Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Blaðsíða 41
Bob er heiti á einni af þekktustu klippingum heims.Hárið er klippt að kjálkalínu og er beint allanhringinn. Það var í kringum 1920 sem bob-greiðslan varð nokkuð áberandi en fyrir þann tíma voru konur almennt með sítt hár. Árið 1915 kom bob fyrst fram á sjónarsviðið þegar dansarinn Irene Castle klippti sig stutt vegna þess að það hentaði henni illa að vera síðhærð. Hana hefði sennilega ekki órað fyrir því að hún hefði með þessu umbylt hártísku kvenna á 20. öldinni. Upp frá þessu fóru konur að klippa hár sitt við kjálkalínu, ýmist með hártopp eða greitt aftur. Til að byrja með voru það ungar stúlkur og mjög tísku- meðvitaðar konur sem klipptu sig og þóttu þess- ar konur ákaflega djarfar á sínum tíma. Bernice fær sér bob Þetta var þó bara byrjunin því að árið 1920 breyttist tískan og átti klippingin sinn þátt í þeim breytingum. Hinn 1. maí 1920 birti dagblaðið Saturday Evening Post smásögu eft- ir F. Scott Fitzgerald sem bar heitið „Bernice Bobs Her Hair“ eða Bernice fær sér bob. Sagan fjallar um ósköp venjulega unga stúlku sem tekur vissum breytingum, klippir á sér hárið og verður djörf og aðlað- andi í kjölfarið. Bernice varð þannig fyrirmynd margra ungra kvenna og klippingin vinsælli fyrir vikið. Ári seinna, 1921, var bob-klippingin orðin að tískubylgju og margar af merkustu konum þess tíma með bob eins og Coco Chanel, Louise Brooks og Clara Bow. Enn þann dag í dag er ákveðin tenging á milli þriðja áratugar síðustu aldar og bob-greiðslunnar en um 1930 fóru konur aftur að safna hári og bob hvarf af sjónarsviðinu. Sjöundi áratugurinn og Vidal Sassoon Bob-klippingin var geymd en ekki gleymd því um 1960 endurvakti hár- greiðslumaðurinn Vidal Sassoon bob-klippinguna með örlitlum áherslu- mun í takt við tíðaranda. Síðan þá hefur bob alltaf af og til skotið upp kollinum og má þá minnast ársins 2006 þegar Madonna klippti á sig bob en þá hafði hár leikkonunnar Siennu Miller, síður toppur og hippa- legir slöngulokkar, verið einn helsti innblástur kvenna í hártískunni. Í sumar er bob ein vinsælasta hárgreiðslan og stjörnur á borð við leik- konurnar Jennifer Lawrence, Kristen Wiig og Emmu Watson skarta henni. Anna Wintour með eina frægustu bob-klippingu seinni tíma. Bob-klippingin í útgáfu hárgreiðslu- mannsins Vidal Sassoon um 1960. Óskarsverðlauna- leikkonan Jennifer Lawrence með bob á frumsýningu 2014. AFP Hin sívinsæla „bob“ EIN HEITASTA KLIPPINGIN Í SUMAR ER KLIPPINGIN BOB. BOB Á SÉR LANGA OG FREMUR ÞÝÐINGARMIKLA SÖGU. ÁRIÐ 1915 SKAUT KLIPPINGIN FYRST UPP KOLLINUM EN HÚN ÁTTI EFTIR AÐ HAFA ÁHRIF Á KONUR UM HEIM ALLAN. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is „Castle Bob“ var heitið á frægri klipp- ingu Irene Castle. 29.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 TÍSKU MARKAÐUR Enn meiri verðlækkun! Kápur/Úlpur - kr. 7.990 Jakkar - kr. 3.490 Langerma toppar - kr. 1.490 Hlýratoppar - kr. 990 Peysur - kr. 2.990 Leggings - kr. 990 Kjólar - kr. 3.990 Buxur - kr. 2.990 Pils - kr. 1.990 Calou klossar kr. 3.990 Í anddyri sals Ferðafélags Íslands Mörkin 6 - 108 Reykjavík Opið: Lau. 28.06 - kl.12-16 - mán-fös. 30.06-04.07 - kl. 12-18 Since 1921 Við höfum notað lífræna jurtaolíu í vörur okkar í meira en 90 ár. Þær hafa marga frábæra eiginleika og næra húðina m.a. með vítamínum, andoxunar- efnum og fitusýrum. Vörurnar okkar eru prófaðar af óháðum aðila* og eru vottaðar NaTrue vörur. Olíurnar veita vellíðan styrkja og vernda þurra húð - í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is Það er ekkert jafn rakagefandi og olíurnar okkar Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland *Derma Consult Concept GMBH Útsölustaðir: Apótek og Heilsuverslanir um allt land
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.