Morgunblaðið - 22.10.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
20% afsláttur af öllumsnyrtivörum í verslunokkar í október
Ka
up
au
ki
nn
þi
nn
þe
ga
rþ
ú
ka
up
ir
Bi
ot
he
rm
vö
ru
r
fy
rir
7.
80
0
kr
.e
ða
m
ei
ra
.
SÉRFRÆÐINGUR FRÁ BIOTHERM VEITIR FAGLEGA
RÁÐGJÖF MIÐVIKUDAG TIL FÖSTUDAGS.VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Ný sending
Kjólar, jakkar, buxur, toppar…
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Mannréttindadómstóllinn er ósam-
mála Hæstarétti um túlkun á ummæl-
unum sjálfum og hvort sýnt hafi verið
fram á að þau væru höfð eftir heimild-
armanni,“ segir Skúli Magnússon,
formaður Dómarafélags Íslands, um
dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í
máli blaðamannsins Erlu Hlynsdótt-
ur gegn íslenska ríkinu.
Erla vann málið og dæmdi Mann-
réttindadómstóllinn að íslenska ríkið
hefði brotið gegn 10. grein Mannrétt-
indasáttmála Evrópu sem fjallar um
tjáningarfrelsið. Íslenska ríkinu er
gert að greiða Erlu 8.000 evrur eða
1,2 milljónir íslenskra króna.
Málið fjallar um ummæli viðmæl-
anda Erlu um eiginkonu Guðmundar
Jónssonar, Helgu Haraldsdóttur, en
Guðmundur rak meðferðarheimilið
Byrgið á þessum tíma. Erla var í
Hæstarétti árið 2010 dæmd til að
greiða Helgu bætur vegna viðtalsins.
Mannréttindadómstóllinn telur
ummæli viðmælanda blaðamannsins
gildisdóm en ekki fullyrðingu um
staðreynd eins og Hæstiréttur taldi,
segir Skúli.
Árið 2010 komst Hæstiréttur að
þeirri niðurstöðu að í ummælunum
hefði verið gefið til kynna að viðkom-
andi, Helga kona Guðmundar, hefði
gerst sek um refsivert athæfi, án þess
að það hefði verið sannað eða rökstutt
frekar.
Einnig taldi Hæstiréttur að ekki
hefði verið sýnt fram á að þessi um-
mæli hefðu verið höfð eftir viðmæl-
anda blaðamannsins.
Mannréttindadómstóllinn telur
þvert á móti að það séu nægilegar lík-
ur á að ummælin hafi stuðst við um-
mæli sem hafi verið viðhöfð og byggj-
ast á rannsókn blaðamannsins.
Skúli segir hins vegar engan vafa á
því að íslensk lög teljast samræman-
leg Mannréttindasáttmála Evrópu,
þrátt fyrir dóminn.
„Dóminn verður þó að taka alvar-
lega og skoða með tillliti til núverandi
framkvæmda og hvernig íslenskir
dómstólar taka á þessum málum til
framtíðar,“ segir Skúli og bendir á að
þar sem málið velti á ákveðnum atrið-
um sé erfitt að benda á skýra brota-
löm í íslenskri dómaframkvæmd.
Varðandi tjáningarfrelsi blaða-
manna segir Skúli að samkvæmt
þessum dómi geri Mannréttindadóm-
stóllinn minni kröfur en Hæstiréttur
til þess að blaðamaður færi sönnur á
að ummæli séu höfð eftir heimildar-
manni. „Það er eftirtektarvert.“
Dómurinn staðfestir
áhyggjur blaðamanna
„Þetta er gríðarlega mikill sigur og
ég er afar ánægður og glaður með
dóminn,“ segir Hjálmar Jónsson, for-
maður Blaðamannafélags Íslands.
Hann segir dóminn staðfesta áhyggj-
ur sem blaðamenn á Íslandi hafi varð-
andi íslenska dómstóla.
Íslenskir dómstólar hafi ekki verið
nægjanlega meðvitaðir um tjáningar-
frelsisákvæði Mannréttindasáttmál-
ans og ekki horft til þeirra sjónarmiða
um mikilvægi tjáningarfrelsisins fyrir
lýðræðið.
Hjálmar segist telja að það verði
að festa betur í sessi meginreglur
tjáningarfrelsisins hér á landi og
gera fólk á Íslandi og dómstól-
ana meðvitaða um hvaða
reglur gilda og hversu
mikilvægt tjáningar-
frelsið er.
Ólík túlkun ummæla
Íslensk lög samræmanleg Mannréttindasáttmála Evrópu
þrátt fyrir dóminn, segir formaður Dómarafélagsins
AFP
Mannréttindadómstóll Evrópu Dóminn verði að taka alvarlega.
„Þetta eru gríðarlegar gleðifrétt-
ir og koma í rauninni ekki á
óvart. Ég var alltaf mjög vongóð
enda fannst mér dómurinn á sín-
um tíma vera mjög ósanngjarn,“
segir blaðamaðurinn Erla Hlyns-
dóttir. Hún bendir á að dómstóll-
inn sé með fjölda mála og flest-
um sé vísað frá.
„Íslenskir dómstólar hljóta að
taka þessa niðurstöðu alvarlega,
annað fyndist mér ekki eðlilegt.
Þetta er auðvitað áfellisdómur
yfir íslenskum dómstólum. Von-
andi verður þetta mál fordæm-
isgefandi. Þessi meiðyrðamál
hér á landi hafa mörg hver verið
stórundarleg. Það eru
nokkur ár síðan fólk fór
að fara í meiðyrðamál
við blaðamenn út af
ótrúlegustu hlutum,
að sama skapi féllu
dómar sem mér þóttu
hreint ótrúlegir,“
segir Erla.
Meiðyrðamálin
stórundarleg
ÁFELLISDÓMUR
Erla
Hlynsdóttir
Vika 43, forvarnaverkefni Samstarfsráðs um for-
varnir, stendur nú yfir. Í vikunni er kastljósinu beint
að ýmsu er varðar félagsstarf meðal barna og ung-
menna, lífsstíl og sjálfsmynd og vakin athygli á því
góða starfi með ungu fólki sem lýtur að forvörnum í
heimabyggð. Alla daga vikunnar verður vakin at-
hygli á virkri þátttöku barna og ungmenna í hvers
kyns íþrótta-, félags- og tómstundastarfi. Að Sam-
starfsráði um forvarnir standa 23 félagasamtök og
stærstu hreyfingar landsins sem sinna íþrótta-,
æskulýðs- og félagsstarfi meðal barna og unglinga. Hægt er að nálgast
upplýsingar um verkefni og starf félagasamtakanna á heimasíðu Viku 43,
www.vika43.is. Kynningarefni Viku 43 er unnið í samstarfi við Jafningja-
fræðsluna sem lánaði „fyrirsætur“ til verkefnisins.
Félagsstarf ungmenna í forvarnavikunni