Morgunblaðið - 24.10.2014, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. O K T Ó B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 249. tölublað 102. árgangur
FJÖLSKYLDUVÆNT
GRÍN UPPISTANDAR-
ANS JIM BREUER
SÍGILD HLAÐBORÐ
Í BLAND VIÐ
ERLENDAR HEFÐIR
21 TUNGUMÁL
TALAÐ Í LEIK-
SKÓLANUM ÖSP
24 SÍÐUR UM JÓLAHLAÐBORÐ TÆKIFÆRI Í FJÖLBREYTNINNI 16REYKJAVÍK COMEDY FESTIVAL 38
Ljósmynd/Búngaló
Orlofshús Útlendingar eru um 80%
þeirra sem velja sér orlofshús á netinu.
„Við leggjum um þessar mundir
áherslu á uppbyggingu markaðar-
ins í Kanada,“ segir Guðmundur
Lúther Hallgrímsson, starfsmaður
Búngaló, leigumiðlunar fyrir sum-
arhús á Íslandi og í Kanada.
Á sjötta hundrað sumarhúsa eru
skráð á vefsíðu Búngaló, 450 ís-
lensk og 100 kanadísk, auk tveggja
sænskra. Útlendingar eru um 80%
þeirra sem nota vefsíðuna. Oftast
eru þetta einstaklingar og fjöl-
skyldur sem skipuleggja ferðalag
til Íslands á eigin vegum.
Fyrirtækið var stofnað árið 2010
um leið og vefsíðan. Hugmyndin
kviknaði þegar frumkvöðlarnir ætl-
uðu að leigja sér bústað en komust
að því að það var hægara sagt en
gert að afla upplýsinga um orlofs-
hús á boðstólum. »16
Búngaló byggir upp
markað fyrir
orlofshús í Kanada
Bankaútibú
» Útibú Íslandsbanka, Lands-
bankans og Arion banka eru 73.
» Þegar útibúin voru hvað flest
í landinu voru þau 170.
» Þegar mest var störfuðu um
5.300 í viðskiptabönkunum en
eru 3.300 nú.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Af um 2.000 starfsmönnum við-
skiptabanka og sparisjóða sem hafa
misst vinnuna frá hruni eru um
1.500 konur. Flestum bankastarfs-
mönnum, eða 1.200, var sagt upp á
árunum 2008 til 2009 en um 800
hafa misst vinnuna til viðbótar síðan
þá.
Hlutfall kvenna í störfum í bönk-
um hefur verið á bilinu 70 til 80%
undanfarin 30 ár og það eru fyrst og
fremst konur sem eru að missa
störfin núna. „80 til 90% af þeim
sem eru að missa vinnuna í við-
skiptabankaþjónustunni eru konur.
Fyrst í hruninu var þetta nokkuð
jafnt, karlar og konur sem misstu
vinnuna, en af þeim 800 sem hafa
misst vinnuna frá 2010 til dagsins í
dag eru örugglega um 600 konur,“
segir Friðbert Traustason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka starfsmanna
fjármálafyrirtækja. Oft sé ekki um
auðugan garð að gresja fyrir þessar
konur á vinnumarkaðinum, sérstak-
lega á landsbyggðinni þar sem nán-
ast er búið að leggja af öll skrif-
stofustörf.
„Það heyrast oft mikil harma-
kvein ef sumar kvennastéttir verða
illa úti en ég hef ekki heyrt neitt frá
stjórnmálamönnum nú þó það sé
búið að segja upp 1.500 konum í
bankakerfinu,“ segir Friðbert.
Konum sagt upp í bönkunum
Um 2.000 bankastarfsmenn hafa misst vinnuna frá hruni Þar af eru um 1.500
konur Aðallega konur sem missa vinnuna við lokun útibúa og skerta þjónustu
MÚtibúum hefur fækkað... »4
Rauðrefur Reyni grunar að einhver
hafi smyglað ref og sleppt.
Reynir Bergsveinsson, tófu- og
minkabani, hefur undanfarin fjögur
ár orðið var við spor eftir óvenjustór-
an ref á Þingvöllum. Hann telur að
þar geti annaðhvort verið rauðrefur
eða silfurrefur á ferð.
