Morgunblaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
fi p y j g p
C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
Villibráðar-paté prikmeð pa
Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró
Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ
- salat skufer
ðbo
arðameð Miðj
kjRisa-ræ
með peppadew iluS
ajónmeð japönsku m
het
Hörpuskeljar má, 3 s
Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer
Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð
Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R
ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Veitingar fyrir öll tækifæri,
stór og smá, fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Markmið okkar er alltaf það
sama, glæsilegar veitingar
og ómótstæðilegt bragð.
Persónuleg og góð þjónusta.
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Ísnet Húsavík s. 5 200 555
Ísnet Akureyri s. 5 200 550
Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565
Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560
Hafðu samband og
kynntu þér vöruúrvalið
og þjónustuna
Vertu viðbúinn vetrinum
Mest seldu snjókeðjur á Íslandi
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Í grein sem stjórn-
arformaður RÚV, Ingvi
Hrafn Óskarsson, og út-
varpsstjóri, Magnús
Geir Þórðarson, skrif-
uðu í Morgunblaðið 16.
október sl. segja þeir
umræðuna um erfiða
fjárhagsstöðu RÚV
byggjast á „stöðunni
eins og hún var orðin á
þeim tíma sem skipt var
um framkvæmdastjórn félagsins í
vor“. Hvenær skipt er um fram-
kvæmdastjórn eða aðra starfsmenn
skiptir ekki máli og í lögum um RÚV
er ekki til neitt sem heitir „fram-
kvæmdastjórn“. Það eru stjórn RÚV
og útvarpsstjóri sem bera ábyrgð á
rekstri félagsins. Allt tal um „fram-
kvæmdastjórn“ er til þess eins að
draga athyglina frá eigin ábyrgð.
Sama á við þegar áhersla er lögð á
stuttan starfstíma Magnúsar Geirs.
Í blaðaviðtali sem Agnes Braga-
dóttir átti við Magnús
Geir (Mbl. 9. okt.) seg-
ist hann hafa tekið við í
maí sl. og þegar blaða-
maðurinn nefnir að
hann hafi setið í stjórn
RÚV „… í einhverja
mánuði áður …“ leið-
réttir hann það ekki.
Hið rétta er, að Magn-
ús Geir var ráðinn út-
varpsstjóri í lok janúar
2014 og byrjaði strax í
fullu starfi 1. febrúar.
Formlega tók hann svo
við 10. mars. Áður en hann var ráðinn
útvarpsstjóri hafði hann setið þrjú ár
í stjórn félagsins. Magnús Geir hefur
því verið í stjórn RÚV og útvarps-
stjóri í samtals tæp 4 ár. Ingvi Hrafn
var kosinn í stjórn RÚV í júlí 2013 og
strax gerður að stjórnarformanni.
Í áðurnefndri blaðagrein segja þeir
félagar: „Fjárhagsvandi RÚV hefur
orðið til á löngum tíma, …“ og í grein
sem Ingvi Hrafn skrifaði í Frétta-
blaðið 10. október sl. sagði: „Þá hefur
verið umtalsverður taprekstur hjá fé-
laginu síðan því var komið á fót 2007
og hefur sá taprekstur að verulegu
leyti verið fjármagnaður með nýjum
lánum.“ Þetta eru órökstuddar og
rangar fullyrðingar. Eins og ég
skýrði í grein í Morgunblaðinu 14.
október sl. var ekkert uppsafnað
rekstrartap til 31. ágúst 2013 þegar
síðasta rekstrarári Páls Magn-
ússonar lauk og þar af leiðandi engin
lán tekin vegna tapreksturs á vakt
Páls. Á nýliðnu rekstrarári, 1. sept-
ember 2013 til 31. ágúst 2014, má hins
vegar ætla að tap fyrir skatta hafi
numið um 350 m.kr. og í lok febrúar
2014 hafi í fyrsta skipti verið tekið lán
vegna tapreksturs. Allt á vakt Ingva
Hrafns og Magnúsar Geirs.
Hver ber ábyrgð á RÚV?
Eftir Bjarna
Kristjánsson »Magnús Geir hefur
því verið í stjórn
RÚV og útvarpsstjóri í
samtals tæp 4 ár.
Bjarni Kristjánsson
Höfundur er fyrrverandi fjár-
málastjóri RÚV.
