Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 10
Í fjárhúsinu Eyþór (fyrir miðju) á góðri þuklstund með Sigurði Halldórs-
syni frá Gullberastöðum. Bjarkar Snorrason þreifar á bakvöðva lambhrúts.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Rúningskeppnin sem viðhéldum hér á Kexinu í vorlukkaðist svo vel, að viðákváðum að halda áfram á
þessari braut og blása til hrútaþukls-
keppni núna,“ segir Böðvar E. Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri Kex-
lands á KEX hosteli í Reykjavík, um
Kexþukl sem haldið verður þar á
morgun, laugardag, en þar verða
hrútar þuklaðir. „Við viljum með
þessu færa sveitina í borgina, fyrir
þá sem ekki komast í sveitina. Við er-
um að kynna borgarbörnunum ræt-
urnar, leyfa þeim að fá smá nasaþef
og kynnast svona fyrirbærum land-
búnaðar eins og hrútaþukli. Við etj-
um saman vönum þuklurum og alls
óvönum, þeir óvönu sem taka þátt í
þuklinu eru vinir okkar hér úr Vita-
hverfinu, Guðmundur Jörundsson
fatahönnuður, Bjarni Snæðingur og
hjónin Magni og Hugrún í KronK-
ron. Okkur fannst vel við hæfi að
þetta fatafólk tæki þátt í að þukla
skepnurnar. Það verður skemmtilegt
að fá átta hrúta í heimsókn hér á
Kexið, þeir eru frá Hraðastöðum í
Mosfellsdal, sama bóndabæ og við
fengum kindur frá í rúningskeppn-
ina. Við ætlum ekkert að skemma
hrútana hér í borg óttans, það verður
farið strax með þá aftur í sveitina að
keppni lokinni. Þeir verða eflaust al-
veg guðs lifandi fegnir að komast aft-
ur heim til sín úr borgarskarkal-
anum.“
Hefur alræðisvald
Eyþór Einarsson, bóndi og
ráðunautur, sem býr með sauðfé í
Sólheimagerði norður í Skagafirði,
Hrútar verða þukl-
aðir í borg óttans
Nú er sú árstíð sem sauðfé er þuklað hvað mest í landinu, enda haustin tími
hrútasýninga og þá velja bændur líka líflömbin. Í þuklinu er leitað eftir því eftir-
sóknarverðasta, miklum vöðvum, hóflegri fitu og þéttvöxnum og löngum skrokk.
Á morgun gefst borgarbúum tækifæri til að fá nasaþefinn af þuklinu því nokkrir
hrútar mæta til leiks á KEX-þukl sem haldið verður í porti í 101 Reykjavík.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014
Sauðfjársetrið í félagsheimilinu Sæ-
vangi við Steingrímsfjörð á Strönd-
um er ekki aðeins frábært að heim-
sækja, heldur er vefsíða setursins
full af hverskonar fróðleik og sögum
um sauðfé. Þar er sagt frá smala-
mennskum, sláturtíð, heyskap og
öðru sem viðkemur sauðfé. Í fróð-
leikskistu Sauðfjársetursins er að
finna gnægð af fróðleiksmolum um
sauðfé og sauðfjárrækt. Einnig er þar
hlekkur sem heitir frægar kindur og
er þar sagt frá hinni landskunnu Her-
dísarvíkur-Surtlu, sem var í eigu Hlín-
ar Johnson frá Herdísarvík á Reykja-
nesi, en Surtla hafði einstakt lag á að
gera menn sárfætta og reiða. Einnig
er sagt frá Sníkju frá Kjörseyri í
Hrútafirði sem var einstaklega trygg-
lynd kind og Þoku frá Smyrlabjörgum
sem var ofurfrjósöm og dreifðust
genin hennar um allt land með af-
komendum hennar.
Vefsíðan www.strandir.is/saudfjarsetur
Morgunblaðið/Golli
Forvitin Ekki er þetta hún Sníkja, en þó er hún eitthvað að sníkja gott úr lófa.
Sníkja var trygglynd kind
Lestur er ómissandi í lífinu og aldr-
ei gerir fólk nóg af því að gleðja sig
með lestri góðra bóka. Það getur
ekki síður verið gaman að láta lesa
fyrir sig og nú er lag, því í tilefni af
Lestrarhátíð í október ætlar Gutt-
ormur Þorsteinsson, bókavörður í
Kringlusafni, að leiða bókmennta-
göngu um Kringluna á morgun laug-
ardag kl. 14.
