Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 297. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Sumar jólavörur þegar uppseldar
2. Alvarlegt bílslys í Skagafirðinum
3. Kauptækifæri í Breiðholti
4. Sigga Dögg og Valdimar selja …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ártún, nýjasta stuttmynd leikstjór-
ans Guðmundar Arnars Guðmunds-
sonar, hlaut í gær verðlaun fyrir
bestu leiknu stuttmyndina, Gullna
skjöldinn (e. Gold Plaque), á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chi-
cago. Fjöldi erlendra kvikmyndahá-
tíða hefur boðist til að sýna myndina
en hátíðin í Chicago er fyrsta keppn-
ishátíðin sem hún er sýnd á. Önnur
stuttmynd eftir Guðmund, Hval-
fjörður, hlaut í fyrra dómnefnd-
arverðlaun á hátíðinni í Chicago.
Morgunblaðið/Golli
Ártún valin besta
leikna stuttmyndin
Tónlistarkonan
Una Stefánsdóttir
heldur útgáfu-
tónleika á Kex
hosteli í kvöld
vegna breiðskífu
sinnar Songbook
sem kom út í maí
á þessu ári. Ragn-
heiður Gröndal
hitar gesti upp kl. 21 en hún gaf út
plötuna Svefnljóð fyrir skömmu.
Útgáfutónleikar Unu
Sýning á málverkum Guðrúnar Ein-
arsdóttur verður opnuð á Norður-
bryggju í Kaupmannahöfn í dag kl. 16.
Í tilkynningu segir að verk Guðrúnar
megi kalla náttúrumálverk, þau séu í
grundvallaratriðum byggð á tilraunum
hennar með olíumálningu,
bindi- og leysiefni og
verði til út frá skil-
yrðum náttúrunnar,
þ.e. efnanna, fremur
en út frá hefð-
bundnum landslags-
málverkum.
Guðrún sýnir á
Norðurbryggju
Á laugardag Gengur í norðaustan 8-13 m/s með dálitlum éljum
norðan- og austanlands en slyddu eða rigningu austast. Frost 0 til
5 stig en frostlaust með suður- og austurströndinni.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt og skúrir eða
slydduél en rofar heldur til á Norður- og Austurlandi eftir hádegi.
Hiti 0 til 5 stig en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.
VEÐUR
Nýliðar Aftureldingar
töpuðu sínum fyrsta leik
á tímabilinu í handbolt-
anum þegar botnlið HK
kom í heimsókn í Mos-
fellsbæinn og hirti bæði
stigin. FH-ingar unnu
sinn þriðja leik í röð og
eru komnir í annað sætið.
Geir Guðmundsson skor-
aði 10 mörk fyrir Val og
Stephan Nielsen var
gömlu félögunum í Fram
erfiður. »2-3
Óvænt úrslit
í Mosfellsbæ
Snorri Steinn Guðjónsson hefur farið
á kostum með Sélestat í franska
handboltanum þó hann skilji varla
stakt orð í tungumálinu enn sem
komið er. „Mér finnst þetta skref
mitt hafa gefið mér nýtt líf í bolt-
anum,“ segir Snorri sem er ómyrkur í
máli hvað íslenska landsliðið varðar.
„Nú verðum við að byrja að moka upp
eftir okkur skítinn með landsliðinu
frá því í vor,“ segir Snorri Steinn. »4
Fer á kostum þó hann
skilji varla stakt orð
Íslandsmeistarar KR sluppu svo
sannarlega með skrekkinn gegn öfl-
ugu liði nýliða Tindastóls í Vestur-
bænum í gærkvöld í 3. umferð Dom-
inos-deildar karla í körfuknattleik. KR
vann í framlengdum leik og er með
fullt hús stiga. Stjarnan rúllaði yfir
Grindvíkinga sem höfðu allt á horn-
um sér og misstu tvo menn af velli,
og Njarðvík lagði botnlið ÍR. »2-3
Meistarar KR unnu
nýliðana í framlengingu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hallgrímur Pétursson er kominn
aftur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd,
þar sem hann var prestur á árum áð-
ur. Þökk sé Dóru Guðbjörtu Jóns-
dóttur, gullsmiði í Gullkistunni við
Frakkastíg í Reykjavík, og stór-
fjölskyldu hennar, sem gáfu í vik-
unni Saurbæjarprestakalli um 100
ára gamla mynd af sálmaskáldinu,
sem Samúel Eggertsson, móðurafi
hennar, teiknaði.
