Morgunblaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
20%
AFSLÁTT
UR
Gildir í október
Lyfjaauglýsing
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Áform innan verkalýðshreyfingar-
innar um að setja launakjörum
stjórnenda í fyrirtækjum í eigu lífeyr-
issjóða ákveðnar skorður eða há-
marksviðmið verða meðal helstu
mála á 41. þingi Alþýðusambands Ís-
lands, sem hefst í dag.
,,Hver eiga þau viðmið að vera?
Eiga þau að vera almenn eða tölu-
sett?“ segir m.a. í umræðuskjali mið-
stjórnar, sem lagt verður fyrir þingið.
Búist er við miklum umræðum um
málið en í ljós kemur á föstudag, á
síðasta degi þingsins, hvort þing-
fulltrúar samþykkja að sett verði þak
á launin og hver útfærsla þess verður.
Söguleg breyting lögð til með
fjölgun varaforseta
Fjallað verður um þrjá málaflokka
á þinginu í vinnuhópum í þremur mál-
stofum og fer málefnavinnan fram
með „þjóðfundarfyrirkomulagi“ til að
tryggja möguleika sem flestra á
virkri þátttöku. Fjalla á um kaup og
kjör og sköpun verðmæta til að ná
fram jöfnuði, velferðarmál og loks
vinnumarkaðsmál.
Þá er búist við mikilli umræðu um
tillögur sem lagðar verða fyrir þingið
um breytingar á lögum Alþýðusam-
bandsins. Eins og fram hefur komið
er m.a. lagt til að varaforsetum ASÍ
verði fjölgað í tvo, og stofnuð embætti
fyrsta og annars varaforseta. Leggur
uppstillingarnefnd til að Sigurður
Bessason, formaður Eflingar stéttar-
félags, og Ólafía B. Rafnsdóttir, for-
maður VR, verði varaforsetar. Þetta
yrði þó alls ekki í fyrsta sinn í sögu
ASÍ sem tveir varaforsetar starfa
með forseta sambandsins en viðmæl-
endur innan ASÍ fullyrða hins vegar
að verði þessi tillaga samþykkt, sé
hún söguleg og marki á vissan hátt
pólitíska stefnubreytingu innan
hreyfingarinnar.
Varaforsetaefnin tvö koma úr
tveimur stærstu stéttarfélögunum
innan ASÍ og hefur formaður VR
aldrei áður gegnt starfi varaforseta í
sögu hreyfingarinnar. Félagsmenn í
stéttarfélögunum tveimur eru um 51
þúsund talsins, um 29 þúsund í VR og
um 22 þúsund í Eflingu. Fulltrúar
þeirra verða því fjölmennir á þingi
ASÍ en alls eiga um 300 þingfulltrúar
rétt til setu á þinginu, þar af eru
fulltrúar VR 85 og 45 fulltrúar sitja
þingið fyrir hönd Eflingar.
Aukið agavald
Innan verkalýðshreyfingarinnar
búast menn ennfremur við því að
skiptar skoðanir verði við umræður
um aðra lagabreytingartillögu á
þinginu, sem fjallar um viðmiðunar-
reglur ársreikninga aðildarfélaga og
landssambanda ASÍ. Tillagan felur í
sér að agavald ASÍ gagnvart aðild-
arfélögunum er aukið hvað varðar
skil sjóða aðildarfélaganna á árs-
reikningum o.fl., svo sem vegna
sjúkrasjóða.
Að loknu setningarávarpi Gylfa
Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, á
þinginu í dag mun Eygló Harðardótt-
ir, félags- og húsnæðismálaráðherra,
flytja ávarp og fyrir hádegi flytja þrír
gestir ræður á þinginu. Þeir eru
Norðmaðurinn Jon Erik Dølvik, sér-
fræðingur í vinnumarkaðsmálum, Ás-
mundur Stefánsson, hagfræðingur og
fyrrv. forseti ASÍ, og Nína Helga-
dóttir, sviðsstjóri hjá Rauða krossin-
um.
Morgunblaðið/Kristinn
Blikur á lofti 300 fulltrúar launafólks á almennum vinnumarkaði koma saman á þingi ASÍ í dag. Þeir eru fulltrúar
um eitt hundrað þúsund félagsmanna í ASÍ. Hér eru tveir þeirra að störfum á húsþaki í Hafnarfirði síðdegis í gær.
