Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Blaðsíða 53
R
ústirnar af Eden eru ekki lengur
dauflegar á að líta. Þvert á móti
bjóða þær nú þeim sem þar eiga
leið framhjá inn í ævintýraheim
myndlistarmannsins Örvars Ár-
dal Árnasonar, sem vinnur alla daga langt
fram á nótt við að þekja rústirnar með list
sinni.
„Ég hef málað síðan ég var mjög ungur,
kannski tíu eða ellefu ára,“ segir Örvar, sem
haldið hefur fjórtán myndlistarsýningar.
„Hveragerðisbær kom að máli við mig fyrir
nokkru og bað mig að skreyta rústirnar af
Eden. Ég tók vel í það en náði ekki að mála
nema tvo veggi þá. Fyrir stuttu tók ég síðan til
við að klára verkið, sem verður fullunnið í tæka
tíð fyrir sýninguna „Blóm í bæ“ sem haldin
verður hér í Hveragerði seinna í sumar.“
Listaverkin á rústunum eru mjög fjölbreytt
en þar gefur m.a. að líta ýmsar þekktar per-
sónur, jafnt úr þessum heimi sem öðrum. Að-
spurður hvaðan hann fái innblástur segist
hann fyrst og fremst sækja hann til sjálfs sín.
„Ég ákvað strax þegar ég hófst handa við
þetta að mála fyrir sjálfan mig. Það hefur síð-
an viljað svo vel til að flestir aðrir virðast
kunna að meta þetta líka,“ segir Örvar. „Einn
veggur verður tileinkaður íslensku pönki, ég
er búinn að rissa þær myndir upp. Batman er
þarna líka og Gollum úr sögum Tolkiens. Síð-
an verða ýmis þemu hér og þar, t.d. vík-
ingaþema. Upphaflega áttu allar myndirnar
að snúast um Adam og Evu, í tengslum við
Eden, en ég hvarf frá þeirri hugmynd. Þau
eru þó einn hluti verksins og í þeim hluta er
einnig mynd af Braga Einarssyni, sem átti
Eden og lést árið 2006. Þannig vildi ég heiðra
minningu hans.“
Örvar segist mála svo til allt sem komi upp
í kollinn og stundum sjái hann fyrir sér á
hvaða vegg verkin eigi að fara. „Þetta eru
mikið til fantasíumyndir en ekki eingöngu.
Pólitíkin er inni í þessu líka og svo hef ég ver-
ið að prófa þrívíddartækni en þannig hef ég
ekki málað áður. Það verður spennandi að sjá
hvernig þetta endar, ég veit það varla sjálfur
fyrr en verkinu lýkur. Þetta breytist frá degi
til dags. Á einum veggnum eru síðan þrír tón-
listarmenn, Rúnar Júlíusson, Páll Óskar og
Malcolm McLaren. Þessir þrír eiga það sam-
eiginlegt, að mínum dómi, að vera svolítið
öðruvísi en allir hinir. Mér finnst þeir oft ekki
hafa verið metnir til fullnustu,“ segir Örvar.
Hann er uppalinn í Hveragerði, flutti í burtu
en er nýfluttur þangað aftur og segir að sér
líði vel í Eden. „Ég vann í Eden í nokkur ár
og hélt þar sýningu, þannig að ég þekkti stað-
inn vel. Ég vinn að verkunum fram yfir mið-
nætti á hverju kvöldi, nýti birtuna. Hér er
góður andi,“ segir Örvar.
Gollum úr sögum Tolkiens er jafnan súr á svip.
MYNDLISTARMAÐURINN ÖRVAR ÁRDAL ÁRNASON VINNUR LANGT
FRAM Á BJARTAR NÆTUR VIÐ AÐ MÁLA FANTASÍUMYNDIR SÍNAR Á
RÚSTIRNAR AF EDEN Í HVERAGERÐI. HANN ER FÆDDUR Á ÍSAFIRÐI EN
UPPALINN Í HVERAGERÐI OG ÞVÍ EKKI ALLS ÓKUNNUGUR EDEN.
Texti: Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Ljósmyndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is
Ævintýri á rúst-
unum af Eden
Verk Örvars eru pólitísk að nokkru leyti.
Örvar Árdal Árnason við
verk sín í Hveragerði.
Listamaðurinn að störfum.
Rúnar Júlíusson, Páll Óskar og Malcolm McLaren.
* Það verður spenn-andi að sjá hvernigþetta endar, ég veit það
varla sjálfur fyrr en verk-
inu lýkur. Þetta breytist
frá degi til dags.
15.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53