Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 25
29.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 G rétar Sigfinnur Sigurðsson er vest- urbæingur í húð og hár. Hann byrj- aði ungur að æfa fótbolta með KR og spilaði upp alla yngri flokka fé- lagsins. Í dag er hann hjartað í vörninni og algjör lykilmaður í liði Íslandsmeistaranna. Þrátt fyrir að vera kletturinn í vörninni er hann enn sem komið er meðal markahæstu leikmanna KR á tímabilinu og hefur að und- anförnu skorað í nærri því hverjum leik. Grétar varð stúdent frá Kvennaskólanum og lauk námi í við- skiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Auk þess að spila fyrir Knattspyrnufélag Reykjavíkur á hann og rekur auglýsingaskrifstofuna Babylon, er að byggja fallegt hús yfir fjölskylduna í Skerjafirðinum og mikill útivistargarpur. Gælunafn: Siffi, Gressi. Íþróttagrein: Fótbolti, samt góður í öllum íþróttum Hversu oft æfir þú á viku: Ég æfi svona 6-8 sinnum í viku. Hver er lykillinn að góðum árangri: Æfa vel og leggja sig alltaf 100% fram. Hvernig er best að koma sér af stað? Besta leiðin til að koma sér af stað er að hafa markmið fyrir hvern dag og gott skipulag. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Hætta að vilja og bara framkvæma. Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? Æfi! Ertu almennt meðvitaður um mataræðið? Já, ég er alla jafna meðvit- aður um mataræðið en fer á hinn bóginn ekki nægilega oft eftir því. Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Mér hefur þótt það góð regla að borða allt sem mér finnst gott. Ég er t.d. mikill kjúllamaður. Hvaða óhollusta freistar þín? Kók, ís, súkkulaði … á ég að telja áfram? Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið? Sleppa millimálum og kvöldsnakki. Það er einföld og góð regla. Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? Hreyfing er mér allt, ég væri örugg- lega ekki á sama stað í lífinu og ég er núna ef ég hefði ekki íþróttir, fótbolt- ann og alla hreyfinguna sem ég stunda. Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Að halda að æfingin ein og sér létti mann, mataræði skiptir miklu meira máli. Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Mel Gibson, fyrir skilnað. KEMPA VIKUNNAR GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐSSON Varnarjaxl úr Vesturbæ Morgunblaðið/Eva Björk Hestavaðsfoss er breiður og fallegur foss sem sjá má snemma í göngunni. Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson Göngumenn fara upp á Móða en sjá má gos í honum á mynd hér á undan. Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson Regluleg hreyfing minnkar líkurnar á ýmsum lífsstílstengdum sjúk- dómum, svo sem sykursýki tvö, offitu, beinþynningu og hjarta- og æðasjúkdómum. Mælt er með hálftíma hreyfingu á dag, t.d. göngu- ferð, hjólað í og úr vinnu eða sundi. Fullorðnir þurfa líka að hreyfa sig*Ég er ekki að leita eftir full-komnun en ég geri kröfuum að hlutir séu gerðir vel. - Cristiano Ronaldo. Mikilvægt er að vera vel búinn fyrir gönguferð yfir Fimmvörðu- hálsinn og mælir Sigurður með því að fólk undirbúi ferðina vel. „Nauðsynlegt er að vera vel klæddur og hafa aukaföt og hlífðarföt í bakpoka. Fólk á að hafa með sér húfu og vettlinga, gott er að vera í flísfatn- aði, vera í góðum gönguskóm, hafa sokka til skiptanna og vera í góðum vind- jakka eða úlpu. Bjartsýnt fólk getur svo tekið með sér stuttbuxur,“ seg- ir Sigurður sem hefur farið yfir Fimm- vörðuhálsinn í öllum veðrum. Annar búnaður sem mikilvægt er að taka með sér er góðir göngustafir og GPS- tæki ef svo ólíklega vill til að fólk villist af leið. Sigurður segir einnig bráðnauðsynlegt að taka með sér vatnsbrúsa. „Eftir að farið er yfir brúna yfir Skógaá fækkar möguleikum til að fylla á vatnsbrúsann. Þó er það oft hægt í Fimmvörðuskála en þar er regnvatni safnað. Myndavél skemmir aldrei fyrir og ekki heldur bókin um Fimmvörðu- hálsinn fyrir fróðleiksfúsa, og kortin hjálpa líka til.“ Nesti er mikilvægur þáttur í öllum göngum og er gullna regl- an að mati Sigurðar sú að hafa með sér gott og orkuríkt nesti. „Það fer enginn í megrun á fjöll- um. Við tökum með okkur gott nesti. Heitur drykkur á hita- brúsa, kex, smurt brauð og annað sem göngu- mönnum finnst gott á að vera í bakpokanum. Harðfiskur, súkku- laði eða hnetur má svo hafa í vasanum til að maula á í göngunni.“ Þá bendir Sig- urður einnig á að tilvalið sé að senda fatnað, mat og búnað með rútu inn í Bása og sér Útivist um að geyma hann og afhenda þegar komið er úr göngunni. „Ástæðan er auðvitað sú að ein- staklega gaman er að dvelja eina nótt í Básum eftir gönguna, hvíla lúin bein og jafnvel grilla góðan mat. Þetta nýta sér margir og er frábær endir á skemmtilegri og góðri göngu.“ Í bókinni Göngu- leiðin yfir Fimmvörðuháls er að finna góðan lista yfir allt sem taka þarf með sér í gönguferð yfir Fimmvörðuhálsinn. Hvað þarf í bakpokann? Flestir ganga yfir Fimmvörðuháls á einum degi en það er einnig nokk- uð algengt að gista í Fimmvörðu- skála Útvistar og taka þannig Háls- inn á tveimur dögum. Fyrir vikið gefst meira tækifæri til að skoða sig um á leiðinni og að sjálfsögðu njóta ferðarinnar sem er 22 til 28 km löng eftir því hvaða leið fólk kýs að ganga. Hæsti hluti á Fimmvörðu- hálsi er í um 1.086 m hæð og er gengið skammt þar undir. Flestir ganga frá Skógafossi og inn í Þórs- mörk en einnig er gaman að ganga frá Þórsmörk að Skógum. KORT AF LEIÐINNI Fimmvörðuháls Básar Fimmvörðuskáli Baldvinsskáli Skógar Heljarkambur Kattarhryggur Morrisheiði Eyjafjallajökull Mýrdals- jökull Móði Magni Gönguleiðin Göngugreining Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Vandamál sem göngugreining Flexor getur hjálpað til við að leysa eru til dæmis: • þreytuverkir og pirringur í fótum • verkir í hnjám • sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.) • beinhimnubólga • óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum • verkir í tábergi og/eða iljum • hásinavandamál • óþægindi í ökklum • þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.