Morgunblaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014 Fara hvergi Flestar íslenskar álftir dvelja í Bretlandi yfir veturinn en um tíu af hundraði hafa vetursetu hér á landi, m.a. við Reykjavíkurtjörn þar sem alltaf má eiga von á brauðmola í gogginn. Ómar Umhverfis- og skipulags- ráð Reykjavíkur er nú með til umfjöllunar að heimila fasteignafélögunum Vals- mönnum hf. og Hlíðarfæti ehf. að hefja strax fram- kvæmdir á svonefndu Hlíðar- endasvæði, og þá samkvæmt skipulagi, sem hefði í för með sér lokun flugbrautar 06/24 á Reykjavíkurflugvelli. Slík samþykkt þarf síðan staðfest- ingu bæði borgarráðs og borgarstjórnar. Við lokun flugbrautarinnar lækkar nothæf- isstuðull flugvallarins, skilgreindur sam- kvæmt ákvæðum ICAO og Reglugerðar um flugvelli nr. 464/2007, úr 98,2% í 93,8%, og þar með niður fyrir það 95% lágmark, sem í þeim ákvæðum eru tilgreind. Árleg viðbót- arlokun flugvallarins verður því 16 dagar. Á þeim dagafjölda þurfa sjúkraflugvélar Mý- flugs almennt að flytja 24 stórslasaða eða fár- sjúka til Reykjavíkur, og að jafnaði er helm- ingur flugferðanna skilgreindur sem forgangsflug, þ.e. engan tíma megi missa við að koma sjúklingi í sérhæfða meðferð á Land- spítala. Hvernig gat það gerst að örfáir stjórn- málamenn í sveitarstjórn gætu tekið slíka af- glapaákvörðun um miðstöð innanlandsflugs- ins? Hefur þessi hópur ekki réttar upplýsingar á sínum borðum, eða skilja þeir ekki alvöru málsins? Hafa þeir allir náð að kynna sér þær ítarlegu at- hugasemdir, sem borginni bárust, m.a. frá Samtökum ferðaþjónust- unnar, Icelandair Group og flug- félaginu Mýflugi og lækn- isfræðilegri þjónustu sjúkraflugs? Einnig frá samtökunum Hjartað í Vatnsmýri, sem tjáðu sig fyrir hönd þess 69.791 landsmanns, sem í sum- arlok 2013 undirritaði eftirfarandi áskorun til Reykjavíkurborgar og Alþingis: „Við leggjumst gegn þeim áformum að flugvallarstarfsemi víki úr Vatnsmýri og skorum á Reykja- víkurborg og Alþingi að tryggja öllum lands- mönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar.“ Hvernig má það vera, að Alþingi og rík- isstjórn sitji hér hjá nánast máttlaus gagn- vart slíku gerræði nokkurra borgarfulltrúa, sem hafa að yfirlýstu markmiði að flugvelli höfuðborgarinnar verði hið fyrsta lokað? Hluti skýringar er væntanlega sú staðreynd, að nú sitja í lykilembættum innanrík- isráðherra og forstjóra Samgöngustofu tveir fyrrverandi borgarstjórar Reykjavíkur, sem báðir höfðu á sinni stefnuskrá að flugvellinum skyldi sem fyrst lokað. Það er dagljóst, að ekki er að búast við miklum vörnum fyrir flugvöllinn úr þeim tveimur stofnunum rík- isins á meðan svo hagar til. Í því skjali án fyrirsagnar, sem Hanna Birna innanríkisráðherra og Jón Gnarr borg- arstjóri undirrituðu ein og sér 25. okt. 2013, í kjölfar ákvörðunar fleiri aðila um skipun verkefnisstjórnar undir formennsku Rögnu Árnadóttur, er í inngangi skjalsins lögð sér- stök áhersla á að um sé að ræða vinnu „í sam- ræmi við áður undirritaða samninga“, án þess að þeir séu þar nánar tilgreindir. Í bréfi inn- anríkisráðuneytis til Isavia ohf., dags. 30. des. 2013, eru hins vegar tilgreindir fimm meintir „samningar“ frá árunum 1999-2013. Svo vill til, að öll umrædd fimm skjöl eru með öllu gildislaus hvað varðar hugsanlega lokun flug- brautar 06/24. Rétt er að minna enn á ný á eftirfarandi ákvæði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem formenn beggja flokkanna kynntu 22. maí 2013: „Reykjavíkurflugvöllur er grund- vallarþáttur í samgöngum landsins. Til þess að hann geti áfram gegnt því mikilvæga þjón- ustuhlutverki, sem hann hefur gegnt gagn- vart landinu öllu, þarf að tryggja framtíð- arstaðsetningu hans í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu.“ Ætla formennirnir tveir að sætta sig við að þetta reynist aðeins innihaldslaust hjal? Reykjavíkurflugvöllur er ekki einkamál eins ráðherra. Um tilvist hans og framtíð þarf öll ríkisstjórnin að fjalla. Heilbrigðisráðherra fer með yfirstjórn sjúkraflugs. Er hann sáttur við þá alvarlegu skerðingu, sem það verður fyrir við lokun flugbrautar 06/24? Niðurstaða form- legs áhættumats, sem Isavia ohf. lauk við 8. apríl sl., og sendi til innanríkisráðuneytis, var sú, að lokun flugbrautar 06/24 var metin „óá- sættanleg“ og jafnframt vakin athygli á því að nothæfisstuðull flugvallarins færi niður fyrir 95% lágmarkið. Í áhættumatinu kom einnig fram, að velferðarráðuneyti (heilbrigðisráðu- neyti) er ætlað að veita sérstaka umsögn um áhrif lokunar flugbrautarinnar á sjúkraflugið. Hefur innanríkisráðuneytið upplýst velferð- arráðuneytið um þennan þátt, og liggur um- sögn þess um sjúkraflugið fyrir? Samkvæmt skipulagslögum hvílir sú skylda á sveitarfélögum, að þau láti gera skipulag. Þeim ber síðan að senda skipulagstillögur sín- ar til Skipulagsstofnunar ríkisins til staðfest- ingar. Eftir atvikum er það síðan í höndum þeirrar stofnunar eða umhverfisráðherra sjálfs að veita slíka staðfestingu. Umhverfis- og auðlindaráðherra er æðsti yfirmaður skipulagsmála landsins. Er hann sáttur við að eftirláta forstjóra Skipulagsstofnunar að stað- festa stórgallaðar tillögur Reykjavíkurborgar að nýju aðalskipulagi og deiliskipulagi flug- vallarsvæðisins? Hefur hann kynnt sér þá af- stöðu, sem forstjórinn hefur haft til Reykja- víkurflugvallar, og fram kom í erindi hans á „Málþingi um flugmál“, sem Háskólinn í Reykjavík efndi til 19. janúar 2012? Eftir Leif Magnússon »Hvernig gat það gerst að örfáir stjórnmálamenn í sveitarstjórn gætu tekið slíka afglapaákvörðun um miðstöð innanlandsflugsins? Leifur Magnússon Geta borgarfulltrúar lokað flugbraut? Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.