Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 26
Heimili
og hönnun *Þýska hönnunarstúdíóið Kaschkasch hefurhannað áhugaverðan lampa fyrir danska hönn-unarhúsið Normann Copenhagen. Lampinn,sem er sérstaklega skemmtilegur í laginu, erbyggður á ítölsku teiknimyndafígúrunni Cali-mero sem er lítill kjúklingur með brotið egg áhöfðinu. Óvæntur en spennandi innblástur þar
á ferð.
Lampi byggður á teiknimyndafígúru
N
ýja húsgagnalínan frá Volka kallast Viti by Volki og sam-
anstendur af inni- og útihúsgögnum sem eru unnin út frá
formi og hlutverki vitans.
Olga segir þær vinkonur fá innblástur alls staðar að en
segir Reykjavík í heild sinni koma sterka inn. „Húsin, litirnir, sjórinn,
vöfflukaffi og sundferðir eru vítamínsprauta fyrir heilann. Og þegar við
Elísabet förum í ferðalög þá rýkur gjörsamlega úr okkur og eitthvað
skemmtilegt verður til,“ útskýrir Olga.
Samstarf þeirra Olgu og Elísabetar hófst árið 2007 í Hollandi en þar
bjuggu þær báðar í tæp 10 ár og stunduðu nám. „Við byrjuðum á að end-
urvinna gömul húsgögn og vinna með ull. Það má segja að verk okkar séu
gjarnan blanda af list og praktískri hönnun,“ segir Olga. Endurvinnsla og
íslensk ull leika enn stórt hlutverk í verkum þeirra Olgu og Elísabetar
sem og grafísk mynstur og bjartir litir. Stíll Volka er gjarnan hrár og
pínu hollenskur að sögn Olgu.
Nálgast má vörurnar frá Volka í verslununum Aurum á Bankastræti,
Hrím á Laugavegi og í Mengi Óðinsgötu.
Þær Elísabet Jónsdóttir og
Olga Hrafnsdóttir hafa
unnið saman frá árinu 2007.
Morgunblaðið/Þórður
Hollensk áhrif
eru sjáanleg í
verkum Volka.
Húsgögnin eru
unnin út frá hlut-
verki vitans.
Ullarvörur Volka
eru litríkar.
Ljósið má einn-
ig nota undir
borðplötu.
NÝ HÚSGAGNALÍNA TIL SÝNIS Á SKÖRINNI
Sækja inn-
blástur í sjóinn
og Reykjavík
ÞESSA DAGANA STENDUR YFIR SÝNING Á NÝRRI HÚS-
GAGNALÍNU FRÁ VOLKA Í SÝNINGARRÝMINU Á SKÖRINNI
HJÁ HANDVERKI OG HÖNNUN Í AÐALSTRÆTI 10. ELÍSABET
JÓNSDÓTTIR OG OLGA HRAFNSDÓTTIR ERU KONURNAR Á
BAK VIÐ HÖNNUNARFYRIRTÆKIÐ VOLKA SEM FRAMLEIÐIR
ALLT FRÁ FATNAÐI TIL HÚSGAGNA OG LISTAVERKA.
Guðný Hrönn gudnyhronn@gmail.com