Morgunblaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014
Tapashouse - Ægisgarður 2 - Sólfellshúsið - 101 Reykjavik
+354 512 81 81 - info@tapashouse.is - www.tapashouse.is
Velkomin á Tapashúsið
Tapas er svo miklu meira en bara matur. Tapas er upplifun.
Kíktu til okkar niður á höfn og njóttu þess að borða góðan mat!
Flottur hádegismatseðill
Spennandi kvöldmatseðill
Hjá okkur er opið í hádeginu og langt fram á kvöld
Sérfræðingar ýmsir reyna nú að
finna sambærileg dæmi við það
sem gerst hefur á „ofurmótinu“ í
Saint Louis í Bandaríkjunum þar
sem Ítalinn Fabiano Caruana, sig-
urvegari Reykjavíkurskákmótsins
2012, hefur unnið allar skákir sínar
í sjö fyrstu umferðunum og hafði
tryggt sér efsta sætið þegar þrjár
umferðir voru eftir. Árangur hans
var mældur upp á 3.593 elo stig.
Það kom í hlut heimsmeistarans
Magnúsar Carlsen að stöðva Ítal-
ann með harðsóttu jafntefli í 8.
umferð sem fram fór á fimmtu-
dagskvöldið. Magnús situr þegar
þetta er ritað í 2. sæti með 4½
vinning.
Ef taka á önnur dæmi úr skák-
sögunni ber að rifja upp Linares-
mótið 1994 þegar Anatolí Karpov
vann sex fyrstu skákir sínar og
þessi sigurganga leiðir einnig hug-
ann að ýmsum 100% afrekum
Bobby Fischers í mótum og ein-
vígjum og geta má þess að Viktor
Kortsnoj vann átta fyrstu skákir
sínar í Wijk aan Zee 1968. Það mót
nálgast ekki þá styrkleikagráðu
sem um ræðir í Saint Louis.
Ekki er nema von að andstæð-
ingar Ítalans: heimsmeistarinn
Magnús Carlsen, Levon Aronjan,
Venselin Topalov, Vachier-
Lagrave og Hikaru Nakamura hafi
virst ráðvilltir á svip þar sem þeir
sátu við taflið í hinni hátimbruðu
frægðarhöll skákarinnar í Saint
Louis. Hún stendur ekki langt frá
Mississippi-fljótinu sem ekki hefur
náð að hrífa með sér þau vandamál
sem Magnús Carlsen stendur
frammi fyrir þessa dagana varð-
andi heimsmeistaraeinvígið við
Anand sem sett hefur verið á 7.
nóvember nk. FIDE gaf Magnúsi
viku frest til viðbótar til að ákveða
sig en aðstandendur Magnúsar
hafa ekkert gefið upp um lyktir
þessa máls.
Hvað varðar sigurvegarann í Sa-
int Louis liggur fyrir að bók-
staflega allt hefur fallið með hon-
um en því verður ekki á móti mælt
að sigrar hans hafa verið sannfær-
andi og áreynslulausir. Hann mæt-
ir Nakamura og Aronjan í loka-
umferðunum en mótinu lykur á
morgun, sunnudag:
Saint Louis; 6. umferð:
Fabiano Caruana – Venselin
Topalov
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rc6 5. Rc3 a6 6. Rxc6 bxc6 7.
Bd3 d5 8. 0-0 Rf6 9. He1 Be7 10. e5
Rd7 11. Dg4 Kf8 12. Ra4!
Svartur gat ekki hrókað stutt
vegna leik 12. Bh6 o.s.frv. En til
viðbótar við áætlanir um kóngs-
sókn nær hvítur líka að þenja út
áhrifasvæði sitt á drottningarvæng.
12. … Da5 13. He2 h5 14. Df4 g5
15. Bd2 Dc7 16. Dg3 h4 17. Dg4
Hg8?
Eftir þennan leik ver að halla
undan færi hjá Topalov. Ekki gekk
17. … Rxe5 vegna 18. Hxe5! Dxe5
19. Bc3. Hann gat hinsvegar leikið
leikið 17. … h3! og á þá ágætis færi
þar sem eftir 18. g3 má nú svara
18. … Rxe5 þar sem 19. Hxe5
Dxe5 20. Bc3 strandar á 20. … d4!
t.d. 21. Bxd4 Dd5 sem hótar máti á
g2.
18. Hae1 c5 19. c4 dxc4 20. Bxc4
Bb7 21. h3 Hd8 22. Bc3 Rb8 23.
He3 Rc6?
Það er eins og Caruana hafi beð-
ið eftir þessum slaka leik. Hann
varð að reyna 23. … Bd5.
24. Bxe6! fxe6 25. Hf3+ Ke8
Leikurinn 25. … Kg7 sem Topa-
lov virðist hafa stólað dugar
skammt, hvítur vinnur skjótlega
með 26. Dh5! Hdf8 27. Hf6! o.s.frv.
