Morgunblaðið - 24.10.2014, Side 32

Morgunblaðið - 24.10.2014, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014 Smáauglýsingar 569 1100 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ýmislegt Ódýr blekhylki og tónerar Verslun í Hagkaup, Smáralind og Fjarðargötu 11, Hafnarfirði Blekhylki.is, sími 517 0150 Blómaskór. Margir litir. Eitt par 1.400 kr., tvö pör 2.500 kr. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. TILBOÐ Fallegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stakar stærðir. TILBOÐSVERÐ: 2.500.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. GLERFILMUR Hringtreflar Mikið úrval. Kr.3500 Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Vetrarklútarnir komnir Verð kr. 4.500 Verð kr. 3.990 Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. NÝKOMIÐ! Teg. SELENA - push up fyrir þær stærri í stærðum 75-95 B,C,D,E,F,G á kr. 6.850 - Verð kr. 2.680 Teg. TONI - haldgóður í stærðum 75-95 DEF á kr. 7.995 - buxurnar á kr. 3.995 Teg. BELLA - fóðraður push up í stærðum 75-95 DEF á kr. 7.995 - buxurnar á kr. 3.995 Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14 Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur Teg. 631501 Mjúkir og einstaklega þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir: vínrautt og svart. Stærðir: 36-41 Verð: 15.685 Teg. 961885 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir: vínrautt og svart. Stærðir: 36-41. Verð: 15.500 Teg. 6618801 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 15.500 Teg. 619204 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-40. Verð: 15.500 Teg. 619202 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 16.500 Teg. 631504 Mjúkir og einstaklega þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41. Verð: 16.500 Teg. 6037 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42. Verð: 14.685 Teg. 7267 Sérlega mjúkir og þægilegir skór fyrir „erfiða“ fætur. Stærðir: 36-42. Verð: 14.685 Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.- fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílar Renault Trafic L1H1. Skr. 07/06, ek. 126 þ.km., beinskiptur, dísil. Mjög vel með farinn bíll. Ásett verð 1.490 þúsund. Tilboð 1.350 þúsund. Upplýsingar í síma 897 8250. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Elsku mamma mín, mikið sakna ég þín, þú varst ekki bara sálufélagi minn, þú varst besti vinur minn, og ég veit að það var svo sann- arlega gagnkvæmt. Þú varst tæplega fimmtug þegar þú áttir mig og pabbi 62 ára, geri aðrir betur. Þegar ég lít tilbaka, Pabbi vann sem vakt- maður hjá Málningu hf. við Kárs- nesbraut, fórum við 3 saman á Skodanum að hjálpa pabba að þrífa og skúra, ég þó aðallega að skoða mig um i fyrirtækinu, það var spennandi fyrir litla snáðann að fá að kríta á töflurnar, tefla, og komast í ísskápinn og borða af- ganga, enda hef ég ekki stoppað að borða síðan, enda er eg mikið fyrir mömmumatinn gamla og góða, fórum við svo heim um mið- nætti , en pabbi stoð vaktina und- ir morguns. Bíltúrarnir sem við fórum í t.d. í ísbúðina v/ höfnina i Hafnarfirði, upp i Kaldársel, til ’Oskars bróðir á Laufvangi, Kjartans heitins í Borgarhrauninu. Pabbi lést 23 desember 1983, hann var yndislegur hann Ásgeir, faðir minn, tryggur með hjartað á réttum stað, þið voruð asskoti góð saman, samrýmd hjón. Nokkrum mánuðum fyrir andlát föður míns vorum við pabbi i eld- húsinu, sá gamli að sjóða sér fisk með kartöflum, hamsatólg og smjöri, hann hélt á útvarpinu v/ eyrað á sér og stappaði fótunum í gólfið eins og hann gerði oft, pabbi lækkar svo í útvarpinu og segir við mig, Einar minn þú verður alltaf að hugsa vel um hana móður þína, já við hugsum öll vel um hvert annað pabbi minn sagði ég, hann þráaðist að- eins við og