Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 36
Hægt er að tengja PS Vita við PS4 og nota þá sem aukaskjá, til að mynda mætti vera með kort af vígvelli eða aðrar upplýsingar sem gott er að hafa við höndina, en líka er hægt að horfa á leik í henni og meira að segja má spila leiki í gegnum hana með því að nota Remote Play yfir þráðlaust net, reyndar alla leiki, því það er eitt af skilyrðum sem leikjahönnuðir verða að uppfylla. Þeir sem ekki hafa aðgang að PS Vita geta sótt sér smáforrit fyrir snjall- tæki, PlayStation App fyrir iOS eða Android, og breytt tækinu í aukaskjá fyrir PS4. Þá er hægt að sjá kort eða stöðuupplýsingar líkt og PS Vita, kaupa leiki sem tölvan sækir svo sjálf og horfa á myndskeið úr leikjum. Ekki er þó hægt að spila leiki í gegnum forritið líkt og með PS Vita. Meðal nýjunga í PS4 er að hægt er að nota PlayStation Vita-leikjatölvuna, PS Vita, sem aukahlut við tölvuna. PS Vita er fyr- irtaks leikjatölva í sjálfu sér, tók við af PSP fyrir tveimur árum eða þar um bil, en ný gerð hennar mun vænt- anleg í sumar eða síðsumars. Ég hef ekki komist í nýju gerð- ina, en sú eldri, sem flestir eiga væntanlega, er 83,5x182x18,6 mm að stærð og 260 g að þyngd. Wikipedia heldur því fram að nýja týpan sé 20% þynnri og 15% létt- ari og rafhlaðan endist klukkutíma lengur, en það er líka búið að skipta um skjágerð, LCD-skjár tekur við af OLED, þó skjárinn sé jafn stór, 5". Einn- ig er á tölvunni hefðbundið micro USB tengi í stað Sony-tengisins og minni í henni er 1 GB, en 512 í eldri týpunni. Aukaskjár við PS4 VITA VERÐUR AÐ FYLGIHLUT Græjur og tækni HM í háloftunum *Þeir sem þurfa að ferðast á meðan HMstendur yfir en vilja ómögulega missa af einnimínútu geta nú valið á milli nokkurra flug-félaga sem sýna leikina beint í háloftunum.Þónokkur flugfélög eru komin með wifi-tengingu. Leikur Brasilíu og Kamerún varsýndur í innanlandsflugi í Brasilíu í vikunni og heppnaðist tilraun Brazil air svo vel að flug- félagið ætlar að sýna alla leiki sem eftir eru. Það bar við fyrir stuttu að Sony sigldi fram úr Nintendo,helsta keppinaut sínum í sölu á leikjatölvum, náði aðselja fleiri leikjatölvur en nokkur framleiðandi annar, en því hefur Sony ekki náð í tæpan áratug. Lykillinn að þessari velgengni er PlayStation 4, PS4, sem kom á markað seint á síðasta ári en ekki hingað til lands fyrr en í lok jan- úar, enda sköpuðu gríðarlega vinsældir vélarinnar leikja- tölvuþurrð í Evrópu. PS4 er fjórum sinnum öflugri en síðasta gerð PlayStation, PS3. Hún er með tvo fjögurra kjarna 64 bita AMD-örgjörva og síðan sérstakan garfíkörgjörva sem skilað getur allt að 1,84 TFLOPS (1.400.000.000.000 kommutöluaðgerðum) á sekúndu, sem slagar upp í besta GeForce- skjákortið GeForce GTX 660. Vinnsluminni fyrir grafík er 8 GB sem er 16 sinnum meira en í PS3 Í vélinni er Blu-ray-drif sem les mun hraðar en diskadrifið í PS3, en vélin er líka mun fljótari að vinna úr gögnunum, auk þess sem bakgrunnsvinnsla er líka öflugri, eins og til að mynda þegar leikir eru sóttir yfir netið, en það truflar ekki aðra vinnslu. Harður diskur í vélinni er 500 GB og maður getur sjálfur sett í hana stærri disk ef vill. Hún er með innbyggt þráð- laust net og líka Ethernet-tengi fyrir netsnúru, og Bluetooth- stuðning. Það eru á henni tvö USB-tengi og líka tengi fyrir sérstaka myndavél. Það fylgja heyrnartól sem maður stingur í samband við fjarstýringuna. Sjónvarpsútgangur er HDMI og svo er líka optical S/PDIF-hljóðtengi. Ný gerð af fjarstýringu fylgir, DualShock 4, sem tengist tölvunni með Bluetooth. Á henni er snertiflötur sem hægt er að nota til að