26. Dxe6 Hg7 27. Dh6 Rd4 28.
e6!
Annar magnaður leikur, peðið
heldur svarta kónginum í herkví.
28. … Rxf3 29. gxf3 Bf8 30.
Dh5+ Ke7 31. Bxg7
– og Topalov gafst upp. Eftir
31. … Bxg7 kemur 32. Df7+ Ld6
33. e7! og vinnur létt.
Einstæð sigurganga
Fabiano Caruana
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is Það er ætíð mikið
gleðiefni þegar börn
koma í Rauða krossinn
á Íslandi, færandi
hendi með bros á vör.
Stolt afhenda þau
hagnað af sjálf-
sprottinni fjársöfnun,
oftar en ekki með tom-
bólu, til hjálparstarfs.
Það eru ef til vill bestu
meðmæli sem Íslands-
félag stærstu mann-
úðarsamtaka í heimi getur fengið, að
kynslóð eftir kynslóð finnst íslensk-
um börnum sjálfsagt að láta gott af
sér leiða. Tombólubörnin skipta þús-
undum. Mörg þeirra eru nú orðin
mömmur og pabbar, sem hvetja sín
eigin börn til góðra verka. Þannig er
keðjunni viðhaldið.
Landssöfnun Rauða krossins á Ís-
landi, Göngum til góðs, stendur nú
yfir. Til að vekja athygli á söfn-
unarstarfinu hefur Rauði krossinn
dreift gömlum ljósmyndum af tom-
bólubörnum á samfélagsmiðlum.
Þessar myndir hafa vakið mikla
lukku. Vinir og vandamenn hafa
glaðst yfir afrekum æskunnar og
fjölmörg tombólubörn á öllum aldri
ætla nú að endurnýja kynni sín við
hjálparstarf og gerast sjálfboðaliðar
fyrir Rauða krossinn í einn dag.
Í dag munu sjálfboðaliðar félags-
ins ganga í hús með rauða söfn-
unarbauka. Það er einlæg von mín,
að landsmenn taki vel á móti söfn-
unarfólki. Ekki má heldur gleyma að
allir geta gengið til góðs. Hægt er að
mæta á söfnunarstöðvar um allt land
og leggja hönd á plóg.
Landssöfnun fer fram annað
hvert ár og er þetta í áttunda sinn
sem gengið er til góðs. Í ár verður
safnað til styrktar innanlandsverk-
efnum Rauða krossins þar sem mikil
þörf er á að efla hjálparstarf.
Stærstu verkefni hreyfingarinnar
snúa ætíð að neyðarhjálp og mann-
úðarverkefnum. Sagan hefur enda
sýnt að þar sem neyðin er stærst
stendur Rauði krossinn næst. Þetta
á ekki síst við um í dag, þegar nátt-
úran minnir rækilega á tilvist sína
með jarðskjálftum og eldvirkni –
með tilheyrandi hættu á hamförum.
Við þessar aðstæður er Rauði kross-
inn tilbúinn að opna fjöldahjálp-
arstöðvar og veita áfallahjálp verði
þess þörf.
Í vor gaf Rauði krossinn út skýrsl-
una Hvar þrengir að? Skýrslan er
unnin fyrir félagið á fjögurra ára
fresti og er markmiðið með útgáf-
unni að finna þá hópa í þjóðfélaginu
sem þurfa hvað mest á aðstoð að
halda. Þannig vekur Rauði krossinn
athygli fjölmiðla, almennings og,
ekki síst, stjórnvalda á þeim þjóð-
félagshópum sem eru berskjaldaðir
fyrir fátækt, félagslegri einangrun
og fordómum.
Niðurstöður könnunarinnar sýna
glöggt að misskipting á Íslandi fer
vaxandi. Ætti það að vera okkur öll-
um umhugsunarefni. Eldri borgarar
búa einnig við sífellt lakari kjör.
Geðræn vandamál sökum félags-
legrar einangrunar verða æ algeng-
ari. Við þessu reynir Rauði krossinn
að bregðast. Heimsóknarvinir eru
sjálfboðaliðar sem bjóðast til að
veita þeim sem þjást af félagslegri
einangrun dýrmætan félagsskap.
Meðal heimsóknarvina má einnig
finna hundavini, sjálfboðaliða sem
koma með hund meðferðis í heim-
sókn. Það vita þeir sem til þekkja að
gott hundaknús getur verið ómet-
anlegt.
Í áðurnefndri skýrslu kom einnig
fram að umburðarlyndi gagnvart
innflytjendum fer minnkandi. For-
dómar fara stigmagnandi, sérstak-
lega gagnvart þeim sem koma frá
löndum utan Evrópu. Rauði kross-
inn hefur, hátt í þrjá áratugi, staðið
að fjölbreyttum verkefnum til að að-
stoða innflytjendur við aðlögun að
íslensku samfélagi. En betur má ef
duga skal. Á þessu ári
hefst metnaðarfullt
átaksverkefni á vegum
Rauða krossins sem
miðar að því að draga
úr fordómum gagnvart
innflytjendum.
