Morgunblaðið - 22.10.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
Miðvikudagstilboð
– á öryggisskóm og fleiri öryggisvörum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 16
Komdu í verslun RVog nýttu þérflott tilboð áöryggisvörum !
!!"
#$
"!
%$
"#"
##
#$
# #%
$#$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
$
"!
$
%!
""%
""#
#%#
$%
"#!
$%
% "
""$#
#
!
# $
$
"$!%
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Veiðar á hvítfiski í heiminum munu
að öllum líkindum dragast lítillega sam-
an á næsta ári og skila þá 7,078 millj-
ónum tonna. Aflinn í ár er áætlaður
7.092 milljónir tonna. Þetta eru niður-
stöður markaðs- og samræðufundar
þeirra sem eiga viðskipti með botnfisk
á heimsvísu, Ground Fish Forum, sem
haldinn var í síðustu viku í Róm. Frá
þessu er greint á vefsíðunni kvotinn.is.
Helstu niðurstöður fundarins eru að
afli af alaskaufsa muni aukast lítillega
og fara úr 3,256 tonnum í 3,385 tonn á
næsta ári. Áætlað er að veiðar á atl-
antshafsþorski fari úr 1,33 milljónum
tonna niður í 1,23 milljónir tonna.
Hvítfiskveiðar dragast
saman á næsta ári
● Hagvöxtur í Kína var 7,3% á árs-
grundvelli á þriðja fjórðungi ársins, sem
er minnsti hagvöxtur sem mælst hefur í
landinu í einum fjórðungi í liðlega fimm
ár. Hagvöxtur hefur ekki verið minni síð-
an í miðri efnahagskreppunni á fyrsta
ársfjórðungi 2009, þegar hann mældist
6,6%.
Þrátt fyrir það var hagvöxturinn meiri
en spáð hafði verið og stuðluðu frétt-
irnar því að hækkunum á hlutabréfa-
mörkuðum víðsvegar um Evrópu í gær.
Hagvöxtur í Kína sá
minnsti í fimm ár
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Sú krafa Íbúðalánasjóðs (ÍLS) að
400 eignir, sem sjóðurinn hóf sölu-
ferli á í síðustu viku, haldist á leigu-
markaði endurspeglar töluverða
forræðishyggju af hálfu sjóðsins og
hins opinbera, að mati Ara Skúla-
sonar, hagfræðings hjá Landsbank-
anum. Hann gerir einnig athuga-
semd við að einungis verði hægt að
kaupa heil eignasöfn en ekki stakar
fasteignir. „Það hefði verið mun
nærtækara að setja eignirnar á al-
mennan markað,“ segir Ari.
Að hans mati virðist sjóðurinn
stefna á að koma á fót sérstökum
leigufélögum sem sjái um útleigu
íbúða sem ÍLS vilji selja. „Við-
skiptavinirnir myndu mun frekar
vilja eiga eignirnar en eða leigja
þær. Þá tel ég liggja beint við að
sjóðurinn er ekki að koma til móts
við eftirspurnina þar sem hún er
augljóslega mest.“
Hann segir skilyrðin sem sett
eru fyrir kaupum ströng. Þar af
leiðandi sé kaupendahópurinn
væntanlega ekki sérlega stór. „Ég
átta mig ekki á því hvers vegna
þetta fyrirkomulag varð fyrir val-
inu, nema verið sé að þjóna því póli-
tíska markmiði að búa til stærri
leigumarkað.“
Þá efast hann um að fyrirkomu-
lagið muni skila ÍLS hæsta sölu-
verði. Hærra verð hefði fengist með
því að taka hæsta boði í hverja
eign.
Hann telur hlutverk ÍLS ekki að
reka leigustarfsemi, en einhvern
tíma hefði verið talað um að sjóð-
urinn notaði dótturfélag til þessa.
Hann bendir á að ekki sé um
leigustarfsemi með félagslegu yf-
irbragði að ræða, eins og yfirleitt sé
raunin þegar hið opinbera reki slíka
starfsemi. Eðlilegt sé að einkaaðilar
reki leigustarfsemi af þessu tagi, en
almenningur vilji frekar eiga eign-
irnar en leigja þær.
Vilja stuðla að húsnæðisöryggi
Að sögn Sigurðar Erlingssonar,
forstjóra Íbúðalánasjóðs, eru flest-
ar umræddra eigna nú þegar í leigu
og henta vel til leigureksturs.