stýra og líka hægt að smella á. Fjarstýringin nýja fer ekki síður í hendi en DualShock 3, en titringur er mun betri og svo eru innbyggðir hreyfi- og hallaskynjarar. Það er í henni stereóútgangur (heyrnartólin sem fylgja eru mono), micro-USB-tengi og tengir fyrir viðbætur. Í fjarstýr- ingunni er hleðslurafhlaða sem hlaðin er ýmist í sérstakri kví eða með snúru í micro-USB-tengið. Framan á fjarstýring- unni er ljósrönd sem lýsir í mismunandi litum ef fleiri en einn eru að spila og vinnur með myndavélinni. Leiki er hægt að kaupa á diskum eins og forðum, en líka í gegnum netið í PlayStation-verslun Sony. Þar er til að mynda hægt að kaupa væntanlega leiki fyrirfram og þá birt- ast þeir á tölvunni þegar þeir koma út – oft áður en þeir koma í verslanir. Hægt er að stilla vélina svo að hún sæki leiki sjálfkrafa, svo framarlega sem tölvan er í gangi, og sumir leikir eru þeim kostum búnir að hægt er að byrja að spila leikinn á meðan hann er sóttur. Snar þáttur í vinsældum vélarinnar er það hve Sony lagði mikla áherslu á samfélagsþáttinn. Þannig er til að mynda hægt að deila skjáskotum úr leikjum eða myndskeiðum; hægt er að renna í gegnum síðustu fimmtán mínútur af leiknum sem maður er að spila og velja skjáskot eða mynd- band til að deila ýmist með öðrum PSN-notendum eða á samfélagsmiðlum eins og Facebook eða Twitter. Þetta hefur verið mikið notað og þannig var búið að deila tuttugu milljón mínútum af myndskeiðum í byrjun desember, en PS4 kom á markað um miðjan nóvember í Bandaríkjunum og í lok nóv- ember í Evrópu. Annað sem leikendur hafa kunnað að meta er að hægt er að fylgjast með því sem leikfélagi er að gera þótt hann sé víðs fjarri og leiðbeina honum en líka má senda út leiki sem maður er sjálfur að spila í gegnum sjónvarpsþjónustur eins og Ustream eða Twitch. Sumir hafa kvartað yfir því að ekki sé hægt að spila eldri leiki á tölvunni, til að mynda er ekki hægt að spila PS3-leiki á henni, en ekki þykir mér það mikill ókostur; þeir sem eiga mik- ið af PS3-leikjum eiga þá væntanlega líka vél til að spila þá. PS4 kostar um 80.000 kr. GÆFA OG GJÖRVILEIKI ÞEIR SEM ERU ELDRI EN TVÆVETUR MUNA VÆNTANLEGA ÞÁ BYLTINGU SEM VARÐ Í TÖLVULEIKJAHEIMINUM ÞEGAR FYRSTA PLAY- STATION-TÖLVAN KOM Á MARKAÐ. NÝ GERÐ HENNAR, PS4, ER EKKI SAMA UNDRIÐ, EN HEFUR ÞÓ SKOTIÐ SONY Í FREMSTU RÖÐ LEIKJATÖLVU- FRAMLEIÐENDA AÐ NÝJU, HVORT SEM LITIÐ ER TIL TÆKNILEGRAR ÚTFÆRSLU EÐA VINSÆLDA. * Meðal fjölda fylgihluta sem hægt erað tengja við PS4 er myndavél sem heitir einfaldlega Playstation Camera. Framan af lagði Sony ekki sérstaka áherslu á að kynna hana eða markaðssetja og það kom fyr- irtækinu í opna skjöldu hve vinsæl hún var sem sést kannski einna best á því að hún selst upp hvað eftir annað. * Í myndavélinni eru tvær linsur og ábak við þær 1280×800 díla myndflögur. Með því að hafa þær tvær getur vélin skynjað dýpt mun betur og þannig metið fjarlægð spilara frá tölvunni svo dæmi séu tekin og nær líka að greina andlit og getur því numið hver heldur á hverjum stýri- pinna. Fjórir hljóðnemar auðvelda svo raddstýringu. * Leikurinn Playroom fylgirvélinni en krefst myndavélar, en líka hefur verið mjög vinsælt að nota myndavélina til að birta mynd af sér með vídeóstraumi af leikjum. Tug- milljónir manna streyma ýmsu PS4- tengdu efni á Twitch og Ustream, en svo má nefna að sýndarraun- veruleikagleraugu og margir vænt- anlegir leikir krefjast myndavélar. Græjan ÁRNI MATTHÍASSON Myndavélin er með tvær linsur og fjóra hljóðnema. PS4 er nettari en fyrirrenn- arinn en þó margfalt öflugri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.