Morgunblaðið - 07.06.2014, Side 25

Morgunblaðið - 07.06.2014, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014 Vinnuskúr til sölu „KAFFIHÚSIГ • Einangaður og klæddur að innan. • Dúkur á gólfum • Ofnar, hitaveitugrind og rafmagnstafla • Eldhús með vaski og ískáp • Salernisaðstaða og handlaug • Geymsla • Stærð: 21 m2 - 6m x 3.55m Húsið er hefur verið notað sem vinnuskúr og er í mjög góðu ástandi. Auðvelt er að breyta því í gestahús, sumarhús eða hnakkageymslu fyrir hestaleigu. Verðhugmynd kr. 1.990.000 eða hæsta tilboð. Uppl í síma 6988000. Húsið er í Garðabæ. Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland *Niðurstöður vísindalegra rannsókna (Derma Concept GmbH) Þéttleiki húðarinnar jókst um 35% eftir 28 daga notkun með Birki Cellolite olíunni og Birkisafanum og mýkt húðarinnar varð 21% meiri. Meðhöndlaðu appelsínuhúðina heildrænt Að innan frá með Birkisafanum og utanfrá með Birki Scrub og Birki Cellolite olíunni Birki Cellolite olían hjálpar til við að draga úr og koma í veg fyrir appelsínuhúð* - í samhljómi við mann og náttúru, www.weleda.is Útsölustaðir Weleda er heilsuverslanir og apótek. Sigur Guðmundar Kjartanssonar í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands sem lauk um síðustu helgi virtist kom sumum á óvart, einkum þeim sem horfa á elo-stig sem nánast óbrigðulan mælikvarða. Þeir sem hafa verið að fylgjast með Guðmundi undanfarin misseri vita að hann má vera hagsýnni í ákvörðunum. Þar hefur hann enn verk að vinna en á Íslandsmótinu voru þessir þættir ekki vandamál. Guðmundur tefldi best allra og sigurinn var sanngjarn og hefði getað orðið stærri; í loka- umferðinni var hann peði yfir í enda- tafli og hafði allar forsendur til að halda áfram skákinni við Hjörvar Stein Grétarsson. En með jafntefli sló hann tvær flugur í einu höggi; varð Íslandsmeistari og samhliða datt inn áfangi að stórmeistaratitli. Lokastaðan var þessi: 1. Guðmundur Kjartansson 6 ½ v. (af 9) 2.-3. Héðinn Steingrímsson og Hannes Hlífar Stefánsson 5 ½ v. 4. – 5. Þröstur Þórhallsson og Henrik Danielsen 5 v. 6. Hjörvar Steinn Grétarsson 7. Helgi Áss Grétarsson 5 v. 8. – 9. Bragi Þorfinnsson og Ein- ar Hjalti Jensson 3 ½ v. 10. Guð- mundur Gíslason 2 v. Henrik Danielsen tefldi betur en vinningatalan segir til um. Hannes og Héðinn reyna of oft að fá vinn- inga úr stöðum sem „tefla sig sjálf- ar“. Stundum gengur það upp; Einar Hjalti rataði í stöðu gegn Hannesi, sem Bent Larsen fékk upp gegn Jens Enevoldsen árið 1956 eins og „aðvífandi áhorfandi“ á hliðarlínunni var fljótur að benda á. Héðinn Stein- grímsson reif sig upp um miðbik móts og átti góða möguleika á Ís- landsmeistaratitlinum en tapaði fyr- ir Helga Áss í næstsíðustu umferð. Hjörvar Steinn virtist missa móðinn eftir góða byrjun. Íslandsmeistaranum gekk sérlega vel með Hollensku vörnina, vann bæði Braga og Helga Áss. Sigurinn yfir Braga kom á besta tíma: 7. umferð: Bragi Þorfinnsson – Guðmundur Kjartansson Hollensk vörn 1. Rf3 f5 2. d3 Rc6 3. e4 e5 4. exf5 Rf6 5. d4 exd4 6. Rxd4 Rxd4 7. Dxd4 d5 8. Rc3 Bxf5 9. Bg5 Bxc2! Guðmundur mætir hótun um langa hrókun – og eftir atvikum drottningarskák á e5 – með þessu bíræfna „peðsráni“. 10. Kd2?! Ekki var auðvelt að finna góða leiki, t.d. 10. Bxf6 Dxf6! 