Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Blaðsíða 6
Leiftursókn íslamistahreyfing-arinnar Isis í Írak í liðinniviku hefur komið mörgum í
opna skjöldu. Viðnám yfirvalda í
landinu hefur nánast ekkert verið.
Þegar íslamistarnir tóku Mosul,
næststærstu borg landsins, köst-
uðu hermenn frá sér vopnum og
einkennisbúningum og hurfu á
braut. Talað er um að 30 þúsund
hermenn hafi flúið undan 800 upp-
reisnarmönnum.Talið er að hálf
milljón manna hafi lagt á flótta frá
borginni, flestir í átt til yfirráða-
svæðis kúrda þar sem einna mest
kyrrð hefur ríkt í landinu.
Sveitir kúrda lögðu undir sig
borgina Kirkuk eftir að stjórnar-
herinn yfirgaf hana til að koma í
veg fyrir að hún félli í hendur ísl-
amistanna. Kúrdar hafa löngum
gert tilkall til borgarinnar, sem er
auðug af olíu.
Norðrið stjórnlaust
Stjórnvöld í Bagdad hafa að miklu
leyti misst völdin í norðurhluta
landsins. Markmið Isis er að
stofna íslamskt ríki í Írak, Sýr-
landi og nágrenni. Samtökin eiga
rætur í hryðjuverkasamtökunum
al-Qaeda. Þau hafa þegar náð fót-
festu á löglausum svæðum í Sýr-
landi. Í desember náðu þau borg-
inni Fallujah í Írak á sitt vald.
Bandaríkjaher háði á sínum tíma
mannskæða orrustu um Fallujah
og var mörgum áfall að hún skyldi
falla svo auðveldlega í hendur
öfgamanna á ný.
Liðsmenn Isis eru úr röðum
súnníta. Árangur hreyfingarinnar
má ekki rekja til sigra á vígvell-
inum. Má segja að stjórnarhættir
Nuris al-Malikis, forsætisráðherra
Íraks, eigi að hluta til sök á því
hvað Isis hefur vaxið fiskur um
hrygg. Maliki, sem er sjíti, hefur
sýnt einræðistilburði. Sjítar eru í
meirihluta í Írak og Maliki hefur
útilokað súnníta í stað þess að fá
þá til samstarfs.
Súnnítar hjálpuðu til við að
kveða niður al-Qaeda meðan á her-
námi Bandaríkjamanna stóð og nú
gæti Maliki notað þá sem banda-
menn gegn Isis.
Fjöldi erlendra vígamanna
Hreyfingin Isis hefur innan sinna
raða fjölda erlendra vígamanna,
sem margir hafa mikla reynslu.
Þeir hafa auðgast á mannránum
og fjárkúgun. Í Sýrlandi hafa aðrir
uppreisnarhópar snúist gegn Isis.
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
hefur hins vegar að því er tímarit-
ið The Economist heldur fram
markvisst látið samtökin í friði í
þeirri von að ríki heims myndu
ekki styðja uppreisnarlið með slíka
öfgamenn innan borðs.
Á vef breska ríkisútvarpsins,
BBC, kemur fram að Isis hafi skil-
ið eftir sig blóði drifna slóð. Fólk
sé tekið af lífi án dóms og laga.
Uppreisnarmennirnir munu einnig
hafa látið greipar sópa um banka
borgarinnar og uppskorið fúlgur
fjár. Mörg þúsund manns var
sleppt úr fangelsum borgarinnar.
Ekki einu sinni al-Qaeda styður
Isis. Al-Qaeda telur samtökin of
öfgafull og stofnun ríkis ótíma-
bæra.
Samtökin hafa komið upp æf-
ingabúðum fyrir hryðjuverkamenn
í Sýrlandi, sem sagðar eru minna
á fyrirkomulagið sem Osama bin
Laden var með í Afganistan á sín-
um tíma. Um þessar mundir er
áherslan á að vinna landsvæði í
Leiftursókn
öfgamanna
skekur Írak
SAMTÖKIN ISIS LÖGÐU Í VIKUNNI UNDIR SIG NÆST-
STÆRSTU BORG ÍRAKS. MARGFALT MANNMEIRI ÍRAKSHER
FLÚÐI UNDAN ÞEIM OG HVARF. Í ÍRAK ER HVER HÖNDIN
UPP Á MÓTI ANNARRI OG ÓSTJÓRN HEFUR SKAPAÐ KJÖR-
AÐSTÆÐUR FYRIR ÖFGAHREYFINGAR Á BORÐ VIÐ ISIS.
