Morgunblaðið - 06.09.2014, Qupperneq 25
VIÐTAL
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við
því að samhliða uppgangi í íslensku
efnahagslífi séu auknar líkur á því að
fjármálafyrirtæki fari á ný að falast
eftir kröftum starfsfólks Fjármála-
eftirlitsins (FME). Hátt í helmingur
starfsfólks FME hefur starfað hjá
stofnuninni skemur en fimm ár – að-
eins örfáir hafa meira en tíu ára
reynslu – og þess vegna sé „áríðandi“
að stofnunin marki sér skýra stefnu
um hvernig henni getur haldist á
starfsfólki á komandi árum.
Þetta kemur fram í úttekt AGS á
fylgni FME við 29 kjarnareglur
Basel-nefndarinnar um skilvirkt
bankaeftireftirlit. Sjóðurinn bendir
meðal annars á mikilvægi starfsþjálf-
unar í gegnum samstarf við eftirlits-
stofnanir erlendis, sem hluti af end-
urmenntunarstefnu, en einnig sé
mikilvægt að FME geti boðið starfs-
fólki „aðlaðandi launakjör“.
„Við erum mjög meðvituð um
þessa hættu,“ segir Unnur Gunnars-
dóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, í
samtali við Morgunblaðið. „Til að
reyna að sporna við þessari þróun
höfum við aukið jafnt og þétt tæki-
færi starfsfólks til að öðlast starfs-
þjálfun, meðal annars fyrir tilstilli
evrópskra eftirlitsstofnana á fjár-
málamarkaði.“
Á það hefur verið bent að eitt af
þeim fjölmörgu vandamálum sem
FME þurfti að glíma við í aðdrag-
anda falls bankanna var skortur á
hæfu og reynslumiklu starfsfólki,
sem gat í raun staðið á jafnræðis-
grundvelli gagnvart fjölmennu
starfsliði stóru viðskiptabankanna.
Aðpurð segir Unnur að ekki séu
enn vísbendingar um að sú þróun sé
að endurtaka sig. Starfsmannavelta
FME sé hlutfallslega lítil enda þótt
hún viðurkenni að það sé ástæða til að
óttast að það kunni að breytast þegar
einkageirinn taki við sér.
Unnur undirstrikar þó að það sé
óraunhæft að stofnunin geti nokkurn
tíma verið samkeppnishæf við fjár-
málafyrirtækin í launakjörum. „Við
erum ríkisstofnun og getum ekki far-
ið að keppa við stóru bankana eða
verðbréfasjóði á því sviði.“
AGS vill auknar valdheimildir
AGS kallar einnig eftir lagabreyt-
ingum til að styrkja enn frekar vald-
heimildir Fjármálaeftirlitsins þannig
að stofnunin geti sinnt eftirlitshlut-
verki sínu sem skyldi. Þetta sé ekki
síst aðkallandi, að sögn AGS, nú þeg-
ar bankarnir eru á nýfarnir að
stækka og áhættusækni að aukast.
Vill sjóðurinn að FME fái heimildir
til að gefa út varrúðarreglur og laga-
lega bindandi tilmæli.
Unnur segir að þessi ábending
AGS komi á óvart. „Valdheimildir
FME hafa aukist hröðum skrefum
frá bankahruni. Sjóðurinn er hins
vegar þeirrar skoðunar að það þyrfti
að ganga lengra. Veita ætti heimildir
til að geta brugðist fyrr við með milli-
þungum aðgerðum – en við núverandi
ástand geti FME aðeins sett fram
léttvægar kröfur um úrbætur eða
dregið fram stóru sleggjuna, starfs-
leyfissviptingu. Því telur AGS að
stofnunin þurfi fleiri úrræði.“
Hún bendir hins vegar á að von sé á
frumvörpum um starfsemi fjármála-
fyrirtækja sem taki á þessu að
stórum hluta þar sem FME verði
meðal annars veittar heimildir til að
hafa áhrif á útgreiðslu arðs og kaup-
aukagreiðslur fjármálafyrirtækja.
AGS er einnig þeirrar skoðunar að
ástæða sé til að gera tilmæli FME,
sem hingað til hafa aðeins verið leið-
beinandi, lagalega bindandi fyrir fjár-
málafyrirtæki. Unnur nefnir að
sjóðnum hafi þótt það skjóta skökku
við að leiðbeinandi tilmæli FME
væru ekki undanbragðalaust virt af
fjármálastofnunum. Þrátt fyrir að
forstjóri FME telji að slíkt skref gæti
styrkt eftirlitsumgjörðina þá sé hún
hlynnt leiðbeinandi tilmælum. „Þau
eru mýkri nálgun til að fá reynslu á
efni tilmælanna áður en þau eru fest í
lög eða reglur. Það er skynsam-
legra,“ útskýrir Unnur, „að beita
íhlutun í rekstur og starfsemi fyrir-
tækja með varfærnislegum hætti.“
AGS varar við spekileka frá FME
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Spekileki „Við erum mjög meðvituð um þessa hættu,“ segir Unnur.
AGS segir „áríðandi“ að Fjármálaeftirlitið marki sér stefnu um hvernig það hyggst halda í starfsfólk
á komandi árum Forstjórinn ekki sammála um að þörf sé á lagalega bindandi tilmælum
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014
Loftpressur í öll verk
- öflugarCompAir loftpressur fyrir stórt semsmátt
Þegar þörf er á kröftugum loftpressum eru CompAir
valkostur sem vert er að skoða. Hvort sem þig vantar 50 l
eða 10.000 l pressu þá eigum við réttu lausnina fyrir þig.
Láttu ekki afköstin fjúka út í veður og vind - veldu CompAir.
Við erum sérfræðingar í lofti!
Hentug í skúrinn
og bústaðinn
Olíufrí fyrir
tannlækninn
Handhæg fyrir
smiðinn
verkstæðið
sprautarann
Kraftajötunn fyrir stóriðjuna
Vinnuþjarkur fyrir
fiskvinnsluna
Sívinnandi fyrir
sandblásturinn
Aflmikil fyrir
Frábær fyrir framleiðsluiðnaðinn
Stöðug fyrir
Samkvæmt niðurstöðu úttektar AGS var lágmarksviðmiðum um kjarnareglur
um skilvirkt bankaeftirlit mætt í sjö tilfellum og níu voru uppfylltar að veru-
legu leyti. FME uppfyllti hins vegar ekki þrettán kjarnareglur að verulegu leyti.
Var úttektin byggð á endurskoðuðum kjarnareglum sem voru gefnar út árið
2012 af Basel-nefnd um bankaeftirlit. Þar er einkum lögð áhersla á að bæta
áhættumat og eftirlit með hliðsjón af þeim veikleikum sem komu fram í al-
þjóðlegu fjármálakreppunni 2008.
Unnur segir að það hafi verið mikið lærdómsferli að fara í gegnum úttektina
og skerpt á þeirri umbótavinnu sem hefur farið fram innan FME síðustu ár.
Hún viðurkennir þó að það hefði vitaskuld verið ánægjulegra ef stofnunin
hefði uppfyllt fleiri kjarnareglur. Það horfi hins vegar til bóta á næstu miss-
erum þar sem fyrir liggja frumvörp um innleiðingu á tilskipunum ESB um eft-
irlitsumgjörð og starfsemi fjármálafyrirtækja.
FME uppfyllti ekki 13 viðmið
ÚTTEKT AGS Á KJARNAREGLUM UM SKILVIRKT BANKAEFTIRLIT