Dóra segir að póstkort með teikn-
ingum Samúels hafi verið mjög vin-
sæl og fólk komi enn í búðina hjá sér
til að spyrjast fyrir um þau.
„Það er ótrúlegt hvað fólk man
eftir honum því hann dó 1949,“ segir
Dóra. „Þegar ég hef spurst fyrir um
póstkortin hjá antíksölum í Kola-
portinu segja þeir að stöðugt sé
spurt um kortin en þau komi sjaldan
inn og fari jafnóðum.“
Dóra bætir við að hún hafi í sam-
ráði við aðra afkomendur Samúels,
látið endurútgefa nokkur kort eftir
hann, meðal annars kort sem hann
hafi teiknað í tilefni 100 ára afmælis
Jóns Sigurðssonar 1911. Hann hafi
líka teiknað mynd í tilefni 300 ára af-
mælis Hallgríms Péturssonar. „Allir
landsmenn þekkja þá mynd enda var
hún til á nánast hverju einasta heim-
ili hérna áður fyrr, en var lengi ekki
fáanleg. Því lét ég gera póstkort eft-
ir þessari gömlu teikningu og hafa
þau meðal annars verið til sölu í
Hallgrímskirkju á þessu ári.“
Gjöfin varð til fyrir tilviljun
Dóra segir að hugmyndin um gjöf-
ina hafi orðið til fyrir tilviljun. „Oft
veltir lítil þúfa þungu hlassi, var ein-
hvern tímann sagt,“ segir hún og
rifjar upp að í vor hafi hún farið í
ferð á vegum Iðnaðarmannafélags
Reykjavíkur upp í Borgarfjörð. Þá
hafi meðal annars verið komið við í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og hún
stigið inn í kirkjuna í fyrsta sinn. „Þá
tók ég eftir því að þar var engin
mynd af Hallgrími Péturssyni,
spurði séra Kristin Jens Sigur-
þórsson hvernig á því stæði og hvort
ekki væri áhugi á að fá eina slíka.
Svo reyndist vera og þá talaði ég við
Þórleif Friðriksson hjá Guðjóni Ó.,
sem sagði það vera hið minnsta mál
að stækka myndina. Þeir vildu líka
taka þátt í gjöfinni og prentsmiðjan
gaf okkur myndina.“
400 ára afmælis Hallgríms Pét-
urssonar hefur verið minnst með
margvíslegum hætti í ár, einkum í
Hallgrímskirkju í Reykjavík og í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Í því
sambandi má nefna að sérstök af-
mælishátíð stendur yfir frá í dag til
31. október í Hallgrímskirkju.
Hallgrímur aftur í Saurbæ
Gáfu 100 ára
gamla teikningu
af sálmaskáldinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gjöf Dóra Guðbjört Jónsdóttir, gullsmiður í Gullkistunni, með myndina af Hallgrími Péturssyni.
Samúel Eggertsson fæddist 25. maí 1864 í Melanesi á Rauðasandi og
voru foreldrar hans Eggert Jochumsson, bróðir Matthíasar, frá Skógum
í Þorskafirði og fyrri kona hans, Guðbjörg Ólafsdóttir. Hann komst að í
bændaskólanum í Ólafsdal og segir Dóra Guðbjört Jónsdóttir að hann
virðist hafa drukkið í sig allt sem þar hafi verið kennt. Hann hafi lært
allt um ræktun, landmælingar og fleira og fljótlega verið beðinn um að
taka að sér ýmsar landmælingar. Hann hafi m.a. ferðast um landið og
kortlagt öll þorp með fleiri en 300 íbúa. „Á árunum 1911-1941 teiknaði
hann og gaf út 20 bréfspjöld, mest um sögu Íslands og landafræði,“
skrifaði Dóra í Morgunblaðið árið 2000. „Bréfspjöldin, eða póstkortin,
voru gefin út í meira en 30 útgáfum, samtals ekki minna en 200 þús-
und eintök.“
Yfir 200 þúsund eintök
KORTAGERÐARMAÐURINN SAMÚEL EGGERTSSON