík- issaksóknari það gott og gilt, án frek- ari rannsóknar. Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum lét fjölskipaður Héraðsdóm- ur Reykjavíkur þess getið í niður- stöðukafla dóms í Imon-málinu svonefnda að rannsóknaraðgerðir sérstaks saksóknara, eins og að þeim var staðið, fælu í sér brot gegn til- teknum ákvæðum laga um meðferð sakamála. Brotin fólust í því að hlust- að var á símtöl sakborninga og verj- enda þeirra og upptökum símtal- anna ekki fargað. Eins og fram kemur í máli Sigurð- ar G. Guðjónssonar, verjanda Sigur- jóns Þ. Árnasonar í Imon-málinu, snertir þetta marga lögmenn og oft hafi verið kvartað yfir rannsóknarað- gerðum sérstaks saksóknara hvað þessi atriði varðar. Tilviljun að upp komst Einn þeirra sem ekki aðeins kvart- aði heldur kærði símhleranir sér- staks saksóknara til ríkissaksóknara er Hörður Felix Harðarson, lögmað- ur Hreiðars Más Sigurðssonar. Hann segist hafa komist að því fyrir tilviljun að samtöl hans og Hreiðars voru hleruð og vistuð hjá sérstökum saksóknara. Hann fékk það síðar staðfest hjá embættinu að þetta hefði verið gert en sérstakur saksóknari bar við að um mistök hefði verið að ræða. Rík- issaksóknari tók þær skýringar góð- ar og gildar og taldi ekki ástæðu til að halda áfram með málið. Hörður segir það sérstakt enda séu brot af þessu tagi refsiverð þótt þau séu framin af gáleysi. Um er að ræða brot gegn réttindum sem varin eru af stjórnarskrá og ákvæðum mannrétt- indasáttmála Evrópu. Mat skýringarnar fullnægjandi Í bréfi sérstaks saksóknara til Harðar og ríkissaksóknara segir orð- rétt: „Skýringin á því hvers vegna umræddum símtölum var ekki eytt á réttum tíma eru eftirfarandi: Þau símtöl sem hlustuð voru á umrædd- um tíma voru tekin upp með aðstoð tölvurannsóknardeildar Lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Þau voru síðan hlustuð af rannsakendum málsins sem skráðu niður í stuttu máli í sérgreint ritvinnsluskjal það sem þeim þótti skipta máli og tengj- ast rannsókn viðkomandi mála jafn- óðum og þeir fóru yfir símtölin. Brýnt var fyrir þeim að hætta að hlusta á símtöl þegar í ljós kæmi að sakborningur væri að ræða við verj- anda sinn og skrá þá alls ekki niður í viðkomandi skjal það sem fram hefði komið í símtalinu áður en það varð ljóst. Einhver þeirra starfsmanna sem skráði niður símtölin með þessum hætti virðist hins vegar hafa gert þau mistök að geta alls ekki um þessi símtöl í því minnisblaði sem útbúið var vegna hlustunarinnar. Leiddi það til þess að þegar útbúinn var listi í kjölfarið um hvaða símtölum skyldi eyða voru þessi símtöl ekki á listan- um.“ Sérstakur saksóknari tekur sér- staklega fram að aldrei hafi verið hlustað á þessi símtöl við rannsókn málanna, þannig að trúnaður hafi verið virtur. Niðurstaða ríkissaksóknara var að hætta rannsókninni. Í stuttu bréfi til Harðar segir: „Ríkissaksóknari met- ur þær skýringar fullnægjandi. Að því virtu þykja ekki efni til frekari rannsóknar á ætluðum brotum starfsmanna sérstaks saksóknara.“ Ekki einstakt tilvik heldur kerf- isbundin framkvæmd Hörður segir að umfjöllunin um þetta efni í Imon-málinu bendi ein- dregið til þess að ekki hafi verið um nein mistök eða einstakt tilvik að ræða. „Þetta ber öll merki þess að um kerfisbundna framkvæmd hafi verið að ræða,“ segir Hörður og bæt- ir við að kæra hans fái annað vægi þegar dómstóll hefur beint kastljós- inu að þessu og staðfest sem er, að um sé að ræða klárt brot gegn lögum. Hreiðar Már var dæmdur í svo- nefndu Al-Thani-máli og segir Hörð- ur Felix að bent hafi verið á sömu at- riði og í Imon-málinu við meðferð þess fyrir dómi. Engu að síður hafi fjölskipaður dómur í Al-Thani-mál- inu ekki séð ástæðu til að skoða þetta sérstaklega. Hins vegar hafi verið fundið að því að verjendur höfðu samband við vitni við undirbúning aðalmeðferðar, þótt