11. Dxf6 gxf6 12. Rxd5 O-O-O! og hvíta stað- an riðar til falls. 10. … Bg6 11. He1 Kf7 12. Kc1 c6! 13. g4 Db6 14. Df4 Bb4! Svartur er með hartnær unnið tafl eftir aðeins 14 leiki! 15. Bxf6 gxf6 16. He3 Hae8 17. Bd3 Hxe3 18. Bxg6 hxg6 19. fxe3 Dc5 20. Kc2 Dd6 Guðmundur lætur sér nægja betra endatafl peði yfir. Hann gat leikið 20. … g5! 21. Dc7+ Kg6 með vinningsstöðu eða 21. Df3 Bxc3! 22. bxc3 Da3 o.s.frv. 21. h4 Dxf4 22. exf4 He8 23. Kd3 Bd6 24. Re2 He4 25. Hf1 c5 26. b3 b5 27. Rc3 Hd4 28. Kc2 a6 29. Re2 He4 30. Rc3 Hxf4 31. Hxf4 Bxf4 32. Rxd5 Be5 33. Kd3 Ke6 34. Re3 f5 35. gxf5 gxf5 36. a4 f4 ( STÖÐUMYND ) 37. Rg4? Eftir þennan leik knýr Guð- mundur fram sigur. Eina vonin var að skjóta inn 37. axb5 þar sem 37. … fxe3 strandar á 38. bxa6 Bb8 39. Kxe3 og hvítur heldur jafntefli. En eftir 37. … axb5 ætti svartur að vinna. 37. … c4+! 38. bxc4 bxa4 Með frípeð sitt á hvorum vængn- um er eftirleikurinn auðveldur. 39. Kc2 f3 40. h5 Bd4 41. h6 f2 42. Rxf2 Bxf2 43. Kb2 Kf7 44. Ka3 Kg6 45. Kxa4 Bb6 46. c5 Bd8 47. Kb4 Kxh6 48. Kc4 Kg6 49. Kd5 a5 50. c6 Bc7 - og Bragi gafst upp. Verðskuldað- ur sigur Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ég hafði verið við nám í Noregi á þriðja ár og fannst tilvalið að drífa mig heim til að afla fjár til að ljúka náminu því vel veiddist. Mér bauðst háseta- pláss á nýjum bát sem kom til Vestmannaeyja 10. mars 1964. Ég hafði komið heim hálfum mánuði fyrr og farið sex róðra á netabátum frá Hafnarfirði og veiddust um 60 tonn af þorski á meðan beðið var komu Hugins II VE55 en skipstjóri var Guðmundur Ingi Guðmundsson. Nokkrir dagar fóru í að gera klárt fyrir netavertíð og greiða niður sjötrossur með 15 netum í hverri úr garni nr. 15 og 32-36 möskvar á dýpt. Þrír faðmar voru milli steypusteina og einn faðmur milli plasthringja sem voru flotin í stað glerkúlna og sögð þola 90 faðma dýpi án þess að leggjast saman. Voru trossurnar svo lagðar í sjó 15. mars og tveimur bætt við næstu tvo daga. Sjaldan var lagt dýpra en á 60 faðma dýpi og algjör lúxus að draga miðað við vertíðina 1961 en þá var ég stýri- maður á Bjarna Ólafssyni SH frá Ólafsvík með Leifi Halldórssyni skip- stjóra og vorum með netadræsurnar í Kolluál undan Hellissandi á vel tvö- falt meira dýpi og í sterkum straumi. Það tók því tvöfalt lengri tíma að af- greiða trossuna þarna. Þá voru þorsk- arnir stærri á Selvogsbanka eða 120- 130 stk. í tonnið en 170-180 fyrir vest- an (göngur frá Grænlandi). Annað var öðruvísi í Eyjum en það var að á dekki var skipt um starfshlutverk við hverja trossu enda mannskapurinn þaulvanur. Huginn var 220 tonna stál- skip en Bjarni Ólafsson 27 tonna tré- bátur en 10 manns voru í áhöfn beggja bátanna á netaveiðum. Vetr- arvertíðin 1961 í Ólafsvík hófst að venju í janúarbyrjun með línuveiðum og síðan netaveiðum seinni helming vertíðar sem lauk svo 17. maí og urðu aflabrögðin 798 tonn óslægður og mestmegnis þorskur í 96 róðrum. Há- setahlutur var 58.000 kr. Vertíðarlok voru yfirleitt kringum lokadaginn 11. maí, fyrr í Eyjum en seinna fyrir vestan og réðist það af aflabrögðum hvenær tekið var upp og hætt. Við á Hugin byrj- uðum úthaldið vestur á Selvogsbanka en þar var mikið um ufsa í mars ár hvert. Netin voru lögð á hraunin und- ir góða veðurspá