Morgunblaðið - 22.10.2014, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
Fara hvergi Flestar íslenskar álftir dvelja í Bretlandi yfir veturinn en um tíu af hundraði hafa vetursetu hér á landi, m.a. við Reykjavíkurtjörn þar sem alltaf má eiga von á brauðmola í gogginn.
Ómar
Umhverfis- og skipulags-
ráð Reykjavíkur er nú með
til umfjöllunar að heimila
fasteignafélögunum Vals-
mönnum hf. og Hlíðarfæti
ehf. að hefja strax fram-
kvæmdir á svonefndu Hlíðar-
endasvæði, og þá samkvæmt
skipulagi, sem hefði í för með
sér lokun flugbrautar 06/24 á
Reykjavíkurflugvelli. Slík
samþykkt þarf síðan staðfest-
ingu bæði borgarráðs og
borgarstjórnar.
Við lokun flugbrautarinnar lækkar nothæf-
isstuðull flugvallarins, skilgreindur sam-
kvæmt ákvæðum ICAO og Reglugerðar um
flugvelli nr. 464/2007, úr 98,2% í 93,8%, og
þar með niður fyrir það 95% lágmark, sem í
þeim ákvæðum eru tilgreind. Árleg viðbót-
arlokun flugvallarins verður því 16 dagar. Á
þeim dagafjölda þurfa sjúkraflugvélar Mý-
flugs almennt að flytja 24 stórslasaða eða fár-
sjúka til Reykjavíkur, og að jafnaði er helm-
ingur flugferðanna skilgreindur sem
forgangsflug, þ.e. engan tíma megi missa við
að koma sjúklingi í sérhæfða meðferð á Land-
spítala.
Hvernig gat það gerst að örfáir stjórn-
málamenn í sveitarstjórn gætu tekið slíka af-
glapaákvörðun um miðstöð innanlandsflugs-
ins? Hefur þessi hópur ekki réttar
upplýsingar á sínum borðum, eða skilja þeir
ekki alvöru málsins? Hafa þeir allir
náð að kynna sér þær ítarlegu at-
hugasemdir, sem borginni bárust,
m.a. frá Samtökum ferðaþjónust-
unnar, Icelandair Group og flug-
félaginu Mýflugi og lækn-
isfræðilegri þjónustu sjúkraflugs?
Einnig frá samtökunum Hjartað í
Vatnsmýri, sem tjáðu sig fyrir hönd
þess 69.791 landsmanns, sem í sum-
arlok 2013 undirritaði eftirfarandi
áskorun til Reykjavíkurborgar og
Alþingis: „Við leggjumst gegn þeim
áformum að flugvallarstarfsemi víki
úr Vatnsmýri og skorum á Reykja-
víkurborg og Alþingi að tryggja öllum lands-
mönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til
framtíðar.“
Hvernig má það vera, að Alþingi og rík-
isstjórn sitji hér hjá nánast máttlaus gagn-
vart slíku gerræði nokkurra borgarfulltrúa,
sem hafa að yfirlýstu markmiði að flugvelli
höfuðborgarinnar verði hið fyrsta lokað?
Hluti skýringar er væntanlega sú staðreynd,
að nú sitja í lykilembættum innanrík-
isráðherra og forstjóra Samgöngustofu tveir
fyrrverandi borgarstjórar Reykjavíkur, sem
báðir höfðu á sinni stefnuskrá að flugvellinum
skyldi sem fyrst lokað. Það er dagljóst, að
ekki er að búast við miklum vörnum fyrir
flugvöllinn úr þeim tveimur stofnunum rík-
isins á meðan svo hagar til.
Í því skjali án fyrirsagnar, sem Hanna
Birna innanríkisráðherra og Jón Gnarr borg-
arstjóri undirrituðu ein og sér 25. okt. 2013, í
kjölfar ákvörðunar fleiri aðila um skipun
verkefnisstjórnar undir formennsku Rögnu
Árnadóttur, er í inngangi skjalsins lögð sér-
stök áhersla á að um sé að ræða vinnu „í sam-
ræmi við áður undirritaða samninga“, án þess
að þeir séu þar nánar tilgreindir. Í bréfi inn-
anríkisráðuneytis til Isavia ohf., dags. 30. des.
2013, eru hins vegar tilgreindir fimm meintir
„samningar“ frá árunum 1999-2013. Svo vill
til, að öll umrædd fimm skjöl eru með öllu
gildislaus hvað varðar hugsanlega lokun flug-
brautar 06/24.
Rétt er að minna enn á ný á eftirfarandi
ákvæði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar,
sem formenn beggja flokkanna kynntu 22.
maí 2013: „Reykjavíkurflugvöllur er grund-
vallarþáttur í samgöngum landsins. Til þess
að hann geti áfram gegnt því mikilvæga þjón-
ustuhlutverki, sem hann hefur gegnt gagn-
vart landinu öllu, þarf að tryggja framtíð-
arstaðsetningu hans í nálægð við stjórnsýslu
og aðra þjónustu.“
Ætla formennirnir tveir að sætta sig við að
þetta reynist aðeins innihaldslaust hjal?
Reykjavíkurflugvöllur er ekki einkamál eins
ráðherra. Um tilvist hans og framtíð þarf öll
ríkisstjórnin að fjalla. Heilbrigðisráðherra fer
með yfirstjórn sjúkraflugs. Er hann sáttur við
þá alvarlegu skerðingu, sem það verður fyrir
við lokun flugbrautar 06/24? Niðurstaða form-
legs áhættumats, sem Isavia ohf. lauk við 8.
apríl sl., og sendi til innanríkisráðuneytis, var
sú, að lokun flugbrautar 06/24 var metin „óá-
sættanleg“ og jafnframt vakin athygli á því að
nothæfisstuðull flugvallarins færi niður fyrir
95% lágmarkið. Í áhættumatinu kom einnig
fram, að velferðarráðuneyti (heilbrigðisráðu-
neyti) er ætlað að veita sérstaka umsögn um
áhrif lokunar flugbrautarinnar á sjúkraflugið.
Hefur innanríkisráðuneytið upplýst velferð-
arráðuneytið um þennan þátt, og liggur um-
sögn þess um sjúkraflugið fyrir?
Samkvæmt skipulagslögum hvílir sú skylda
á sveitarfélögum, að þau láti gera skipulag.
Þeim ber síðan að senda skipulagstillögur sín-
ar til Skipulagsstofnunar ríkisins til staðfest-
ingar. Eftir atvikum er það síðan í höndum
þeirrar stofnunar eða umhverfisráðherra
sjálfs að veita slíka staðfestingu. Umhverfis-
og auðlindaráðherra er æðsti yfirmaður
skipulagsmála landsins. Er hann sáttur við að
eftirláta forstjóra Skipulagsstofnunar að stað-
festa stórgallaðar tillögur Reykjavíkurborgar
að nýju aðalskipulagi og deiliskipulagi flug-
vallarsvæðisins? Hefur hann kynnt sér þá af-
stöðu, sem forstjórinn hefur haft til Reykja-
víkurflugvallar, og fram kom í erindi hans á
„Málþingi um flugmál“, sem Háskólinn í
Reykjavík efndi til 19. janúar 2012?
Eftir Leif Magnússon »Hvernig gat það gerst að
örfáir stjórnmálamenn í
sveitarstjórn gætu tekið slíka
afglapaákvörðun um miðstöð
innanlandsflugsins?
Leifur Magnússon
Geta borgarfulltrúar lokað flugbraut?
Höfundur er verkfræðingur.