Morgunblaðið - 06.09.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nú er kominn réttarhugur í fólk í sveitum lands-
ins, enda haustið sá tími sem farið er á fjall og
fénu safnað í réttir. Þá er gjarnan mikil gleði,
söngur og heilmikill hamagangur sem fylgir því
að draga fé í dilka. Bjart var yfir þessari stúlku í
Undirfellsrétt í Vatnsdal í gær þar sem hún fékk
sér sæti á baki lambs. Í Undirfellsrétt verður um
12.000 fjár réttað um helgina en gangnamenn
fengu gott veður í leitum og smalaðist því vel.
Bjart er barnsins bros í réttunum
Ljósmynd/Jón Sigurðsson
Handagangur í öskjunni í Undirfellsrétt í Vatnsdal
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í
gærmorgun að fjármálaráðherra
beiti sér fyrir því að Hafrannsókna-
stofnun fái aukið fjármagn svo hægt
verði að fara í loðnurannsóknir í
haust. Í kjölfarið hóf Hafrannsókna-
stofnun þegar undirbúning að loðnu-
leiðangri sem hefst síðari hluta mán-
aðarins. „Þessar rannsóknir eru afar
nauðsynlegar að okkar mati og því er
mjög gott að þessi niðurstaða skuli
vera fengin,“ sagði Jóhann Sigur-
jónsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, í gær.
Ráðgert er að leiðangurinn geti
tekið um þrjár vikur og verður farið
á rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni. Fram kom í umræðum um
þetta mál í haust að kostnaður við
leiðangurinn gæti numið 60-70 millj-
ónum króna. Vegna fjárskorts Haf-
rannsóknastofnunar var útlit fyrir
að ekki yrði farið í loðnurannsóknir
fyrir áramót eins og gert hefur verið
í fjölda ára. Kolbeinn Árnason, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði þá að mikil
verðmæti gætu farið forgörðum fyr-
ir útgerðina og þjóðfélagið í heild
væri þessum rannsóknum ekki sinnt.
Til heiðurs loðnunni
Í gær var haldin ráðstefna á Akur-
eyri til heiðurs loðnunni, eins og það
er orðað á heimasíðu LÍÚ, í tilefni
þess að hálf öld er liðin frá því að Ís-
lendingar hófu hagnýtingu á loðnu.
M.a. var farið yfir stöðu stofnsins,
þróun iðnaðar, helstu afurðir og
markaði, efnahagslegt mikilvægi
loðnu og möguleg sóknarfæri.
Á þessari hálfu öld er búið að veiða
um 32 milljónir tonna af loðnu og
hefur hún skapað gífurleg verðmæti
fyrir þjóðarbúið. Útflutningsverð-
mæti 32 millj. tonna af loðnu gætu
verið 2.368 milljarðar króna ef tekið
er mið af útflutningsverðmæti 2013
skv. upplýsingum á vef Hagstofu Ís-
lands.
Loðnuleiðangur í mánaðarlok
Ríkisstjórnin beitir sér fyrir auknu fjármagni til Hafrannsóknastofnunar vegna
loðnurannsókna í haust Loðnuveiðar hafa skapað mikil verðmæti
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ákvörðun dagskrárstjóra Rásar 1
hjá ríksútvarpinu þess efnis að færa
síðasta lag fyrir hádegisfréttir fram
fyrir auglýsingar hefur víða fallið í
grýttan jarðveg. „Mér líst bölvan-
lega á þetta,“ segir Árni Björnsson
þjóðháttafræðingur. „Ég vil hafa
hefðir og það er sérstaklega gaman
að hafa hefð ef hún er öðruvísi en hjá
öðrum.“
Árni Björnsson telur að Jón Leifs,
tónskáld og þáverandi formaður
Sambands tónskálda og eigenda
flutningsréttar,
STEFs, hafi
komið síðasta lagi
fyrir fréttir á á
árunum 1950 til
1960. Hann hafi
verið vel tengdur
útvarpinu, til
dæmis verið tón-
listarráðunautur
þess um tíma.