klappaði mér á bakið og sagði þú verður að lofa mér því, auðvitað svaraði ég því ját- andi, og þar við sat, það var eins og pabbi hefði fundið á sér að Ingigerður Magnúsdóttir ✝ IngigerðurMagnúsdóttir fæddist 12. júní 1919. Hún lést 25. september 2014. Útför Ingigerðar fór fram 8. október 2014. hann ætti ekki mik- ið eftir, þessi tilfinn- ing og þetta samtal er ennþá svo ljóslif- andi mér í dag. það er svolítið sérstakt að eiga svona gamla for- eldra, í góðu sagt, en ég var heppinn að eiga ykkur að, þó pabba of stutt. gegnum skólagöng- una, sem gekk all sæmilega, fékk ég hjálp frá Gústu systur sem gerði sitt besta að kenna mér, með misjöfnum árangri, enda áttu íþróttir hug minn allan. Eftir að fór að bera á veikind- um þínum mamma mín, þá tengd- umst, við ennþá sterkari böndum, sem voru þó sterk fyrir, enda þá koma gildin og karakterinn í ljós í okkur mannfólkinu, skóli lífsins. Oft varstu óttasleginn og hrædd en varst svo ánægð að hafa mig hjá þér. „Já drenginn minn, dem- antinn minn.“ Það var gott að heyra það mamma mín. Þessi leiðangur var erfiður, eiginlega mjög erfiður, því þessi sjúkdóm- ur er grimmur enda ekki til lækn- ing gegn honum, getur hamlað því sem gerir persónu einstaka, þ.e.a.s. gerir mann að því sem maður er. Enda erum við mann- fólkið eflaust skýrð eftir reynslu okkar, minningum okkar, og þessi sjúkdómur drepur það blá- kalt niður, eina hugsun í einu og er oft langvarandi, eins og sálin hverfi smátt og smátt. Þú hélst þínum karakter allan tímann, langlundargeðinu og brosinu, og líka margt jákvætt sem maður upplifði með þér gegnum þessa reynslu, en oft erf- itt að að geta ekkert gert til að stoppa þetta. Dagarnir saman að veita hvort öðru félagsskap, sjúkraþjálfun, örvandi æfingar, væntumþykju. Passa upp á lyfin þín, klósettferðir, mat, svefn og vera alltaf til staðar. Að lokum vil ég þakka Albert H. N. Valdi- marssyni og fjölskyldu fyrir hlýjuna, þið eruð alvöru. Yndið mitt, Guðrún V Ásgeirsdóttir og dætur, stórt knús til ykkar, nú eru þau sameinuð, litli Ásgeir og mamma. Einar Þór Ásgeirsson. Elsku Lilli. Ég á svo margar og góð- ar minningar um þig og frá Hegg- stöðum. Ég var aðeins sex vikna þeg- ar ég kom fyrst. Við mamma fórum með Akraborginni og síð- an rútu að Grund og þaðan var ég reidd í sæng af föður þínum, Albert, að Heggstöðum. Þú, að- eins þriggja ára, komst út á móti okkur og sagðir: „Nú er ég bú- inn að búa um hana í vöggunni minni, en pelann fær hún ekki – hún getur haft lambapelann.“ Ég leit mikið upp til þín, mér fannst þú geta allt, til dæmis virkjaðir þú bæjarlækinn og komst rafmagni á bæinn. Þú varst mjög ötull og duglegur, alltaf vinnandi. Foreldrar þínir, þau Imba og Albert, og hún Ingveldur amma þín voru sérstaklega indælt og Guðmundur Albertsson ✝ Guðmundur Al-bertsson fædd- ist 16. október 1933. Hann lést 9. október 2014. Útför Guðmundar var gerð 18. október 2014. skemmtilegt fólk – höfðingjar heim að sækja. Um 10 ára skeið komum við móðir mín að Heggstöðum á hverju vori. En þá fæddist Sirrý systir og þá kom ég bara ein, mamma kom svo seinna með hana. Móðir mín var aðeins fjögurra ára þegar hún kom fyrst að Heggstöðum með Viggu móðursystur sinni. Vil ég þakka þér og konunni þinni heit- inni, Ástu frá Krossi, sem ávallt var svo góð og dugleg, fyrir gestrisnina þegar okkur bar að garði Börnin mín, Ámundi, Bjarni, Ingi og Nanna, senda þakklæt- is- og saknaðarkveðjur til barnanna þinna – þau eiga góð- ar minningar um ykkur og það að fá að veiða endrum og eins í Eilífsvötnum. Við Óskar send- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Því miður komumst við ekki í jarðarförina því nú erum við í Bandaríkjunum hjá Nönnu. Rannveig (Ransý), Óskar og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.