engin réttar- regla sé til sem banni slík samskipti. „Þetta skýtur dálítið skökku við, svo ekki sé meira sagt,“ segir Hörður. Grundvallarréttindi Um afleiðingu þess að saksóknari hafi brotið gegn reglum með þessum hætti segir Hörður: „Dómstólar hér á landi hafa verið tregir til að vísa málum frá vegna annmarka á rann- sókn. Hér er hins vegar um að ræða slík grundvallarréttindi sakborninga að það er óhugsandi að brot af þessu tagi hafi engar afleiðingar. Sú staða er með öllu ótæk að lögregla getið tekið upp samtal sakbornings og verjanda hans við rannsókn máls og borið því við eftir á að um einhvers konar mistök hafi verið að ræða. Þetta hefur sýnilega verið fram- kvæmdin við rannsókn margra mála og það sannfærir mig enginn um að ekki hafi verið hlustað á þessi sím- töl,“ segir hann. Ekki hefur náðst í Ólaf Þór Hauks- son, sérstakan saksóknara. Kerfisbundin „mistök“ sérstaks saksóknara  Ríkissaksóknari ákvað að aðhafast ekki vegna hlerana á samtölum við lögmenn  Engin athugasemd í Al Thani-máli Morgunblaðið/Þórður Í dómssal Verjendur gagnrýna rannsóknaraðferðir sérstaks saksóknara. „Við höfum verið að ræða þetta lög- menn sem voru hleraðir og það á eftir að skoða þetta betur og nákvæmlega,“ segir Sigurður G. Guðjónsson, lög- maður, um þá staðhæfingu dómara í Imon-málinu að sérstakur saksóknari hafi brotið lög þegar hlustað var á sím- töl sakborninga og verjenda þeirra og þegar upptökum símtalanna var ekki fargað. Í dómnum segir að við rann- sókn málsins hafi embætti sérstaks saksóknara fengið heimild með dóms- úrskurði til að hlusta á og taka upp símtöl ákærðu á tímabili í janúar og febrúar 2011. „Fram er komið að þeg- ar ákærðu og verjendur þeirra fengu aðgang að upptökum vegna símhlust- ana, eftir að ákæra hafði verið gefin út, var þar að finna upptökur símtala sem ákærðu Sigurjón og Sigríður Elín höfðu átt við verjendur sína vegna rannsóknar málsins.“ Sigurður og Helga Melkorka Ótt- arsdóttir, sem einnig sinnti verjenda- störfum í Imon-málinu, gerðu at- hugasemd við rannsóknaraðgerðir sérstaks saksóknara í greinargerðum sínum og við munnlegan málflutning við aðalmeðferð málsins. Fjölskip- aður dómur féllst á röksemdir þeirra og lét þess sérstaklega getið í dómn- um. Rannsóknaraðgerðir sem þessar einskorðast ekki við Imon-málið og segir Sigurður að þetta snerti ansi marga lögmenn og oftsinnis hafi verið kvartað yfir þessu. Þess vegna sé mjög gott að fá þetta fram í dómnum. Nú verði þeir lögmenn sem þetta snertir að ráða ráðum sínum áður en næstu skref verða tekin. „Það er ljóst að þetta eru alvarleg brot.“ Margra ára símtalaskrár Annað atriði hefur einnig komið í ljós við meðferð hinna svokölluðu hrunmála fyrir dómstólum en það eru símtalaskrár sem sérstakur saksókn- ari aflaði hjá símafyrirtækjum. Sig- urður segir að þau nái mörg ár aftur í tímann en hefði samkvæmt lögum átt að eyða þegar þau voru sex mánaða gömul. Sigurður segir að sérstakur saksóknari hafi m.a. byggt á þessum gögnum máli sínu til stuðnings. Í janúar síðastliðnum sendi Voda- fone frá sér yfirlýsingu vegna þess að fyrirtækið veitti lögreglu upplýsingar um símnotkun einstaklings sem var til rannsóknar hjá lögreglu. Beiðni lögreglu var send árið 2012 en upp- lýsingarnar vörðuðu símtöl á árinu 2007. Þeim hefði því með réttu átt að hafa verið eytt fimm og hálfu ári áður en beiðnin barst. Í dómnum er vísað til 1. mgr. 36. gr. laga um meðferð sakamála. Þar segir: „Verjanda er heimilt að tala einslega við skjólstæðing sinn um hvaðeina sem málið varðar.“ Því næst segir í dómnum: „[B]ar rannsakanda að láta af símhlustun og stöðva upp- töku þegar ljóst var að um var að ræða samtal milli ákærðu og verj- enda þeirra.“ „Þetta eru al- varleg brot“  Ólöglegar hleranir í fleiri málum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.