Þetta hafi meðal
annars verið aðferð til þess að kynna
íslenska tónlist og jafnframt verið
smávægis tekjulind fyrir tónskáld í
formi stefgjalda.
Á Vísindavefnum fyrir nokkrum
árum var spurt hvað væri sér-
íslenskt. Þá svaraði Árni því til að
spurningin væri snúin en þó mætti
draga fram nokkur atriði sem gætu
réttlætt þessa einkunn. Hann nefndi
eitthvað sem hefði orðið til á Íslandi
og hvergi annars staðar, eitthvað
sem hefði flust til Íslands og varð-
veist þar en horfið annars staðar og
eitthvert fjölþjóðlegt fyrirbæri sem
hefði fengið sérstætt snið á Íslandi.
Einsdæmi í veröldinni
Síðasta lag fyrir fréttir þekkist
sennilega hvergi annars staðar. Há-
degisfréttir ríkisútvarpsins hefjast
kl. 12.20 og telur Árni Björnsson það
einsdæmi í veröldinni. Síðasta lag
fyrir fréttir fylgi hefðinni.
„Ég sé ekki hvaða þörf er á þess-
ari breytingu,“ segir Árni. „Mér líst
illa á þetta. Þetta er algerlega mein-
laus hefð og gaman að halda henni.“
Líst bölvanlega á þetta
og vill halda í ríka hefðina
Vill síðasta lag
fyrir fréttir á ný
Árni
Björnsson
Páll Matthíasson,
forstjóri Land-
spítalans, segist
hafa á tilfinning-
unni að andinn á
spítalanum sé á
uppleið, þó að
mörg verkefni
séu óleyst. Þetta
kemur fram í for-
stjórapistli á vef-
síðu Landspítal-
ans í gær. Þar segir Páll að
örkönnun meðal starfsfólks í vor hafi
bent til betri líðunar. „Nú sýna
starfsemistölur sem aðgengilegar
eru á vef spítalans mjög jákvæðar
vísbendingar í sömu átt. Það er
langt síðan að við höfum séð eins já-
kvæð merki en veikindahlutfall
starfsfólks fer minnkandi og sama
gildir um starfsmannaveltu,“ segir
hann.
Páll víkur einnig að því að fram-
undan śé umræða um fjárlög ársins
2015 sem verða lögð fram í næstu
viku. „Það gekk mikið á síðasta
haust í kjölfar þeirra en sjálfur hef
ég þá trú að stjórnvöldum verði sí-
fellt betur ljóst mikilvægi þess að
spítalinn fái í fjárlögum næsta árs
svigrúm til að halda áfram uppbygg-
ingarstarfi. Um þetta hef ég nýlega
ritað leiðara í Læknablaðið. Sam-
hliða þessu er áframhaldandi bar-
átta fyrir uppbygginu þjóðar-
sjúkrahússins við Hringbraut. Það
er verkefni sem verður að sjá fyrir
endann á sem fyrst og þar munar
um hvern þann sem málinu leggur
lið.“
Jákvæð
merki um
betri líðan
Páll
Matthíasson
Spítalinn fái svig-
rúm í fjárlögum
Um tuttugu björgunarsveitarmenn
úr björgunarsveitum í Árnessýslu
tóku þátt í björgunaraðgerð síðdegis
í gær þegar erlend kona slasaðist á
fæti í Klambragili, sem er ofarlega í
Reykjadal. Konan var á göngu sem
skipulögð var af íslensku ferðaþjón-
ustufyrirtæki. Bera þurfti konuna
um eins kílómetra leið, víða nokkuð
bratta og lausa í sér, í björgunar-
sveitarbíl sem beið við enda göngu-
stígsins. Var hún síðan flutt að Suð-
urlandsvegi þar sem sjúkrabíll beið
þess að flytja hana undir læknis-
hendur.
Kona slasaðist
í Klambragili