Þetta voru orð
borgarfulltrúans og
formanns umhverfis-
og skipulagðsráðs
Hjálmars Sveinssonar
á útvarpi Sögu 23.
september síðastlið-
inn. Með þessum orð-
um er borgarfulltrú-
inn að vísa til þess að
ekki sé byrjað á fram-
kvæmdum í Vatns-
mýrinni nú á meðan „Rögnu-
nefndin“ svokallaða er enn að
störfum, en nefndinni er ætlað að
skila af sér fyrir lok ársins. Hins
vegar þó að hinar eiginlegu fram-
kvæmdir séu ekki hafnar eru aðfar-
ir að Reykjavíkurflugvelli í fullum
gangi, þrátt fyrir að nefndin hafi
óskað eftir svigrúmi til þess að
vinna áður en pólitísk afskipti væru
höfð af svæðinu. Til marks um það
samþykkti borgarstjórn 1. apríl síð-
astliðinn nýtt deiliskipulag fyrir
Reykjavíkurflugvöll sem gerir ráð
fyrir að flugbraut 06/24, oft nefnd
neyðarbrautin, verði lokað og að
hlutverk flugvallarins
þar með skert. Sem
sagt neyðarbrautin er
ekki lengur á skipu-
lagi. Lokun braut-
arinnar myndi hafa í
för með sér lokun í 16
daga á ári umfram það
sem nú er og hefði slík
lokun umtalsverð áhrif
á sjúkraflugið til
Reykjavíkur þar sem
Landspítalinn er að-
alsjúkrahús landsins
og sérhæfð heilbrigðisþjónusta
veitt þar. Einnig hefur borgin aug-
lýst breytingar á Hlíðarendasvæð-
inu sem gerir ráð fyrir sambýli
íbúðarhúsnæðis og íþróttaleikvalla
sem ýtir enn frekar á um lokun
brautarinnar.
Málefni Fluggarða hafa heldur
ekki farið framhjá neinum og
hyggst borgin úthýsa starfsemi
grasrótarinnar af svæðinu án þess
að búið sé að finna starfseminni
annan samastað og er búið að gefa
Háskóla Íslands vilyrði fyrir lóð
Fluggarða. Til þess að bæta gráu
ofan á svart þá hefur flugvall-
arstjóri Reykjavíkurflugvallar, Jón
Baldvin Pálsson, veitt undanþágu
frá skipulagsskilmálum
Reykjavíkurflugvallar og heimilað
Bílaleigu Akureyrar, Höldi ehf., að
helga sér um 5.000 fm afgirtan sér-
afnotareit og nýta sér þannig
óskipta sameiginlega lóð allra
Fluggarða fyrir eigin notkun sem
bílastæði fyrir bílaleigubíla sína. Sú
ákvörðun var meðal annars ekki
borin undir íbúa í nærliggjandi göt-
um sem telja margir hverjir að um-
ferð um Njarðargötuna hafi aukist
töluvert í kjölfar þessa. Þessi und-
anþága er ekki heimil samkvæmt
skipulagsreglum Reykjavík-
urflugvallar frá 23. júlí 2009 en
Reykjavíkurborg hefur staðfest
þessa undanþágu.
Það sjá það allir
að það er nákvæm-
lega ekkert
að gerast þarna
Eftir Grétu Björgu
Egilsdóttur
Gréta Björg Egilsdóttir
» Lokun brautarinnar
myndi hafa í för með
sér lokun í 16 daga á ári
umfram það sem nú er
og hefði slík lokun um-
talsverð áhrif á sjúkra-
flugið til Reykjavíkur.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Framsóknar og flugvallarvina.
Það hefur verið bent á að notendur
ferðaþjónustu fatlaðra geti ekki ver-
ið úti lengur en til kl. 23.30 og að það
þurfi að panta ferð með dags fyrir-
vara o.s.frv. Maður hefur kyngt
þessu en ég get bara ekki kyngt því
að ég sem eigandi kattar megi ekki
fara með hann í ferðaþjónustubíl til
dýralæknis. Kisinn minn er á mína
ábyrgð og ég vil sjálf geta farið með
hann en ekki neyðast til að biðja vin
um það sökum fötlunar minnar.
Gugga.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Ferðaþjónusta fatlaðra
Ferðaþjónusta Panta þarf með dags fyrirvara.