„Íslenska tófan valhoppar í öllum
aðalatriðum en þessi töltir. Þetta er
svo stórt dýr að sporin eru miklu
stærri en eftir tófu og göngulagið er
greinilega annað,“ sagði Reynir „Ég
tel að þetta sé alls ekki íslenskur ref-
ur. Af þeim þúsund tófum sem ég hef
skotið á 60 árum voru þrjár svo af-
burða stórar að ég líkti þeim við ný-
fæddan kálf! Þær gætu hafa verið 5-8
kíló. Ég legg mest upp úr göngulag-
inu. Þessi refur gengur í beina línu og
er jafnt bil á milli spora í allri slóðinni.
Hann valhoppar ekki.“
Reyni grunar að einhver hafi
smyglað rauðref til landsins og sleppt
honum. Hann minnti á að 2012 hefði
verið smyglað hingað lifandi merði
með Norrænu og dýrið komist alla
leið á höfuðborgarsvæðið.
„Eftir því sem skógar breiða úr sér
fjölgar þeim sem finnst þá vanta hin
og þessi dýr,“ sagði Reynir.
gudni@mbl.is »6
Rauðrefur á Þingvöllum?
Mjög stór og markar öðruvísi slóðir en íslenskar tófur
Veldur hver á heldur, hjólagarpurinn Sebastían
leikur listir sínar og gerir sér lítið fyrir og lætur
hjólhestinn sinn prjóna yfir Snorrabrautina.
Drengurinn er lunkinn enda býsna gaman að
stunda hjólreiðar, vel búinn og með hjálm á
höfði. Alltaf er þó betra að fara að öllu með gát.
Prjónar yfir gangbrautir bæjarins
Morgunblaðið/Golli
Um 75% af
gagnaflutn-
ingum um far-
símanet á Ís-
landi eru á
vegum við-
skiptavina
Nova. Þetta má
lesa úr tölfræði-
skýrslu Póst- og
fjarskiptastofnunar fyrir fyrri
helming þessa árs.
Gagnaflutningar um farnetið
hafa aukist hröðum skrefum og
hafa því sem næst þrefaldast frá
fyrri helmingi síðasta árs. Engu að
síður standa Íslendingar enn
Norðurlandaþjóðum að baki í þró-
uninni. »22
Gagnaflutningar
í örum vexti
Gríðarleg viðskipti hafa verið
með kröfur á slitabú Landsbankans
(LBI) það sem af er ári. Til viðbótar
við kaup á Icesave-kröfu Seðla-
banka Hollands þá hafa erlendir
vogunarsjóðir keypt samþykktar
forgangskröfur á LBI fyrir yfir 80
milljarða að nafnvirði á árinu.
Þetta sýnir ný kröfuhafaskrá LBI
sem Morgunblaðið hefur undir
höndum. Vogunarsjóðir hafa ekki
síður verið stórtækir kaupendur að
almennum kröfum. Burlington Lo-
an Management, vogunarsjóður
sem er stærsti einstaki kröfuhafi
föllnu bankanna, hefur þar verið
fyrirferðarmikill á árinu og á nú al-
mennar kröfur á LBI fyrir um 50
milljarða að nafnvirði. »18
Vogunarsjóðir
kaupa kröfur á LBI
Sjávarútvegsráðherra mun ein-
hliða ákveða makrílkvóta eins og
verið hefur eftir að upp úr við-
ræðum við strandríki um stjórn
makrílveiða slitnaði. Fundinum
lauk í London í gær og samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins
steytti, eins og síðasta vetur, á af-
stöðu Norðmanna.
Haft er eftir Sigurði Inga Jó-
hannssyni, sjávarútvegsráðherra, í
tilkynningu að „óheppilegt“ sé að
strandríki hafi ekki náð sam-
komulagi um ábyrga stjórn veið-
anna. ESB, Noregur og Færeyjar
gerðu með sér samning um stjórn-
un makrílveiða í mars á þessu ári
án aðkomu Íslendinga. »6
Enn steytti á af-
stöðu Norðmanna