Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 61
29.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
LÁRÉTT
3. Jók þegar blandaði ys við kyndil. (9)
8. Mjór teinn ólokaður af slurkinum. (8)
12. Kostnaðarmikill sagður drukkinn af aðdáendum (9)
13. Set einn í vistina til að rugla listamann. (8)
14. Kraftana gat notað til að finna hópinn af spendýrum. (11)
15. Þvælið rit við stólbakið. (10)
16. Þiðnaður við framleiðslu. (7)
17. Skinn fær máski litla svæðið. (10)
20. Spergil ég tek án brodds. Það er þreytandi. (8)
22. Fær sleip iðulega fyrsta flokks vísindi frá þessari fræðigrein?
(12)
23. Frumvaxta með vanga við bóg. (9)
24. Sjá að hirð að sé unnin án norðuráttar með sneiðinni. (11)
28. Prýðileg og fjörugur hittast þannig að hann verður drukkinn. (9)
31. Er Malín ein ennþá í upphafi gamans að finna bryddingu? (10)
34. Ó, við gróðurey átta skapa með sér fjandskap. (8)
35. Réð við fyrsta skrautstein. (4)
36. Það að líta smæst er ekki einfalt en fallegast. (10)
37. Viðbótarsandeyri gefur okkur bein í viðbót. (7)
38. R-meiðslaflinkir með pípur. (10)
39. Brýt freka niður og byggi upp aftur. Það er dáð. (5)
LÓÐRÉTT
1. Tími tryggingarfélags hjá tímanlegum. (8)
2. Sá sem lifir ekki á yfirborðinu geri tiltækt. (8)
4. Hljóm elta einhvern veginn leikin til að finna það að geta ekki
nýst sem fæða. (12)
5. Eldaður ruglar litaða. (7)
6. Kráargráða er svindl og sérstök uppátæki. (12)
7. Sko! Var sannur verður! (12)
9. Slátrið fimmtíu einhvern veginn fyrir seinmæltan. (9)
10. Speisar út vegna fatnaðar. (5)
11. Hæ, nokkrir við hirð þvælast krullaðir um. (13)
18. Ljóðaflokkur án Kollu sem er eldrauð. (7)
19. Hluti af nótu með tuði? (9)
21. Framinn hefur verðgildið. (6)
22. Lyfti íláti að fóstru Útgarða-Loka að endingu til að skapa há-
vaða. (11)
25. Skepna kemur til verðmikilla. (8)
26. Hjálpar einhvern veginn í orðastað. (8)
27. Æpa aðsjál út af lífrænni. (8)
29. Óttar við mynni sér þær sem eru látnar vera kyrrar. (7)
30. Höfuðfat lánastofnunar sem Höskuldur bar þegar hann var veg-
inn. (7)
32. Áminnandi er ekki utan. (5)
33. Borar og atar. (5)
Verðlaun eru veitt
fyrir rétta lausn
krossgátunnar.
Senda skal þátt-
tökuseðilinn með
nafni og heimilis-
fangi ásamt úr-
lausnum í umslagi
merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn krossgátu 29. júní rennur
út á hádegi 4. júlí. Vinningshafi krossgátunnar 22.
júní er Gunnar Þór Jóhannesson, Spóarima 21, Sel-
fossi. Hann hlýtur í verðlaun bókina Litla hugs-
anabókin eftir Guðberg Bergsson. JPV gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang