Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Blaðsíða 2
Hvort hentar þér betur að koma fram
á sviði eða á hvíta tjaldinu?
Ég hef verið rosalega mikið á sviðinu og finnst það frábært en miklu
minna á hvíta tjaldinu og hlakka til að kynnast því betur.
Hver er helsti kostur þess að hafa alist upp á Ísafirði?
Tónlistin, frelsið og náttúran. Ég lærði það ung að ekkert er ómögu-
legt. Það er stórhuga fólk sem býr á Ísafirði sem lætur drauma sína
rætast í faðmi fjalla blárra, þrátt fyrir smæð og snjó.
Hvað er það vandræðalegasta sem
hefur hent þig á sviði?
Man ekki eftir neinu stóru sem stendur upp úr. En eitt af því
skemmtilegasta sem leikari lendir í eru litlu óvæntu mómentin
og vandræðin sem skapast við að bjarga því þegar eitthvað fer
öðruvísi en ætlað var.
Nú ertu leik- og söngkona að mennt.
Ertu jafnfær dansari?
Ég get leikið það að ég sé rosalega góður dansari en vonandi tekst mér
að láta ballerínudrauminn rætast í ellinni.
Hvort átt þú auðveldara með að
tjá tilfinningar þínar með söng eða tali?
Ég elska ljóð. Þegar bætist síðan við falleg laglína ofan á fallegt ljóð þá
finnst mér ekkert til í þessum heimi sem getur toppað það. Þess vegna
finnst mér svo gaman að syngja. Í einu sönglagi getur maður sagt svo
mikla sögu og túlkað stórar tilfinningar í aðeins örfáum setningum. Það
eru töfrar!
Hvaða leiksýning er þér minnisstæðust?
Af þeim sýningum sem ég hef tekið þátt í verð ég að segja að ég sé stolt-
ust af Karma fyrir fugla. Hugrökk sýning, unnin af frábærum listamönn-
um.
Eyrarfjall og Ernir eða Esjan?
Eyrarfjall og Ernir! Saman gefa þau manni kraftmesta faðmlag sem
hægt er að hugsa sér.
Morgunblaðið/Eggert
ÞÓRUNN ARNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.6. 2014
Við höldum með Belgíu. Það er bara inni
núna að styðja Belgana.
Brynjar Þór Kristófersson, 27 ára.
Ég ætla að segja Brasilíu. Ég hef þó engin rök
fyrir því.
Jóhannes Gauti Óttarsson, 19 ára.
Höttur er uppáhalds liðið mitt, ég held með
þeim. Annars elska ég Ítalíu.
Móeiður Mist Steinarsdóttir, 5 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Ég held eiginlega með Bandaríkjunum vegna
þess að það er Íslendingur í liðinu þeirra.
Edda Kristín Óttarsdóttir, 15 ára.
Morgunblaðið/Þórður
SPURNING VIKUNNAR MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ Á HM OG AF HVERJU?
Foreldrar eiga ekki að hræða
börn sín með lögreglunni
þegar þau eru óþekk. Lög-
reglan hefur ekki hendur í
hári óþekkra barna og vill auk
þess að börnin séu óhrædd
við að leita til sín 16
EFNISYFIRLIT
STARFSFÓLKVIÐ KENNSLU
EFTIR KYNI 1998-2013
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1000
500
0
1998 2001 2004 2007 2010 2013
Konur
Karlar
Heimild: Hagstofan
Forsíðumyndina tók
Rax
Að kvöldi kjördags bauð matarblogg-
arinn Helena Gunnarsdóttir góð-
um gestum í mat sem hún segir alla
vera mikla sælkera og því hvergi slegið
af í eldamennskunni. Réttirnir voru
sumarlegir og súkkulaðihúðaða jarð-
arberjaostakakan sló í gegn 32
Ekki nægilega margir gera sér almennilega grein fyrir
mikilvægi sparnaðar. Eins og með margt í lífinu er
gott að venja sig við góða siði snemma á lífsleiðinni og
því mikilvægt að kenna börnunum okkar að spara 44
Höfnin í Reykjavík hef-
ur verið lífæð borgarinnar í
áratugi og miðstöð sjávar-
útvegs. Nú rís við hana enn
ein stoðin en verið er að
opna hvern veitingastaðinn
á fætur öðrum í gömlu ver-
búðunum. 30
Leik- og söngkonan Þórunn Arna Kristjánsdóttir hefur að
undanförnu meðal annars farið með burðarhlutverk í leik-
ritinu Litla prinsinum í Þjóðleikhúsinu. Í haust mun hún hins
vegar breyta um vinnustað og hefja störf við Borgarleik-
húsið.
Getur
leikið góðan
dansara