Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014 Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Hágæða flísar frá Ítalíu 60 x 60 cm SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Bankaútibúum á Íslandi hefur fækk- að úr 170 þegar þau voru hvað flest í undir 90 nú. Af þeim eru útibú Lands- bankans, Íslandsbanka og Arion banka 73 í heildina, Sparisjóðirnir bætast svo þar við. Frá árinu 2008 hafa yfir 2.000 starfsmenn viðskipta- banka og sparisjóða misst vinnuna. Á árunum 2008 til 2009 var um 1.200 manns sagt upp og frá þeim tíma hafa um 800 misst vinnuna til viðbót- ar. Þegar mest var störfuðu um 5.300 manns í við- skiptabönkum og sparisjóðum en eru um 3.300 nú, þar af er nokkur hópur sem er að vinna í uppgjöri gömlu bankanna og hluti af þeim er ráðinn tímabundið. Árið 2007 voru félagsmenn Sam- taka starfsmanna fjármálafyrirtækja tæplega 6.000 talsins en inni í þeirri tölu eru starfsmenn Seðlabankans, Reiknistofu bankanna, Valitors og annarra slíkra fyrirtækja. „Núna eru félagsmenn okkar 4.100 og þá eru þeir taldir með sem vinna við gömlu bankana og í dótturfyrirtækjum,“ segir Friðbert Traustason, fram- kvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, SSF. Hann býst við að starfsmönnum í þessum geira fækki enn frekar á næstu árum. „Miðað við það sem sjálfir stjórnendurnir segja verður þessi hagræðing áfram, en þeir segj- ast reyna að láta hana koma sem mest fram í því að ráða ekki í staðinn fyrir þá sem hætta m.a. vegna aldurs.“ Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki hafa verið stórtækir í að loka útibúum um allt land síðustu ár. Nú síðast ætlar Arion banki að loka útibúi sínu á Hólmavík og er við- skiptavinum bankans þar bent á næsta útibú sem er í Borgarnesi, í 160 km fjarlægð. Landsbankinn ákvað nýverið að loka útibúi í Sandgerði sem er um 2.000 manna þjónustu- svæði og var viðskiptavinum þess beint til Keflavíkur sem er þó ekki nema í 15 km fjarlægð. Þá bendir Friðbert á að bankarnir hafi líka dregið verulega úr umsvifum sínum á höfuðborgarsvæðinu og nú sé Landsbankinn eingöngu með níu útibú þar. „Það er t.d. enginn banki í Grafarvogi sem er 20 þúsund manna hverfi. Það er alltaf stanslaust að gera í þeim útibúum sem eru eftir í Reykjavík,“ segir Friðbert. Hann er sannfærður um að bankarnir hafi misskilið þörfina fyrir þessa þjónustu. Vilja mannleg samskipti „Ég er sannfærður um að þeir séu búnir að ganga of langt og þessi nið- urskurður sé farinn að koma niður á viðskiptavinunum. Það eru ekki allir sem geta notað sér rafræna þjónustu. Það er fullt af fullorðnu fólki sem er ekki með netið heima hjá sér. Það vill fara í bankann sinn einu sinni til tvisv- ar í mánuði og þrátt fyrir að fólk noti heimabanka þá þarf það oft að leita í banka til að ganga frá sínum viðskipt- um. Svo er líka allur þessi ferða- mannafjöldi sem þarf þjónustu í banka.“ Friðberti finnst að hin mikla trú á tækni hvað varðar póst- og banka- þjónustu og fleira sé komin út í algjör- ar öfgar. „Ég tel að mjög mörg okkar vilji eiga mannleg samskipti og treysti þeim best.“ Hann segir ljóst að lokun útibúa sé mikil afturför og misskilningur á þjónustuhlutverkinu. Útibúum fækkað úr 170 í 90  Um 2.000 bankastarfsmönnum hefur verið sagt upp frá hruni  Bankarnir búnir að ganga of langt í lokun útibúa að mati framkvæmdastjóra SSF  Starfsmönnum fækkað úr 5.300 í um 3.300 í dag Morgunblaðið/Sigurgeir S Beðið í bankanum Bankaútibúum hefur fækkað verulega síðustu ár. Fólk notar meira þjónustu heimabanka. Friðbert Traustason Íslandsbanki rekur 18 útibú í dag, þar af 9 á höfuðborgarsvæðinu, og hefur þeim fækkað um 12 frá árinu 2000 þegar þau voru 30. Átta útibú- um hefur verið lokað á síðustu tíu árum. Flest voru útibú Íslands- banka árið 1990, eða 37, þegar bankinn varð til við sameiningu Iðnaðarbankans, Útvegsbankans, Verslunarbankans og Alþýðubank- ans, eftir þessa sameiningu tók við mikið hagræðingarferli. Þegar Íslandsbanki og Byr sam- einuðust 2011 voru 6 útibú Byrs sameinuð öðrum útibúum. Síðasta útibú sem var lokað var í Kringlunni en því var breytt í sum- ar í sjálfsafgreiðslustöð. Á næsta ári verða útibúin í Lækjargötu og á Eiðistorgi sameinuð í eitt útibú sem verður úti á Granda. Íslandsbanki Arion banki starfrækir 23 útibú víða um land. Frá árinu 2009 hefur 16 útibúum verið lokað, þar með talin eru útibú SPRON og SPM. Fyrirrennarar Arion banka lok- uðu 7 útibúum á árunum 2004-2008. Síðast lokaði Arion banki útibúum sínum við Austurstræti og Hlemm í Reykjavík og sameinaði starfsemi þeirra í nýju útibúi í Borgartúni. