Morgunblaðið - 06.09.2014, Síða 42

Morgunblaðið - 06.09.2014, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2014 Það er svo sem ekkert skipulagt. Ætli ég baki ekki köku, eldieitthvað gott um kvöldið og njóti samverunnar með strákun-um mínum. Um kvöldið væri toppurinn að komast í kvöld- reiðtúr þegar drengirnir eru sofnaðir,“ segir Kristín Þórðardóttir lögfræðingur sem er 35 ára í dag. Hesturinn sem yrði fyrir valinu er gæðingurinn Mörður frá Lynghaga, ef að líkum lætur myndi Kristín þeysast um á Njáluslóðum. Kristín er búsett á Hvolsvelli ásamt sam- býlismanni sínum, Friðriki Erlingssyni rithöfundi, samtals eiga þau þrjá drengi á aldrinum átta til tveggja ára. Kristín starfar sem fulltrúi sýslumanns og lögreglustjóra á Hvolsvelli. Auk þess situr hún í sveitarstjórn og er oddviti Sjálfstæðisflokks í Rangárþingi eystra. Kristín segist ekki halda oft upp á afmæli sitt en þó eru tveir afmælisdagar eftirminnilegir. Þegar hún var tíu ára gömul buðu foreldrar hennar öllum vinkonuskaranum út að borða á nýjan pítsu- stað við brúarsporðinn á Selfossi. „Þetta var voða gaman því í þá daga voru ekki pítsustaðir á hverju strái, þótt það sé náttúrlega af- skaplega stutt síðan þetta var.“ Þegar hún varð 25 ára var hún stödd í Vínarborg í Austurríki í skiptinámi í lögfræði. „Ég var þá ný- komin út. Allir sem voru með mér á þýskunámskeiði komu með mér út að borða. Seinna um kvöldið fórum við út á lífið. Það er eftir- minnilegt að hafa verið alein þarna úti á þessum tímamótum og finna samt hvað allir voru tilbúnir að halda upp á daginn með mér og gleðja mig, bláókunnuga manneskjuna, á allan hátt. Það er minn- ing sem er mér kær.“ thorunn@mbl.is Kristín Þórðardóttir lögfræðingur 35 ára Á jökli Kristín Þórðardóttir afmælisbarn á Eyjafjallajökli. Kvöldreiðtúr á Njáluslóðum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Garður Emma Karen Ómarsdóttir fæddist 27. október kl. 1.45. Hún vó 3.065 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðrún Freyja Agnars- dóttir og Ómar Kári Eyjólfsson. Nýir borgarar Þrjár duglegar stelp- ur úr Háaleitishverfi bjuggu til teygjuarm- bönd og seldu. Ágóð- inn af sölunni rann til Rauða krossins, alls kr. 4.680. Stelpurnar heita Ísbjörg Elín Níelsen, Freyja Rán Káradóttir og Elisa- beth Emma Jóns- dóttir. Hlutavelta S igurður Kjartan fæddist í Keflavík 6.9. 1964 og ólst þar upp. Hann bjó í Garðinum 1989-2002 en þá flutti hann ásamt fjöl- skyldu sinni aftur til Keflavíkur og hefur átt þar heima síðan. „Á æskuárunum fórum við Ásgeir bróðir í Vatnaskóg nokkur sumur og létum býsna vel af þeirri dvöl eins og allur sá strákaskari sem þar hef- ur dvalið í gegnum árin og skiptir líklega orðið þúsundum. Við Ásgeir bróðir vorum alltaf miklir félagar á æskuárunum og brölluðum margt saman, ásamt krakkaskaranum á Smáratúninu og síðan í Eyjabyggðinni. Þar var alltaf nóg að stússa fyrir hressa krakka á túnunum og í gömlu bröggunum.“ Kynntist konunni í vinnunni Kjartan hóf sinn starfsferil 13 ára, fyrst í sumarvinnu og eftir grunnskóla í fullu starfi: „Ég byrj- Kjartan Steinarsson, framkvændastj. K. Steinarsson ehf. – 50 ára Starfið og félagsstörfin Kjartan þarf stundum að blanda saman vinnu og áhugamálunum. Hér er hann á á bílasöl- unni með málverk eftir Braga Einarsson en það var selt á uppboði hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur í fyrra. Bílasali í aldarfjórðung Útskrift Guðbjörg, Sigtryggur, Theodór og Kjartan þegar Sigtryggur út- skrifaðist sem stærðfræðingur og tölvunarfræðingur frá MIT í Boston. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2 Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu, bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti, kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar, hjólastillingar og margt fleira. LAGFÆRUM BÍLINN VIÐ www.solning.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.