Morgunblaðið - 06.09.2014, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.09.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Ób rey tt ve rð síðan 2009 Malín Brand malin@mbl.is Það þótti virkilega eftirsókn-arvert að komast í sveit yfirsumartímann á bænumBrautarhóli í Svarfaðardal hér áður fyrr. Þangað komu aðallega drengir og „þeir hlógu og skríktu þegar þeir komu á Brautarhól en grétu þegar þeir þurftu að fara á haustin,“ eins og Lilja Sólveig Krist- jánsdóttir orðar það en hún var fædd og uppalin á bænum. Móðir hennar hafði það góð áhrif á alla í kring að börnin sem voru í fóstri á Brautarhóli yfir sumarið vildu helst ekki fara það- an. Lilja ólst upp við mikið ástríki, söng og kveðskap og mótaði það hana snemma enda byrjaði hún að yrkja ung að árum. „Pabbi minn sat með mig á hnjánum og kvað við mig og við sungum líka. Við systkinin sungum með þremur röddum en það vantaði alltaf tenór.“ Elsta vísan sem hún man eftir að hafa sett saman er frá því hún var sjö ára gömul. Raunar man Lilja ótrúlega langt aftur og til dæmis sagði hún blaðamanni frá því þegar pabbi hennar fór með hana tveggja ára gamla í myndatöku. „Ég ríghélt í hann en hann vildi að ég væri ein á myndinni,“ segir hún og á um- ræddri ljósmynd má sjá hvernig Lilja hélt um vísifingur vinstri handar sinnar því annað gat hún ekki haldið í. Minningin er 89 ára gömul og segir Lilja að hún muni þetta mjög vel og eru æskuárin og sjálf bernskan henni í fersku minni. Mörg ljóða Lilju og vísna hafa verið skráð niður en þó ekki nándar nærri allur kveðskapur hennar sem spannar hátt í áttatíu ár. Skáldkona sem man 89 ár aftur í tímann Það telst óvenjulegt að fólk muni eftir fyrstu árum ævi sinnar. Lilja Sólveig Krist- jánsdóttir er 91 árs og er með einstaklega gott minni og man allt að 89 ár aftur í tímann. Það er síður en svo það eina sem er sérstakt við Lilju sem hefur farið ótroðnar slóðir á langri og viðburðaríkri ævi. Á morgun, sunnudag, verður sér- stök guðsþjónusta á Grund þar sem allir sálmarnir verða eftir Lilju sjálfa. Skáld Lilja Sólveig Kristjánsdóttir hefur alla tíð notað skáldskapinn til að fá tilfinningalega útrás. Hún yrkir bæði þegar hún er sorgmædd og glöð. Samstarfsverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og Samtaka kvenna af erlendum uppruna kallast Sögu- hringur kvenna. Á morgun, sunnudag klukkan 13.30, hefst starfsemi hans á ný eftir sumarfrí og er óhætt að segja að dagskráin sé fjölbreytt. Dagskrárliðir Söguhringsins fara fram í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi og verður dagskráin kynnt þar með pomp og prakt. Danskennarinn Tanya Dimitrova mun á morgun leiða þátttakendur í gegnum zumba, „bollywood“ og diskó. Söguhringur kvenna hefur starfað síðan 2008 og snýst fyrst og fremst um að tengja konur í gegnum sögur og sköpun en þó er vel við hæfi að byrja vetrardagskrána með hraustlegum dansi til að „hrista“ hópinn saman. Söguhringurinn hitt- ist fyrsta sunnudag hvers mánaðar og býður alla velkomna. Vefsíðan facebook: Söguhringur kvenna List Eitt verka Söguhringsins prýðir nú kaffihús og kaffipoka Kaffitárs. Söguhringur kvenna byrjar á ný Á morgun, sunnudaginn 7. sept- ember, klukkan 14 verður fyrsta barnaleiðsögn haustins í Þjóðminja- safninu. Fyrsta sunnudag hvers mán- aðar yfir vetrartímann er boðið upp á slíka leiðsögn sem sérstaklega er ætluð börnum. Að þessu sinni mun safnkennari fjalla um landnám Ís- lands á 9. öld og baðstofulíf á 19. öld. Sverð, skartgripir og beinagrindur landnámsmanna, baðstofa, askur og strokkur eru meðal gripa sem verða skoðaðir. Að lokinni leiðsögn er til- valið að bregða sér í ratleik um safn- ið. Leiðsögnin er ókeypis og öll börn og fjölskyldur þeirra velkomin. Endilega … … sjáið aska og sverð á safninu Morgunblaðið/Kristinn Spenna Börnin fá að skoða ýmislegt. Í gær hófst húðflúrhátíðin Icelandic Tattoo Expo og stendur hún til sunnudags. Hátíðin er haldin á Hótel Sögu eins og síðustu ár. Alls taka 56 flúrlistamenn þátt og koma þeir víðs- vegar að úr heiminum. Að þessu sinni verður boðið upp á flúr í öllum flokk- um listgreinarinnar en flokkarnir eru sex og nefnast á ensku old school, new school, japanese, tribal, realistic og portrait. Ekki hefur verið boðið upp á alla flokkana áður og er það til marks um fjölbreytnina á hátíðinni sem sífellt stækkar. Hvort sem fólk hefur áhuga á að fá sér flúr eður ei er áhugavert að margra mati að fylgjast með flúr- listamönnum við vinnu sína og er sannarlega hægt að fylgjast með þeim á hátíðinni. Á hverri hátíð er keppt um fegursta flúrið og verður keppt í fimmtán flokkum núna. Ýmis skemmtiatriði verða og má þar nefna sverðagleyp- inn og flúrfyrirsætuna Luccky Hell sem sýna mun gestum listir sínar. Nánar um hátíðina á síðunni: www.icelandictattooexpo.is. Flúrhátíðin Icelandic Tattoo Expo í þriðja sinn á Sögu Fyrsta skipti boðið upp á flúr í öllum flokkum listgreinarinnar Morgunblaðið/Ómar Flúr Á flúrhátíðinni eru 56 listamenn sem flúra áhugasama gesti í bak og fyrir. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.