Morgunblaðið - 06.09.2014, Síða 6

Morgunblaðið - 06.09.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 Óháð ráðgjöf til fyrirtækja Firma Consulting gerir fyrirtækjum tilboð í eftirfarandi þjónustu: • Kaup, sala og sameining. • Verðmat fyrirtækja. • Samningaviðræður, samningagerð • Áætlanagerð. • Fjárhagsleg endurskipulagning. • Samningar við banka. • Rekstrarráðgjöf. Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík. Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766 info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Frá og með næstu viku munu þeir gestir Alþingis sem vilja fylgjast með þingfundum þurfa að ganga í gegnum málmleitarhlið áþekkt þeim sem fyrirfinnast á flugstöðvum. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir tilganginn þann að auka öryggi í þinghúsinu, og koma í veg fyrir að menn beri upp hluti sem hægt er að fleygja inn í þingsalinn eða skaðað sjálfa sig með, eins og nýleg dæmi séu um. Helgi segir að forsætisnefnd Al- þingis hafi fjallað um málið á sum- arfundi sínum, og samþykkt þær breytingar á aðgangsreglum þings- ins sem þurfti að gera. „Það er búið að vinna breytingar við bakdyr húss- ins, og hliðið er á leiðinni til landsins þessa dagana,“ segir Helgi, sem seg- ir stefnt að því að hliðið verði sett upp í næstu viku. Ólíklegt sé þó að það takist í tæka tíð fyrir þingsetn- ingu, sem verður á þriðjudaginn næstkomandi. „Við höfum undanfarin ár óskað eftir því að fólk færi ekki með töskur eða málmhluti upp á palla og því hef- ur verið fylgt eftir með handleit- artækjum,“ segir Helgi, og bætir við að málmleitarhliðið komi í staðinn fyrir þau tæki. Helgi segir að ekki sé ætlunin að fjölga lögreglumönnum eða auka öryggisgæslu að öðru leyti. „Það er okkur kappsmál að það sé eins greiður aðgangur að pöllunum og hægt er. Við höfum þurft að tak- marka fjölda fólks á pöllunum, en að öðru leyti höfum við reynt að greiða götu þess fólks sem vill fylgjast með störfum þingsins,“ segir Helgi, sem á von á því að hliðið muni gera að- gang að pöllunum liðlegri en áður. Málmleitarhliði komið fyrir í Alþingishúsinu í næstu viku  Mun gera aðgang að þingpöllum greiðari en áður Morgunblaðið/Ómar Alþingishúsið Málmleitartæki verður sett upp við inngang að þingpöllum. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Reynir Traustason, ritstjóri DV, þurfti að lúta í lægra haldi á aðalfundi DV ehf. sem fram fór í annað sinn á Hótel Natura í gær eftir að fundinum hafði verið frestað um viku vegna ágreinings um ársreikninga. Hart var deilt á fundinum sem stóð fram á kvöld og m.a. þrefað um umboð hlut- hafa, en eftir að gengið var til kosn- inga varð niðurstaðan sú að Reynir fór með 49,4% hlutafjár en aðrir hlut- hafar 50,6%. Telur daga sína talda á DV Fyrir aðalfundi kvaðst Reynir viðbúinn því að þurfa að láta af störf- um sem ritstjóri DV. Aðspurður um stöðu sína eftir fundinn segist hann ekki vita hver hún væri. „Ég vona að staðan skýrist sem fyrst. Ég er í þessari vinnu enn og bíð bara fyrir- mæla nýrrar stjórnar,“ segir Reynir, sem er þó ekki vongóður um áfram- haldandi veru í ritstjórastól DV. „Björn Leifsson hefur lýst því yfir með afdráttarlausum hætti að hann vilji losna við mig sem ritstjóra og fleiri hafa gefið það til kynna. Ég á því ekki von á því að verða lengi í þessu starfi til viðbótar.“ Óhræddur um eigin framtíð segist Reynir þó hafa áhyggjur af því hvað verði um starfsfólk DV. „Ég ætla að vona að ný stjórn skilji út á hvað þetta gengur allt saman þannig að starfsfólkið sé sæmilega hólpið.“ Þar sem enginn hluthafi fer með meira en 5% atkvæðisrétt á aðalfundi DV ehf. endurspeglar niðurstaða fundarins ekki réttan eignarhlut að- ila. Meirihlutaeigendur fóru því með minni hlut en ella í atkvæðagreiðsl- unni en urðu samt sem áður ofan á að lokum. Í stjórn taka nú sæti Lilja Skaftadóttir, Ólafur Magnússon, Þorsteinn Guðnason, Jón Þorsteinn Gunnarsson og Björgvin Þor- steinsson. Ekki náðist í Sigurð G. Guðjónsson við vinnslu fréttarinnar. Á ekki von á því að vera áfram  Hart var barist um meirihluta í stjórn DV ehf. á aðalfundi félagsins í gærkvöldi  Þrefað var um umboð hluthafa fyrir fund  Reynir Traustason tapaði naumlega með 49,4% atkvæða í stjórnarkjöri Á átakafundi Reynir Traustason kemur til aðalfundarins sem stóð fram á kvöld. Spenna Hart var deilt á aðalfundi DV ehf. í gær en tveir hópar börðust um meirihluta í stjórn félagsins. Morgunblaðið/Kristinn Hluthafar Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður mætti fyrir hönd meirihluta hluthafa í DV ehf. Þorsetinn Guðnason, sem fór fyrir hópi meirihluta eigenda í DV ehf., vill ekki svara því að svo stöddu hvort Reynir Traustason verði áfram í ritstjórastóli blaðs- ins. „Aðalfundurinn var að klár- ast fyrir rúmum klukkutíma og engar ákvarðanir hafa verið teknar um framtíð hans,“ sagði hann í gærkvöldi. DV verður áfram frjálst og óháð dagblað að sögn Þorsteins sem segir að ekki verði skipt um kúrs í ritstjórnar- stefnu blaðsins. „Við erum jaðar- blað sem sinnir rannsóknar- blaðamennsku og unnið fjölda verðlauna á þeim vettvangi og ætlum að halda þeirri stefnu.“ Rekstrarlega stöðu blaðsins seg- ir hann nokkuð góða og nú verði bætt í og blaðið styrkt. Bætt í og blaðið styrkt ÞORSTEINN GUÐNASON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.