Einnig verður lögð
áhersla á áframhald-
andi fjármögnun
skaða-
minnkunarverkefnisins
Frú Ragnheiðar, sem
er sérútbúinn sjúkra-
bíll. Verkefnið hefur
reynst vel og er ætlað
jaðarhópum samfélagsins, til að
mynda útigangsfólki, heimilis-
lausum og fíklum – þar sem boðið er
upp á almenna heilsugæslu án for-
dóma eða annarra kvaða.
Hér hefur aðeins verið tæpt á
brotabroti af þeim verkefnum sem
sjálfboðaliðar Rauða krossins sinna
á degi hverjum. Hjálparsíminn 1717
er verkefni sem hefur komið fjöl-
mörgum til hjálpar og jafnvel bjarg-
að mannslífum. Rauði krossinn rek-
ur Konukot, athvarf fyrir heimilis-
lausar konur í Reykjavík.
Fatasöfnun Rauða krossins er ómet-
anleg. Er fatasalan orðin að mikil-
vægum tekjulið innanlands svo ekki
sé minnst á að fötum er dreift
ókeypis til þeirra sem á þurfa að
halda. Einnig tókst að dreifa hlýjum
fötum til Hvíta-Rússlands síðasta
vetur, þar sem geisaði einn erfiðasti
vetur í manna minnum. Þá er ótalið
eitt stærsta verkefni Rauða krossins
til fjölda ára sem er kaup og rekstur
á öllum sjúkrabílum á Íslandi – en
þeir eru um 70 talsins og flytja um
29 þúsund sjúklinga á hverju ári.
Í ár fagnar Rauði krossinn á Ís-
landi, sem er hluti afalþjóðahreyf-
ingu Rauða krossins og Rauða hálf-
mánans, 90 ára afmæli. Félagið
hefur fyrir löngu tryggt sér var-
anlegan sess í hjarta íslensku þjóð-
arinnar. Rauði krossinn er orðinn að
samheiti við hjálparstarf – hvort
heldur innlent eða alþjóðlegt. Það er
enda þannig, að þegar börn vilja
halda tombólu er það næsta sjálfsagt
að Rauði krossinn verði fyrir valinu
þegar gefa á afraksturinn í gott mál-
efni.
Rétt eins og tombólubörnin hafa
gert áratugum saman ætla ég að láta
gott af mér leiða í dag. Ég ætla að
ganga til góðs. Hvað með þig?
Göngum til góðs
fyrir Rauða krossinn
Eftir Hermann
Ottósson » Stærstu verkefni
hreyfingarinnar
snúa ætíð að neyðar-
hjálp og mannúðarverk-
efnum.
Hermann
Ottósson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rauða krossins á Íslandi.
Mér er spurn: Á að neyða upp á okk-
ur, dygga hlustendur Rásar 1, þess-
um óþolandi, hundleiðinlegu,
amerískættuðu,
leiknu auglýs-
ingum af Rás 2
með hverjum
fréttatíma, eins
og gerðist á
fimmtudaginn?
Er ekki nóg að
við þurfum að
þola þennan
fjanda í þessari
Morgunútgáfu,
sem er á sameig-
inlegum rásum, þótt við þurfum ekki
endilega að hafa þetta með hverjum
fréttatíma líka á Rás 1? Ég lét þau í
Morgunútgáfunni vita það, að Rás 1
mætti nú alveg halda sínum sér-
einkennum og vera öðru vísi út-
varpsstöð en allar glamur-
útvarpsstöðvarnar 20, sem eru í
gangi, og við dyggir útvarpshlust-
endur Rásar 1 viljum helst ekki
hlusta á. Við viljum líka, að Rás 1
breytist sem minnst og haldi sínum
einkennum, verði sama gamla, góða
gufan og hún hefur alltaf verið. Ég
tek líka undir það, sem sagt var um
veðurfregnirnar í morgunsárið.
Hvers vegna var verið að fella þær
niður? Þessir strákar í Efstaleitinu
mega passa sig að styggja okkur,
hlustendur Rásar 1, ekki alltof mikið
með breytingunum.
Nú er nóg komið.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Leiknar auglýsingar á Rás 1
og veðurfregnirnar
Guðbjörg Snót
Jónsdóttir
Í óveðrinu síðastliðinn sunnudag
hefur fínasta dúnúlpa fokið frá eig-
anda sínum. Hún fannst við Salon
Veh í Kringlunni 7, Húsi verslunar-
innar, og bíður þar eiganda síns.
Elsa.
Úlpa fannst í 103
Eru eldgos og erlendar stríðsfréttir
það eina sem fólk vill sjá?
Því ekki að gefa fólki jákvæðar
fréttir af því sem konur eru að gera
á landsbyggðinni.
Inga Þyri Kjartansdóttir.
Jákvæðar fréttir, takk