Vígamaður úr röðum öfgasamtakanna Isis veifar fána eftir að hafa tekið varðstöð Írakshers í héraðinu Salahuddin.
Myndin var birt á vefsíðu íslamista, Welayat Salahuddin. Samtökin náðu næststærstu borg landsins, Mosul.
AFP
Sýrlandi og Írak, en markmiðið er
að breiða út harðlínustefnuna í
Austurlöndum. The Economist
segir að nái samtökin markmiðum
sínum muni sá dagur renna að bú-
ast megi við að útsendarar þeirra
geri sjálfsmorðsárásir í Evrópu og
Bandaríkjunum. Talið er að mörg
hundruð vígamenn úr röðum Isis
kunni að hafa evrópsk vegabréf.
Samtökin ætla nú að sækja að
Bagdad, samkvæmt fréttum. Fé-
lagar í Isis munu ekki vera nema
11.000. Samtökin hafa því ekkert
bolmagn til þess að leggja undir
sig stjórnkerfi alls landsins og lík-
lega verða þau að hörfa aftur frá
borgum á borð við Mosul. Árangur
þeirra sýnir hins vegar hvað Írak
er veikburða ríki. Íranar hafa lýst
yfir að þeir séu tilbúnir til að
brjóta samtökin á bak aftur og
kúrdarnir segjast sömuleiðis reiðu-
búnir til að nota herafla sinn.
Bandaríkjamönnum ættu að vera
hætturnar ljósar. Írak er á barmi
þess að liðast í sundur og í Sýr-
landi við hliðina ríkir glundroði og
upplausn.
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.6. 2014
HEIMURINN
BRASIL
RÍÓ DE J
Heimsmeis
hófst með
Króata. Br b
3-1. Neyma
Brasilíu. Óánægja r
vegna útgjalda til kep
finnst mótmælendum
hefði verið betur var
skóla og heilbrigðis
ÍTALÍA
FENEYJAR FeneyjaorgarstjóriB , sagði
nn laus úr stofufangelsi,eftir að hannaf sér daginn
pillingu í tengslumsóknvegna rannsem hann sat í
til að verja borgina. Hanða, sem reisa ávið nýja flóðga
i í fangelsi. Rannsóknináféllst á að afpl
0 manns.hefur leitt til h
Geun
Suður-Kóreu,
stokkaði upp í stjórn
sinni og skipti út
ráðherrum
hennar va agnrýn
harka
rjufe m tæplega 300
eirram ór hluti þ
nd
ð
jandiu
að
u vegna
y
SÚDAN
r stríðga a i f a Kiir forseti og R
ituðu fr átök, en ólíklegt
lja að þeir geti
jöl
ki
við.
Abu Bakr al-Bagdad er sagður vera maðurinn á
bak við sókn íslamista í norðurhluta Íraks.
Samkvæmt Washington Post fæddist hann í
Samarra og fékk nafnið Awwad Ibrahim Ali al-
Badri al-Sammarrai. Heldur hann því fram að
nafnið beri vitni skyldleika við spámanninn Mú-
hameð.
Í æviskrá frá íslamistum segir að hann sé úr
trúaðri fjölskyldu og hafi margar doktorsgráður.
2003 tók hann til vopna og í innrás Bandaríkja-
manna myndaði hann herskáan hóp í austurhluta
Íraks. Bandaríkjamenn tóku hann til fanga 2005 og héldu honum í
fjögur ár. Hann er einn af stofnendum ISIS.
Abu Bakr
al-Baghdadi
FORKÓLFUR SÓKNAR
* En við skiljum eftir fullvalda, stöðugt og sjálfstætt Írakmeð kjörna stjórn sem hefur verið valin af fólki landsins.Barack Obama Bandaríkjaforseti í ræðu í Fort Bragg í Norður-Karolínu 14. desember
2011 um það leyti sem hann var að kveðja heim síðustu bandarísku hermennina frá Írak.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is