Morgunblaðið - 07.06.2014, Page 39

Morgunblaðið - 07.06.2014, Page 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014 ings á þessari tegund listar. Sökum þessa fannst okkur spennandi að hafa mikinn fjölda verka til að geta sýnt fjölbreytileikann og þá miklu grósku sem ríkir hérlendis,“ segir Katrín og viðurkennir fúslega að þar sem verkin séu á þriðja hundrað hangi þau víða þröngt. „En við leyf- um þeim auðvitað að njóta sín, enda erum við með frábært upphengi- teymi hér á safninu.“ Í samtali við Morgunblaðið leggur Katrín áherslu á að verkin á sýning- unni séu portrett í víðum skilningi. „Þetta er ekki hefðbundið portrett eins og við þekkjum frá 19. og 20. öld þar sem þekktir einstaklingar eru mærðir. Hér er allur skalinn og allir miðlar undir,“ segir Katrín og bendir á að á sýningunni megi m.a. sjá olíumálverk, tússteikningar, víd- eóverk, klippiverk, dauðagrímur, höggmyndir og ljósmyndir. „Mann- eskjan sem slík höfðar ávallt sterkt til listamanna og ég fagna því alltaf að sjá manneskjuna í myndlist.“ Spurð hvort áður ósýnd verk verði á sýningunni jánkar Katrín því og bendir á að verk a.m.k. tylftar listamanna á sýningunni hafi ekki komið fyrir sjónir almennings áður. Meðal þeirra listamanna og listhópa sem verk eiga á sýningunni má nefna Erró, Gjörningaklúbbinn, Ragnar Kjartansson, Hallgrím Helgason, Steinunni Þórarinsdóttur, Hugleik Dagsson, Aðalheiði S. Ey- steinsdóttur, Ólöfu Nordal, Helga Þorgils Friðjónsson, Libiu Castro og Ólaf Ólafsson, Kristin Ingvars- son, Spessa, Stephen Lárus Stephen og Kristínu Gunnlaugsdóttur. Þess má að lokum geta að sýn- ingin stendur til 17. ágúst og er opin alla daga nema mánudaga milli kl. 10 og 17. Aðgangur er ókeypis.Kristur Descent from the Cross nefnist verk eftir Vytautas Narbutas frá 2008. Tilbúnar Olíumálverkið All dressed up, with nowhere to go eftir Söru og Svanhildi Vilbergsdætur frá árinu 2011. Í grein sem birtist í gær í Morgunblaðinu og fjallaði um tökur á bandarísku kvikmynd- inni Autumn Lights hér á landi var rang- lega farið með nafn leikkonunnar Þor- bjargar Helgu Þorgils- dóttur sem fer með lít- ið hlutverk í myndinni. Var hún sögð Þóra Björg Helgadóttir og er hún beðin velvirð- ingar á þessum mis- tökum. Þorbjörg Helga varð Þóra Ekki Þóra Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir leikkona. LEIÐRÉTT Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið) Lau 7/6 kl. 20:00 lokas Síðustu sýningar BLAM (Stóra sviðið) Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar! Ferjan (Litla sviðið) Lau 7/6 kl. 20:00 37.k Fim 12/6 kl. 20:00 Mið 11/6 kl. 20:00 38.k Fös 13/6 kl. 20:00 Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar BLAM! - síðasti séns að næla sér í miða AÐGANGUR ÓKEYPIS STJÖRNUBLIK Á NÆTURHIMNI GOUNOD - THOMAS SAINT-SAËNS - VERDI HÁDEGISTÓNLEIKAR Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU ÞRIÐJUDAGINN 10. JÚNÍ KL.12:15 HÖRN HRAFNSDÓTTIR MEZZÓSÓPRAN ANTONÍA HEVESI PÍANÓ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.