„Markmiðið er að halda þeim áfram
í leigu til þess að stuðla að húsnæð-
isöryggi. Krafa um að eignunum sé
haldið áfram í leigu er gerð til þess
að raska ekki jafnvægi á milli leigu-
markaðar og eigendamarkaðar.“
Sigurður segir sjóðinn stefna að
því að fá sem hæst verð fyrir eign-
irnar. „Við munum ekki fá lakara
verð en ella þar sem þetta söluferli
á að tryggja okkur bestu boðin.“
Hann viðurkennir að kaupenda-
hópurinn sé ekki stór, þó hann hafi
stækkað á síðustu árum. „Ef verð-
tilboðin sem við fáum eru óásætt-
anleg, getum við synjað þeim og
sleppt því að selja eignirnar.“
Hann bendir þó á að íbúðirnar
400 séu aðeins lítill hluti eignasafns
ÍLS. Fyrir utan þær séu um 1.000
íbúðir skráðar í sölu til almennings
sem ekki eru í útleigu og þeim íbúð-
um muni fjölga. „Eignasafnið er svo
stórt að við verðum að miða á ólíka
hópa fólks í mismunandi útboðum.
Á þennan hátt er sjóðurinn að fara
blandaða leið við sölu eignanna.“
Alfarið á ábyrgð stjórnar ÍLS
Þau svör fengust frá Eygló Harð-
ardóttur félagsmálaráðherra að
ákvörðun um sölu eigna Íbúðalána-
sjóðs, fyrirkomulag sölunnar og
söluferlið sjálft sé alfarið stjórnar
sjóðsins, í samræmi við verkefni
stjórnarinnar og ábyrgð hennar
samkvæmt lögum um húsnæðismál.
Forræðishyggja í söluskil-
málum Íbúðalánasjóðs
Morgunblaðið/Ómar
Eignasala Íbúðalánasjóður hyggst selja 400 fasteignir, flestar á landsbyggðinni, í sjö eignasöfnum.
Hagfræðingur Landsbankans segir ÍLS virðast þjóna pólitískum markmiðum
Hagnaður Hraðfrystihússins Gunn-
varar nam ríflega 1,9 milljónum
evra, jafnvirði um 290 milljóna ís-
lenskra króna, á síðasta ári. Dróst
hagnaður fyrirtækisins eftir skatta
talsvert saman frá fyrra ári en þá var
hann 4,4 milljónir evra.
Minni hagnaður skýrist af leið-
réttingu á skattskuldbindingum
fyrri ára að fjárhæð samtals 3,5
milljónir evra, að því er fram kemur í
ársreikningi félagsins. Samtals
greiddi Hraðfrystihúsið Gunnvör því
um 5,1 milljón evra í skatta.
Fyrirtækið gerir út nokkur fiski-
skip ásamt því að reka frystihús í
Hnífsdal og á Ísafirði auk niðursuðu-
verksmiðju í Súðavík. Stundar félag-
ið einnig þorskeldi í Ísafjarðardjúpi.
Samkvæmt nýjum tölum frá Fiski-
stofu er Hraðfrystihúsið Gunnvör
með tólftu mestu aflahlutdeild út-
gerðarfélaga, með samtals 2,77% af
öllum úthlutuðum afla.
Stærstu hluthafar félagsins eru
Ísfirsk fjárfesting (29,16%), Lang-
eyri (11,71%) og Einar Valur Krist-
jánsson (7,09%).
Samtals námu tekjur fyrirtækis-
ins ríflega 31 milljón evra á liðnu ári
og jukust um 700 þúsund evrur frá
fyrra ári. Heildareignir voru um 71
milljón evra í árslok 2013 og eigið fé
7,3 milljónir evra. Er eiginfjárhlut-
fall félagsins því aðeins 10,2%.
Í ársreikningnum segir að félagið
hafi stefnt Landsbankanum og Ís-
landsbanka vegna þriggja lánasamn-
inga sem tengdir eru við erlendar
myntir. Telur fyrirtækið að samn-
ingarnir séu ólögmætir og er vísað til
dóma Hæstaréttar um ólögmæta
gengistryggingu á lánum í krónum.
Morgunblaðið/Helgi
Ísafjarðardjúp Fyrirtækið hefur
einnig stundað eldi á þorski.
Hagnast um 290
milljónir króna
Hraðfrystihúsið
Gunnvör telur þrjú
lán vera ólögmæt