Ræða þak á laun stjórnenda
Fjölmörg mál og lagabreytingar á þriggja daga þingi ASÍ sem hefst í dag Fjölga á varaforsetum
sambandsins í tvo Stungið upp á Sigurði Bessasyni og Ólafíu B. Rafnsdóttur Framboð gegn Gylfa
Mikil málefnavinna
» Um 300 þingfulltrúar munu
sitja þing ASÍ.
» Fyrri umræða um tillögur að
lagabreytingum fer fram á
þinginu í dag en ljúka á af-
greiðslu þeirra á morgun.
» Málefnavinna í nefndum og
hópum fer fram alla þingdag-
ana en á föstudaginn eiga nið-
urstöður úr þeirri vinnu að
liggja fyrir til afgreiðslu.
Horfur í íslensku efnahagslífi eru
bjartari en um langt árabil sam-
kvæmt nýrri spá hagdeildar ASÍ
sem kynnt var í gær. Þar segir að
það sé þó áhyggjuefni að verðbólga
fari vaxandi og verði yfir verðbólgu-
markmiði Seðlabankans næstu tvö
árin. Því megi búast við að Seðla-
bankinn bregðist við með því að
hækka vexti en ASÍ spáir 3,1% verð-
bólgu á næsta ári.
„Framundan er ágætur vöxtur
landsframleiðslu og gerir spáin ráð
fyrir að hagvöxtur verði 3,1-3,5%
fram til ársins 2016. Samkvæmt
spánni verður vöxtur einkaneyslu á
bilinu 3,4%-4,3% og vex í takt við
batnandi stöðu heimilanna en gert er
ráð fyrir að kaupmáttur launa vaxi,
skuldir lækki og væntingar almenn-
ings verði góðar. Fjárfestingar taka
við sér og aukast á bilinu 14,8%-
17,2% en gert er ráð fyrir að ráðist
verði í byggingu þriggja nýrra kís-
ilverksmiðja og að íbúðafjárfesting
aukist um rúm 20% á ári út spátím-
ann. Gangi spáin eftir fer hlutfall
fjárfestinga af landsframleiðslu yfir
20% á árinu 2016. Þá dregur úr at-
vinnuleysi,“ segir í hagspá ASÍ.
Bent er á að þrátt fyrir að dragi úr
atvinnuleysi og atvinnuþátttaka auk-
ist þá virðist meira atvinnuleysi en
þekktist fyrir hrun vera að festast í
sessi hér á landi. Hagdeild ASÍ segir
að þrátt fyrir betri horfur í efna-
hagslífinu séu undirliggjandi veik-
leikar í hagkerfinu sem brýnt sé að
taka á. Gjaldeyrishöftin séu enn til
staðar og ekki séu miklar líkur á að
þau hverfi í bráð.
Gera ráð fyrir að hrina launa-
leiðréttinga muni halda áfram
„Ekkert bólar á tillögum ríkis-
stjórnarinnar um gengis- og pen-
ingamálastefnu sem áttu að liggja
fyrir í sumarbyrjun,“ segir ennfrem-
ur í hagspánni.
Fram kemur að búast megi við að
jöfnuður á viðskiptum við útlönd
versni. Þrátt fyrir að ríkissjóður
verði rekinn með afgangi sé ekki sjá-
anlegt að ríkisfjármálin muni styðja
við að stöðugleika sé viðhaldið, sem
hljóti að vera eitt helsta markmið
efnahagsstjórnarinnar.
„Þvert á móti virðast stjórnvöld
ætla að gera sömu hagstjórnarmis-
tökin og gerð voru á árunum fyrir
hrun þegar ríkisfjármálin unnu bein-
línis gegn viðleitni Seðlabankans til
að koma á stöðugleika. Þá má gera
ráð fyrir að sú hrina launaleiðrétt-
inga, sem hófst í upphafi ársins,
muni halda áfram þannig að taktur
launabreytinga verði svipaður næstu
árin og á yfirstandandi ári.“
omfr@mbl.is
Ekki bjartara útlit lengi
ASÍ spáir yfir 3% hagvexti og vaxandi kaupmætti
Í nýrri hagspá ASÍ segir að hætta sé
á að tímabil verðstöðugleika taki
enda á næsta ári þegar þensluhvetj-
andi aðgerðir stjórnvalda og vöxtur
innlendrar eftirspurnar ýti undir
hækkun verðlags. ASÍ spáir 2,3%
verðbólgu á þessu ári en hún fari
eftir það vaxandi og verði að jafnaði
3,1% á ári bæði 2015 og 2016.