Lagt verður upp frá Kringlusafni
og rölt um Kringluna þar sem
stoppað verður á vel völdum stöð-
um og lesið upp úr skáldsögum, ör-
sögum og ljóðum sem tengjast
verslunarmiðstöðinni. Allir eru vel-
komnir og enginn aðgangseyrir.
Gaman, gaman!
Endilega …
… farið í bókagöngu í Kringlunni
Morgunblaðið/Heiddi
Lestur Bæði gefandi og nærandi.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ávísum stað í bókinni stóru,Biblíunni, er sagt að sann-leikurinn muni gera mennfrjálsa. Svo skemmtilega
vill til að undanfarið hef ég einmitt
velt sannleikanum fyrir mér og
hvernig upplifun eins á hinu sanna
getur verið leirburður í eyrum ann-
ars. Getur upplifun verið ósönn? Þeg-
ar ég velti þessu fyrir mér kom upp í
kollinn minning, ófölsk minning, um
heimsókn mína til augnlæknis fyrir
nokkrum árum. Sú heimsókn átti fátt
skylt við augnlækningar þar sem hún
snerist fyrst og fremst um sannleika
og upplifun hvers og eins. Hér með
vottast að þessi læknisheimsókn var
öll sú furðulegasta. „Sérðu efstu lín-
una?“ spurði augnlæknirinn. Ég taldi
mig gera það og hóf upptalninguna:
„Átta, sex, B, níu …“ þuldi ég upp en
augnlæknirinn greip fram í fyrir
mér. „Einmitt það, já. Sérðu
einhverja fleiri tölustafi
þarna?“ spurði hann og fín-
gerðar krullurnar dúuðu á
kollinum þegar hann byrsti
sig. „Jájá,“ svaraði ég og
hélt áfram. „Næst
eru tveir og svo
koma fjórir,“ sagði
ég en komst ekki
lengra því í sömu
andrá slökkti sá
krullhærði á tækinu
sem varpaði sjónprófinu
upp á vegg. Augnlæknir-
inn settist fyrir framan
mig með krosslagða hand-
leggi og fnæsti af bræði.
„Það eru engir tölustafir
þarna, bara bókstafir, svo þú getur
hætt þessari vitleysu!“ Í það minnsta
var alveg ljóst að ekki gat ég haldið
áfram þar sem hann hafði slökkt á
sjónarspilinu. „Hvernig er himinninn
á litinn?“ spurði hann mig. Það var
vandlega dregið fyrir svo ég fór ekki
út í smáatriði en sagði að stundum
væri hann blár. „Það er bara þín upp-
lifun. Kannski sé ég hann allt öðru-
vísi. Ég gæti til dæmis sagt þér að
hann væri grænn, ha? Hvað myndir
þú segja þá?“ spurði doktorinn sem
mér sýndist ekki í skapi fyrir neitt
grín svo ég svaraði því til að það væri
upplifun hans á því sem fyrir augu
hans bæri og ekki mitt að draga
upplifun hans í efa. „Einmitt.
Og ef þú trúir því að þú sjá-
ir tölustafi þegar þú
horfir á bókstafi þá
ætla ég ekki að
draga það í efa en
bið þig að fara
núna,“ sagði augn-
læknirinn sem kannski
var bókstafstrúar en ég
ákvað að fara ekki til hans aft-
ur. Þarf frekari sannana við að
maður sjái illa? Það er nú það.
»„Það eru engir tölu-stafir þarna, bara
bókstafir, svo þú getur hætt
þessari vitleysu!“
Heimur Malínar
Malín Brand
malin@mbl.is
Þið eruð verð verðlækkunar strax!
Sældarlíf með Siemens
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Eins og alþjóð veit er afar líklegt að vörugjöld af heimilistækjum verði felld niður um áramót.
Til að kæta ykkur ætlum við samt strax að lækka vöruverð um 20% til áramóta af þeim tækjum,
sem nú bera vörugjöld; ofnum, helluborðum, eldavélum, uppþvottavélum, kæliskápum,
þvottavélum og þurrkurum.
20%
Morgunblaðið/Jim Smart
Höfðingjar Hrútar eru skemmtilegir og hafa oft yfir sér mikla reisn.
Stundum vilja þeir berjast sín á milli, eins og sjá má á hrútnum lengst t.v.