Morgunblaðið - 22.10.2014, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 295. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Mannleg mistök í Kópavogi
2. Ætlaði að stækka vöðvana aðeins
3. Krummi dæmdur í skilorðsbundið …
4. Aldrei upplifað annað eins
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bandaríski plötusnúðurinn, raf-
tónlistarmaðurinn og -framleiðand-
inn Skrillex, réttu nafni Sonny John
Moore, verður aðalflytjandi tónlistar-
hátíðarinnar Sónar Reykjavík sem
haldin verður 12.-14. febrúar á næsta
ári. Um Skrillex segir á heimasíðu há-
tíðarinnar að hann hafi umbylt dans-
tónlist og sé einn vinsælasti tónlist-
armaður heims. Fleiri flytjendur á
hátíðinni hafa verið kynntir til sög-
unnar, m.a. Paul Kalkbrenner sem er
mikil stjarna í heimi danstónlistar og
sést hér á mynd, norski diskóboltinn
Todd Terje og einn vinsælasti plötu-
snúður heims, hin rússneska Nina
Kraviz. Þá mun tríóið Nisennen-
mondai, skipað þremur japönskum
tónlistarkonum, koma fram á hátíð-
inni og sænski rapparinn Yung Lean
með hópi sínum Sad Boys. Plötu-
snúðurinn Alizzz frá Barcelona treður
einnig upp. Af íslenskum tónlistar-
mönnum og hljómsveitum hafa svo
verið kynnt til sögunnar Samaris,
Mugison, Prins Póló, Uni Stefson og
Young Karin.
Skrillex og Kalk-
brenner á Sónar
Menningarfélag
Akureyrar hefur
ráðið Gunnar I.
Gunnsteinsson í
starf fram-
kvæmdastjóra.
Gunnar hefur
starfað sem fram-
kvæmdastjóri
Bandalags sjálf-
stæðu leikhús-
anna og Tjarnarbíós undanfarin ár og
einnig sem leikari, leikstjóri og fram-
leiðandi til fjölda ára.
Gunnar ráðinn
framkvæmdastjóri
Á fimmtudag og föstudag Austlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s.
Víða él og hiti kringum frostmark, en skúrir við suðurströndina og
hiti 1 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma
norðantil upp úr hádegi, en hægari vindur og rigning með köflum
syðra síðdegis. Hiti 1 til 6 stig við suður- og suðvesturströndina.
VEÐUR
Mikið gekk á í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Stærstu tíðindin
voru í Hvíta-Rússlandi þar
sem 27 ára gamall Bras-
ilíumaður sem aldrei hefur
spilað A-landsleik, Luiz
Adriano, skoraði fimm sinn-
um í 7:0 útisigri Shaktar
Donetsk á BATE Borisov.
Bayern München skoraði
einnig sjö mörk á Ólympíu-
leikvanginum í Róm en alls
voru 40 mörk skoruð. » 2
Skoraði 5 en er
ekki í landsliði
„Það hefur ekkert gengið hjá okkur
undanfarna mánuði. Við ætluðum
okkur stærri hluti en raun ber vitni.
Eins og tímabilið byrjaði hjá okkur
leit út fyrir að við værum að fara að
berjast um Evrópusæti en ég veit
ekki hvað gerðist hjá okkur,“ segir
Björn Daníel Sverrisson, sem er
einn fimm íslenskra
knattspyrnumanna
hjá Viking í Stav-
angri. »4
Veit ekki hvað hefur
gerst hjá Viking
Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs
Molde, segir að árangur liðsins í
norsku B-deild kvenna í handknattleik
hafi komið á óvart. Molde er nýliði í
deildinni en hefur samt fullt hús stiga
að loknum fimm leikjum. Þegar undir-
búningur hófst í sumar fyrir keppnis-
tímabilið var ekki ástæða til bjartsýni,
að sögn Einars. Sex leikmenn yfirgáfu
liðið og aðeins einn kom í staðinn. »3
Engin ástæða til bjart-
sýni fyrir leiktíðina
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Svo virðist sem stöðugt sé verið að plata
fólk og töframenn njóta góðs af því. „Við
Jón Víðis höfum lengi verið áhugamenn um
töfrabrögð, könnuðum stofnun félags 2006
og það varð að veruleika ári síðar,“ segir
Gunnar Kr. Sigurjónsson um Hið íslenska
töframannagildi, sem er hluti af IBM, al-
þjóðlegri hreyfingu töframanna, „stærstu
hreyfingu töframanna í heiminum,“ bætir
hann við.
