Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Blaðsíða 41
15.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
É
g veit ekki á hvaða stað maður er kominn í lífinu þegar mann er
farið að langa í allt frá franska tískuhúsinu Hermés. Ekki bara
skartið og töskurnar heldur líka slæðusafnið, hestadótið og stell-
ið. Mögulega er þetta að segja mér að sporunum í þjónustuíbúð-
ina sé að fækka … og ég sé að verða að kerlingu.
Í Frakklandi hefur Hermés þótt með því fínasta sem hægt er að eiga.
Það þykir álíka fínt og Svenskt Tenn þykir í Svíþjóð enda ekki ósvipað að
labba inn í þessar tvær verslanir. Það hefur lengi verið vitað að það topp-
ar ekkert alvöru Birkin-tösku og svo gerði drottningin Grace Kelly líka
mikið fyrir Hermés enda heitir ein söluhæsta taska fyrirtækisins Kelly, í
höfuðið á henni. Þess má geta að Birkin-taskan
heitir eftir hinni kynþokkafullu Jane Birkin
og kom á markað í kringum 1980.
Á 17 rue de Sévres í Saint Ger-
man-hverfinu í París er svo Her-
més-flaggskipið sjálft til húsa.
Verslunin er risastór og er
hægt að fá allt frá slæðum upp
í hnakka á hestinn í versluninni.
Ég þakkaði bara pent fyrir að
vera ekki í hrossunum því þá ég
hefði ég líklega labbað út með hnakk
eða eitthvað … (alveg í ruglinu).
Það gefur augaleið að eðlileg fjárráð
kalla seint á alklæðnað frá
Hermés og heldur ekki hnakk
á hestinn sinn, en það er ósköp
gaman að heimsækja verslanir
eins og Hermés, klappa öllu
fínerínu og strjúka þótt maður
fari tómhentur heim. Svo er
líka mikil upplifun að fylgjast
með fólki í svona fínum búðum
því fólk verður einhvern veg-
inn vandaðra og sýnir fágaðri
hegðun þegar það er innan um
svona mikið góss. Fólk verður
beint í baki og sýnir á sér sparihliðina. Svo má ekki gleyma því að það
notar enginn útiröddina inni í Hermés-verslun – það er óskrifuð regla.
Fólk mætti svona almennt í lífinu hafa þá hugsun í forgrunni – að vera
vandað. Þá er ég ekki bara að tala um að klæða sig huggulega heldur að
hafa fas sitt og samtal við annað fólk í stíl við
fötin. Sjoppuleg hegðun getur brotist fram
á mismunandi hátt. Það hefur ekkert
með fatastíl eða fjárráð að gera. Hjá
sumum er bara alltaf svolítið stutt í
sjoppuna þrátt fyrir fínan fatasmekk
og þykkt veski.
Á dögunum var ég stödd á veit-
ingastað með fallegu litlu syni mína
þegar ég heyrði tvenn hjón á næsta
borði býsnast yfir því að sturtan
hefði nú ekki virkað á einhverju
agalega fínu skíðahóteli í útlöndum
sem þau hefðu verið gestir á. Ég
hugsaði með mér hvort það væri ekkert
að frétta hjá þessu fólki fyrst það
eyddi sínum dýrmæta tíma í að
tala um þetta á veitingahúsi við
vini sína. En svo skánaði samtalið
bara ekki neitt og fólkið fór að
tala um afmælisveislu sem það
var gestir í nýlega. Það var ekki
ætlunin að sitja á hleri en þar sem
ég sat á næsta borði komst ég
ekki hjá því að heyra hvert orð. Allt í einu áttaði ég mig á því að afmæl-
isboðið sem verið var að ræða var hjá stelpu sem ég hef þekkt síðan ég
var barn. Lýsingin á afmælisbarninu var ekki upp á marga fiska og var
ég rasandi bit yfir því að afmælisbarnið skyldi bjóða svona fólki í afmælið
sitt og flokka það sem vini sína.
Ef fólkið á næsta borði hefði haft vit á því að tala um eitthvað annað
hefði ég ósjálfrátt sett það í Hermés-flokkinn, en því miður sendi sam-
talið það beint í sjoppuflokkinn … Vondu fréttirnir eru þær að þetta á
pottþétt ekki bara við um þessi tvenn hjón – heimurinn er fullur af svona
fólki. martamaria@mbl.is
Armbönd frá Hermés.
Stundum er
bara svo stutt í
sjoppuna
Ég veit ekki um neitt fallegra en
armband frá Hermés.
Victoria
Beckham
er hrifin af
Hermés.
Kim Kardashi-
an með belti
frá Hermés.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
KLASSÍSK ÍSLENSK
GÆÐA ARMBANDSÚR
www.gilbert.is