Þá segir ASÍ að aukinn kraftur í
íbúðafjárfestingu sé fyrirsjáanlegur.
„Minni óvissa, vaxandi kaupmáttur
og bjartari horfur auk fjölgunar
fólks á húsnæðismarkaði ýta undir
eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. Þess
sjást þegar merki í aukinni veltu á
húsnæðismarkaði og hækkun á hús-
næðisverði,“ segir í spá ASÍ en hag-
deild ASÍ spáir töluverðum vexti í
íbúðafjárfestingu allan spátímann út
árið 2016 eða 23,8% á þessu ári og að
jafnaði um 22% á árunum 2015-2016.
Hagdeild ASÍ gerir líka ráð fyrir
umtalsverðum stóriðjufram-
kvæmdum. Fjórir framleiðendur
kísilmálms áformi að hefja starfsemi
hér á landi á næstu árum og er í
spánni gert ráð fyrir að þrjú þeirra
verkefna verði komin á fullt skrið á
síðari hluta spátímans, þ.e. til loka
ársins 2016. Spá hagdeildar gerir
ráð fyrir 14,7% vexti atvinnuvega-
fjárfestinga á þessu ári, 15,9% á
næsta ári og 19,5% vexti árið 2016.
Hætt við að tíma verð-
stöðugleika ljúki 2015
Byggingar ASÍ spáir kröftugum
vexti í mannvirkjagerð til 2016.
Gylfi Arnbjörnsson gefur áfram kost
á sér sem forseti ASÍ en kosningar
forystu sambandsins fara fram und-
ir lok þingsins. Ljóst er að Gylfi fær
mótframboð á þinginu. Ragnar Þór
Ingólfsson, stjórnarmaður í VR,
staðfesti í gær að hann ætlaði að
bjóða sig fram gegn Gylfa. Hann
bauð sig fram gegn Gylfa á þinginu
2012 og hlaut Gylfi 69,8% atkvæða
en Ragnar Þór 30,2%.
Ragnar Þór segir ástæður fram-
boðsins fyrst og fremst tvíþættar,
annars vegar óánægju hans með for-
ystu verkalýðshreyfingarinnar í ASÍ
og hins vegar til að félagarnir skilji
hvernig forsetinn fari að því að þrá-
sitja í embætti í óþökk alþýðunnar,
sem hafi nánast ekkert að segja hver
kemur fram fyrir hennar hönd.
Ragnar Þór segir einnig tillöguna
um fjölgun varaforseta vera „ömur-
lega tilraun“ til að auka trú fólks á
annars höfuðlausum her. Hann segir
fáránlegt að ætla að vægi VR í for-
ystu ASÍ aukist með kjöri Ólafíu B.
Rafnsdóttur sem varaforseta ASÍ.
Framboði hennar fylgi yfirlýstur og
skýlaus stuðningur við núverandi
forseta og vinnubrögðin sem svo
margir séu ósáttir við. Segist Ragn-
ar Þór hafa persónulega varað hana
við því að setja sig í þessa skotlínu
„en þau ætla að taka þennan slag
með Gylfa og verða því að standa og
falla með því. En þetta útspil foryst-
unnar tryggir nægjanlegt bakland
fyrir áframhaldandi setu Gylfa enda
gengið úr skugga um slíkt áður en
haldið er á svona þing“, segir Ragn-
ar Þór.
Gert er ráð fyrir að kosningar for-
seta ASÍ, varaforseta og fulltrúa í
miðstjórn fari fram fyrir hádegi á
föstudaginn, á síðasta degi þingsins.
omfr@mbl.is
Kosningar á þingi ASÍ á föstudaginn
Ragnar Þór gegn Gylfa