Morgunblaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
M
álverkið er minn bakgrunnur. Ég
málaði í fimmtán ár, frá því ég var
táningur og fram yfir þrítugt. En
ég hætti svo að mála í önnur tíu ár
og var þá meira fyrir framan tölv-
una, að skeyta saman ljósmyndum og annað til að
gera myndlist í gegnum hið stafræna form. Ég tók
fullan þátt í stafrænu byltingunni og tók þátt í alls-
konar verkefnum og sýningum á því sviði, sýndi
mikið ljósmyndir og myndbönd, þar sem ég lék mér
að því að breyta raunveruleikanum. Ég gerði til
dæmis teiknimyndavídeó af Reynisdröngum. En
síðan fór ég að mála alfarið aftur fyrir fimm árum,
það var eitthvað sem ég hafði verið á leiðinni að
gera í mörg ár, en til að snúa sér aftur að málverk-
inu þarf maður að vera einvörðungu í því. Ég lokaði
því alfarið á stafræna formið og sneri mér af heilum
hug að málverkinu. Ég gat yfirfært stafrænu kunn-
áttuna yfir í málverkið, sem var einmitt það sem
mig vantaði. Núna þegar ég er að mála, er ég mjög
sátt og mér finnst það rosalega skemmtilegt. Þetta
er eiginlega eins og að vera ástfangin, þetta er
sama tilfinning,“ segir Erla S. Haraldsdóttir mynd-
listarkona sem búið hefur í Berlín undanfarin níu
ár, en sýning hennar Sjónrænar göngur eða „Vis-
ual Wandering“ stendur nú yfir í Listasafni ASÍ.
Nálgast þessa þrá með litunum
Á þessari sýningu Erlu eru málverk sem öll
eru unnin undanfarin tvö ár. Þetta eru mjög stór
verk og Erla segir það nýtt hjá sér að hafa verkin
svo stór. „Það hefur eitthvað með líkamann að
gera, ég miða við hann. Þegar málverkin eru svona
stór verður sýningin meira innsetning í rými og
áhrifin öðruvísi heldur en ef þau væru lítil. Ég vann
þessi verk út frá rýminu í Listasafninu í ASÍ, ég
var með rýmið í huga allan tímann sem ég vann
þau.“ Í verkum sínum kannar Erla hvernig minn-
ingar, tilfinningar og sjónræn skynjun hefur áhrif
hvað á annað. „Að baki hverju málverki á þessari
sýningu er saga. Öll málverkin eru frá stöðum sem
Að mála er eins og
að vera ástfangin
Í verkum sínum kannar hún
hvernig minningar, tilfinningar
og sjónræn skynjun hefur áhrif
hvað á annað. Erla S. Haralds-
dóttir vill hafa sín málverk stór.
Kastalaanddyri „The Corridor in Pszczyna Castle“ 2014.
Félagsskapur sem kallar sig Druslu-
bækur og doðrantar er hópur kvenna
með víðfeðman áhuga á bókmennt-
um, en tvær úr þeim hópi ætla að
hafa umsjón með Bókakaffinu í
Gerðubergi í Breiðholti í kvöld. Þar
ætla þær Hildur Knútsdóttir og Krist-
ín Svava Tómasdóttir að fjalla um
sjálfsævisögulega texta eftir konur.
Tæpt verður á helstu fræðikenn-
ingum um bókmenntagreinina og hún
skoðuð sem tjáningarform. Sjálfs-
ævisögulegir textar nokkurra ís-
lenskra kvenna frá 18. öld og fram á
þá 21. verða ræddir og reynt að kort-
leggja sameiginlega þræði.
Ókeypis er á Bókakaffið sem hefst
kl. 20 og öllum er velkomið að koma
og hlusta og spjalla og njóta nota-
legrar stundar í afslöppuðu umhverfi
kaffihússins í Gerðubergi.
Vefsíðan www.gerduberg.is
Getty Images
Ritstörf Hægt er að tjá sig á margan hátt, m.a. með skrifum um eigin ævi.
Sjálfsævisögulegir textar kvenna
Nú rísa þær upp stelpurnar í Hits-
&Tits og blása til karókífagnaðar í
kvöld kl. 21 á skemmtistaðnum
Húrra í miðbæ Reykjavíkur. Þetta ku
vera margrómað og víðfrægt
brjálæðisstuð til að gleðjast, syngja,
dansa og hvetja. Fólk er hvatt til að
koma snemma til að komast að í
söngnum. Lög þeirra sem ætla að
grípa míkrófóninn þurfa að vera í
karókíútgáfu á Youtube. Ýmsar
gleðireglur eru viðhafðar á þessum
kvöldum, t.d. að sýna öðrum virð-
ingu og þolinmæði og að í mesta
lagi tveir mega syngja saman lag
(nema fólk sé í búningi).
Endilega …
… fáið útrás í
karókí í kvöld
Getty Images/iStockphoto
Gaman Góð útrás að syngja í karókí.
Tenórarnir Kristján Jóhannsson,
Garðar Thór Cortes og Gissur Páll
Gissurarson kalla sig Óperudraugana
og ætla þeir að halda stórtónleika í
ársbyrjun 2015. Nýárstónleikar þre-
menninganna verða haldnir í Hörpu í
Rekjavík hinn 1. og 2. janúar og í Hofi
á Akureyri 3. janúar.
Óperudraugarnir munu flytja
klassískar söngperlur frá ýmsum
tímum og óperuaríur við allra hæfi.
Kristján er kominn heim eftir ára-
langa dvöl á Ítalíu og hefur sungið í
mörgum af helstu óperuhúsum
heims og má þar nefna La Scala í Míl-
anó. Garðar hefur átt farsælan feril
og má þar til dæmis nefna tilnefn-
ingu hans til Bresku tónlistarverð-
launanna fyrir plötuna Cortes. Gissur
Páll hefur unnið Íslensku tónlistar-
verðlaunin og sungið í fjölmörgum
óperuhúsum í Evrópu.
Tenórarnir þrír hafa áður sungið
saman sem Óperudraugarnir og
tókst það svo vel til að ástæða þykir
til að endurtaka leikinn. Miðasala er
hafin á tónleikana og fer hún fram á
harpa.is, hof.is og midi.is.
Óperudraugar ganga aftur
Nýárstónleikar þriggja tenóra
í Hörpu og Hofi á Akureyri
Óperudraugar Þeir Kristján, Garðar og Gissur koma fram á nýárstónleikum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004