en milli þeirra undir bræluspá. Verið var stundum al- veg suður undir landhelgislínu (þá 12 mílur) en þar fyrir utan voru þó nokkrir síðutogarar að veiðum. Var gott að draga netin þarna í SA- og A- áttum. Bestu róðrana fengum við 23. mars, 40 tonn ufsa úr átta trossum, en 38,5 tonn af ufsa sem náðust úr sex trossum þann 8. apríl í mikilli brælu. Við vorum svo með netin eftir það í austur frá Surtsey sem var að mynd- ast um þetta leyti. Netin voru svo tek- in upp 20. apríl en þá voru 10 trossur í sjó. Aflinn var orðinn 680 tonn óslægður fiskur, þar af 160-170 tonn ufsi en restin þorskur. Meðalafli var um 23 tonn á róður og þótti mjög gott. Nokkrir bátar voru að kasta nót á þorsktorfur og öfluðu vel. Alls tóku sjö bátar nót í Eyjum til að veiða þorsk. Útgerð Hugins átti ekki þorsknót svo tekin var um borð síld- arnót og botnkastað undan sönd- unum á þorsktorfur fyrir innan Eyjar og Þrídranga og fengust 220 tonn til 1. maí en þá var hætt veiðum. Mest fengust 70 tonn í einum róðri í nótina. Sumir þorskanna sem fengust í nótina voru gífurlega stórir (2-3 m langir) og ekki vinsælir til verkunar. Fiskurinn laus í sér og vatnsmikill. Fóru því„aularnir“ í saltverkun. Þorskanetin festu sjaldan svona stór- an fisk og svo hitt að smáfiskurinn syndir oftast í gegn án þess að fest- ast. Netin virkuðu því eins og sía á stærðina og réð möskvastærðin því. Góð netaveiði og páskahrotur höfðu verið árvissar í Eyjum það sem af var 20. öldinni en verið var að veiða þorskinn á hrygningartíma í netin. Aflahæstir báta á þessari vertíð sem veiddu með netum og nót voru Ófeig- ur II VE með 1.283 tonn og Bergur VE með 1.267 tonn. Af bátum sem veiddu hefðbundið með línu fyrst og svo netum var Stígandi VE með 1.199 tonn og Leo VE 1.180 tonn. Alls voru 46 vertíðarbátar frá Eyjum með yfir 800 tonn upp úr sjó.Við á Hugin II máttum vel við una með okkar 900 tonn á aðeins einum og hálfum mánuði á vetrarvertíð sem tók annars um fjóra mánuði. Háseta- hlutur varð 85.000 kr. en dollarinn var þá um 43 kr. og norska krónan um 6 kr. Fæði kostaði um 3.000 kr á mánuði. Þá voru gjaldeyrishöft og fengust yfirfærðar 700 norskar kr. til að standa straum að náminu á mán- uði. Á þessari vetrarvertíð komu á land í Vestmannaeyjum um 80.000 tonn botnfisks (í ár 2014 rúm 21.000 tonn botnfisks aðallega veiddur á línu, í net og botnvörpu), en heildar- aflinn á landinu öllu á sama tíma varð 345.000 tonn og var það fjórðungi meira en árið áður. Af þessu voru 65.000 tonn síld en árið áður 76.000 tonn og því aukningin í heildarafla svo til öll þorskur. Á sama tíma var togaraaflinn á landinu aðeins 22.000 tonn af slægðum botnfiski. Vetr- arvertíðin 1964 varð sú besta sunn- anlands það sem af var 20. öldinni og í Eyjum betri en árið 1958 sem var sú besta hingað til. Hins vegar var treg veiði við Faxaflóa 1964 og hafði ég því verið heldur betur heppinn með val mitt á verstöð. Á vetrarvertíð í Eyjum fyrir hálfri öld Eftir Pálma Stefánsson »Hásetahlutur var 58.000 kr. Vertíð- arlok voru yfirleitt kringum lokadaginn 11. maí, fyrr í Eyjum en seinna fyrir vestan og réðist það af aflabrögð- um hvenær tekið var upp og hætt. Pálmi Stefánsson Höfundur er efnaverkfræðingur. Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.