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um frekari lokanir útibúa, samkvæmt upplýsingum frá Arion banka en líklegt þykir að þróunin í framtíðinni verði í þá átt að útibú- um fækki frekar en fjölgi. Ástæða fyrir lokun útibúa er m.a. sú að við- skiptavinum standa til boða fjöl- margar þjónustuleiðir, til viðbótar við útibú, sem njóta vinsælda og draga að hluta til úr ásókn í útibú. Arion banki Frá árinu 1998 hefur útibúum og af- greiðslustöðum Landsbankans fækkað úr 64 í 32. Þau voru flest tæplega 70 á tíunda áratugnum. Nýjasta lokunin var 11. október sl. þegar afgreiðslu í Sandgerði var lokað. Landsbankinn tók yfir 11 útibú við samrunna við Spkef árið 2011. Þar með urðu þau 45. Frá þeim tíma hefur útibúum og af- greiðslum verið lokað á: Flateyri, Súðavík, Bíldudal, Króksfjarðarnesi, Grundarfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Sandgerði, Garði, Njarðvík, Bæjarhrauni Hafn- arfirði og í Reykjavík hefur útibúum í Árbæ, Holtagörðum og Laugavegi 77 verið lokað. Ekki er á stefnuskránni að loka fleiri útibúum á næstunni samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum. Landsbankinn „Virkni eldgossins í Holuhrauni er svipuð og hefur verið en það dreg- ur hægt og rólega úr gosinu,“ segir Ármann Höskuldsson eldfjallafræð- ingur um stöðuna á gosinu. Bætir hann við að kraftur gossins sé með engum hætti sambærilegur við það sem var í byrjun. Flatarmál hraunsins er nú orðið um 60 km² og segir hann það vera eðlilegt í ljósi þess hve stórt og langvinnt gosið hafi verið. Hrauntjörnin rennur nú aðallega til austurs úr Baugsgíg og gígnum norður af honum en hefur einnig runnið til suðurs og á sand- ana til norðurs. Skjálftavirkni síðastliðinn sólar- hring hefur verði nokkur, eða um 70 jarðskjálftar þar sem sá stærsti mældist um 4,8 stig. laufey@mbl.is Ljósmynd/USGS-NASA Bárðarbunga Gervihnattarmynd af eldgosinu þar sem virknin fer dvínandi. Kraftur gossins minnkar með hverjum deginum „Það gerðist raunverulega ekki neitt. Það verður þá vænt- anlega verkfall á mánudag, en það hefur enginn samningafundur verið boðaður fyrr en klukkan 16 á mánudag, en þá er einn verk- fallsdagur búinn þannig séð,“ sagði Þorbjörn Jónsson, formaður Lækna- félags Íslands, eftir árangurslausan fund með samninganefnd ríkisins í Karphúsinu í gær. Eins og hann nefnir stefnir allt í að boðað verkfall lækna hefjist aðfaranótt mánudags. „Það þokaðist ekkert í þessum málum sem við teljum vera mikil- væg. Það eru ákveðin skilaboð í því ef sáttasemjari telur ekki ástæðu til að funda fyrr en á mánudaginn, þeg- ar verkfallið er hafið,“ sagði Þor- björn við mbl.is í gær. Hann sagði það vonbrigði að ekki hefði tekist að nýta tímann betur til viðræðna undanfarnar vikur. Boðað verkfall hefði legið lengi fyrir en læknar hefðu setið tvo fundi í vik- unni í húsi ríkissáttasemjara og tvo í síðustu viku. Komi til verkfalls lækna verður það í fyrsta sinn hér á landi hjá þess- ari starfsstétt, sem fékk takmark- aðan verkfallsrétt fyrir tæpum 30 árum. jonpetur@mbl.is Allt stefnir í verkfall lækna Þorbjörn Jónsson  Árangurslaus fundur í gær Eimskip hefur kært til lögreglu leka á upplýsingum til fréttaþáttarins Kastljóss er tengjast rannsókn Sam- keppniseftirlitsins á félaginu. Segir í tilkynningu frá Eimskip að Kauphöll Íslands hafi athugunarmerkt hluta- bréf Eimskipafélags Íslands vegna leka á gögnum til Kastljóss er tengj- ast rannsókn Samkeppniseftirlitsins. Eimskip segir í tilkynningu að lek- inn hafi skaðað ímynd félagsins. Þá hafnar Eimskip ásökunum um að hafa gerst brotlegt gegn ákvæð- um samkeppnislaga. Fram kemur að það sé von félagsins að rannsókn á því hvernig áðurnefnd trún- aðargögn komust í hendur óviðkom- andi upplýsist sem fyrst. Eimskip kærir leka til lögreglunnar Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.