Stofnfélagar þurftu að vera tíu en þeir
voru 12 og nú eru um 20 félagar í HÍT.
Gunnar segir að ekki sé hægt að hafa at-
vinnu af því að sýna töfrabrögð á Íslandi
enda sinni félagsmenn öðrum störfum. Í því
sambandi bendir hann á að fyrstu konurnar
til að ganga í HÍT, sem koma fram opin-
berlega í fyrsta sinn annað kvöld, séu ís-
lenskufræðingar; önnur sé íslenskukennari
við MH og hin þingmaður. „Félagar sinna
þessu ýmist í atvinnuskyni að hluta til eða
vegna þess að þeir eru áhugamenn um
töfrabrögð,“ segir Gunnar.
Félagsfundir eru mánaðarlega og segir
Gunnar að þar sé eðlilega rætt um töfra-
brögð og þau sýnd. Töframenn þurfi stöð-
ugt að vera á tánum og koma með ný töfra-
brögð og liður í því sé að fá erlenda gesti
árlega til að sýna og kenna ný brögð. „Við
kaupum fyrst og fremst nýjar hugmyndir,“
segir hann.
Mistök og ekki mistök
Gunnar segir að spilatöfrabrögð séu al-
gengust, en fjölbreytileikinn njóti sín á sýn-
ingum eins og í Salnum. Spil séu auðveld í
meðförum og auk þess séu til margar út-
færslur af spilatöfrabrögðum. Þau geti
samt misheppnast eins og önnur
brögð. „Skemmtilegast er þegar eitt-
hvað misheppnast en verður ótrú-
legt,“ segir hann og rifjar upp
ákveðið atvik. „Einu sinni dró
einhver spil úr stokknum hjá
mér, ég fékk það aftur og
stokkaði. Fyrir tilviljun flaug
eitt spil úr stokknum og lenti
á gólfinu beint fyrir fram-
an tærnar á viðkomandi
gesti. Hann beygði sig niður og tók upp
spilið og það var spilið sem hann hafði dreg-
ið úr stokknum. Þetta leit út fyrir að vera
það sem átti að gerast en var í raun algjör
tilviljun.“
Öðru sinni var Baldur Brjánsson í sjón-
varpsþætti með öðrum manni, sem átti að
fara ofan í pappakassa. Baldur átti svo að
stinga nokkrum tréspjótum í gegnum kass-
ann og var atriðið vel æft og merkt þar sem
hann átti að stinga í gegn. Á meðan Baldur
var í sminki setti sviðsmaður kassann sam-
an og þegar Baldur kom að kassanum sá
hann hvergi merkingarnar. „Það var fullur
salur af fólki og Baldur hafði um tvennt að
velja, að hætta við eða stinga eftir minni.
Hann valdi síðari kostinn og atriðið gekk
stórslysalaust en eftir sýninguna sáu þeir
að kassinn hafði verið settur vitlaust saman,
allar merkingarnar voru að innanverðu.“
Skemmta með brögðum
Íslenskir töfra-
menn leika listir sínar
í Salnum í Kópavogi
Töfrakonur Halldóra Björt Ewen og Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, koma fram sem töfratvíeyki.
Hið íslenska töframannagildi (toframenn.is) var stofnað
2007 og hefur síðan haldið árlegt töfrakvöld, þar sem er-
lendir töframenn hafa meðal annars komið fram, auk þess
sem þeir hafa kennt félagsmönnum ýmislegt í faginu.
Áttunda töfrakvöld HÍT verður í Salnum í Kópavogi annað
kvöld og hefst það kl. 20 en húsið verður opnað hálftíma fyrr
og þá ganga töframenn um á meðal gesta og sýna töfra-
brögð. Skoski töframaðurinn R. Paul Wilson er aðal-
gestur sýningarinnar að þessu sinni en auk hans
taka íslenskir töframenn þátt í sýningunni. Þeir eru
tvíeykið Halldóra Björt Ewen og Katrín Jakobs-
dóttir, Jón Víðis, Einar einstaki og Gunnar Kr.
Sigurjónsson. Logi Bergmann verður kynnir.
Aðalgesturinn frá Skotlandi
TÖFRAKVÖLD HINS ÍSLENSKA TÖFRAMANNAGILDIS
Gunnar Kr.