Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 24
FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Mario Draghi, bankastjóri Evrópska seðla- bankans, kom fjárfestum í opna skjöldu í fyrra- dag þegar tilkynnt var um frekari vaxtalækk- anir auk þess að boða stórtæka áætlun um kaup á eignatryggðum skuldabréfum fyrir hundruð milljarða evra. Markmiðið er að ýta undir útlánaaukningu og heildareftirspurn á evrusvæðinu. Aðgerðir Evrópska seðlabankans, sem margir greinendur og fjárfestar telja löngu tímabærar, eru til marks um þann mikla efna- hagsvanda sem evruríkin standa frammi fyrir. Hættan á langvarandi verðhjöðnunarskeiði – miklu atvinnuleysi ásamt lágri verðbólgu og litlum hagvexti – er raunveruleg. Spáð er að verðbólga á evrusvæðinu verði undir markmiði Evrópska seðlabankans – undir en nálægt 2% – næstu þrjú árin. Stýrivextir bankans voru lækkaðir úr 0,15% í 0,05% auk þess sem innlánsvextir fóru niður í mínus 0,2%. Bankar á evrusvæðinu þurfa því í reynd að greiða fyrir að geyma fé í seðlabank- anum. Áætlun Evrópska seðlabankans um skuldabréfakaup felst í beinum kaupum á skuldabréfavafningum sem innihalda sér- tryggð og eignatryggð verðbréf. Áætlað er að kaupin hefjist í október. Þau gætu numið um 200 milljörðum evra til að byrja með en að lok- um farið rétt undir þúsund milljarða evra. Það er um 10% af landsframleiðslu evrusvæðisins. Það vakti athygli greinenda að farið var fram með áætlunina þrátt fyrir ósamstöðu innan stjórnar Evrópska seðlabankans. Slíkt þykir undirstrika skýran ásetning Draghi um að láta ekki pólitíska andstöðu kjarnaríkjanna – ekki síst Þýskalands – koma í veg fyrir að bankinn grípi til óhefðbundinna aðgerða. Eigi áætlunin hins vegar að hafa tilætluð áhrif telja sérfræðingar mikilvægt að skulda- bréfavafningarnir innihaldi lánasöfn með ólík- um eignum og að fjármálafyrirtæki geti í reynd tekið þær af efnahagsreikningnum. Þannig skapist forsendur fyrir banka að auka útlánin. Draghi hefur sent boltann yfir til stjórn- málamanna. Stóra spurningin er nú hvort rík- isstjórnir á evrusvæðinu fylgi eftir nýrri áætl- un peningamálayfirvalda með skattalækkunum eða auknum opinberum fjár- festingum. Með aðgerðum seðlabankans hefur verið stigið skref í rétta átt en ávinningurinn verður líklega takmarkaður haldist stefna kjarnaríkjanna í ríkisfjármálum óbreytt. Mario Draghi snýr vörn í sókn AFP ECB Ekki var samstaða um áætlun Draghi innan stjórnar seðlabankans.  Evrópski seðlabankinn hyggst kaupa eignatryggð skuldabréf af bönkum fyrir hundruð milljarða evra 24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Allt til listmálunar Strigar, penslar, olíulitir, acryllitir, trönur, pallettur, spaðar, svampar, lím, íblöndunarefni, varnish, þekjulitir, teikniblokkir, pappír og arkir Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Strigar, ótal stærðir frá kr. 295 „SARA& ALMA“ Listmálunarstrigar, 58 stærðir frá 10x10cm til 150 x 195cm Acryllitir 75 ml 555 Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 frá kr. Mikið úrval af listavörum Trönur á gólf frá kr. 7.995 Ný sending Þekjulitir/ Föndurlitir frá kr. 845 Skissubækur frá kr. 790 ● Hagtölur um ný störf í Bandaríkj- unum ollu vonbrigðum í gær, en ein- ungis 142 þúsund ný störf urðu til í síð- asta mánuði. Greinendur höfðu vænst þess að ágúst yrði sjötti mánuðurinn í röð þar sem 200 þúsund ný störf sköp- uðust, sem hefði gefið skýra vísbend- ingu um að efnahagsbati í Bandaríkj- unum væri að festa sig í sessi. Vonbrigði með hagtölur Ekkert gjaldeyrisútboð hefur enn verið boðað hjá Seðlabanka Íslands og er það í fyrsta skipti frá því að útboðin hófust í júnímánuði 2011. Stefán Jóhann Stefánsson, upp- lýsingafulltrúi Seðlabankans, sagði í samtali við mbl.is í gær að það þýddi ekki endilega að útboðsferl- inu væri lokið. „Áður hefur komið fram að líklega verði tilkynnt um það sérstaklega áður en síðasta út- boðið verður haldið.“ Síðasta gjaldeyrisútboð Seðla- bankans fór fram þann 2. sept- ember. Regína Bjarnadóttir, for- stöðumaður greiningardeildar Arion banka, sagði í samtali við mbl.is í fyrradag að þetta gæti bent til þess að útboðsskrefunum væri lokið og ákvörðunar um næstu skref í afnámsferli fjármagnshafta væri að vænta. Stefán Jóhann sagði hins vegar að sífellt væri verið að endurmeta næstu skref en vildi ekki gefa frek- ari upplýsingar að svo stöddu. Útboðin eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskipti í samræmi við áætlun Seðlabankans um losun hafta frá árinu 2011. Þar geta fjár- festar sem vilja selja krónur fyrir gjaldeyri og fjárfestar sem vilja fjárfesta á Íslandi til langs tíma átt í viðskiptum. Frá því að útboðin hóf- ust hafa þau fækkað aflandskrón- um um 146 milljarða króna. Svo virðist sem útgönguþrýst- ingur vegna aflandskróna fari tals- vert minnkandi, sem endurspeglast í því að munurinn á útboðsgengi og gengi krónunnar gagnvart evru hefur minnkað um helming frá ára- mótum. Í upphafi árs var gengi aflandskrónu gagnvart evru um 210 krónur en í síðasta útboði var gengið komið í rúmar 180 krónur. Nemur lækkunin 29 krónum á hverja evru frá febrúarmánuði sem jafngildir 16% styrkingu. Engin gjaldeyris- útboð á dagskrá  Minni þrýstingur vegna aflandskróna Morgunblaðið/Árni Sæberg SÍ Gjaldeyrisútboð Seðlabankans hófust fyrir röskum þremur árum.                                     ! " ## #"$  ## ! #$ #  %!  &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 #  #$ "% #"%$ # % # $ #!!  %!# $  !! " #"#$  #$ ## # #$ %!%% #"%! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.