Morgunblaðið - 24.10.2014, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014
Þorgeir Guðmundsson, elsti A-landsliðsmaður Íslands í íþrótt-um og rafvirkjameistari hjá rafvélaverkstæðinu Segli ehf., ersjötugur í dag. Hann ætlar að taka það rólega með eiginkon-
unni Margréti Stefánsdóttur í sumarbústað fyrir austan fjall og á
von á nokkrum gestum þangað í kaffi og vöfflur á morgun. „Ég hélt
upp á 50 ára afmælið úti í KR og þá komu á þriðja hundrað manns,
það nægir,“ segir hann.
Fyrir um hálfri öld var Þorgeir einn sterkasti varnarmaður lands-
ins í fótbolta, Íslands- og bikarmeistari með KR og fyrirliði b-liðsins
sem sló út a-liðið í bikarkeppninni og lék til úrslita við Eyjamenn, en
eftir að hafa starfað í Bandaríkjunum í 11 ár fluttu hjónin aftur
heim 1989, hann kynntist pílukasti, nýrri íþrótt hjá uppeldisfélag-
inu, og það hefur nánast átt hug hans allan síðan.
Þorgeir hefur verið í pílulandsliðinu í um 20 ár. Hann er efstur á
stigalistanum, hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari í tvímenn-
ingi og þrisvar fagnað Íslandsmeistaratitli í einliðaleik, síðast 2013,
en var erlendis í fyrra og náði ekki að verja titilinn. „Okkur gekk
ekki vel á Norðurlandamótinu í vor og síðan gaf ég ekki kost á mér í
Evrópumótið í Búlgaríu í sumar, hafði ekki efni á því, en vonandi
get ég skrapað saman peningum til að vera með í heimsmeist-
aramótinu í Tyrklandi á næsta ári.“ steinthor@mbl.is
Þorgeir Guðmundsson 70 ára
Afmælisbarn dagsins Þorgeir Guðmundsson er stoltur pílumeistari.
Elsti A-landsliðs-
maður Íslands
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hafnarfjörður Isa-
bel Snæbrá
Rodriguez fæddist
14. febrúar 2014 kl.
17.44. Hún vó 3.535
g og var 50 cm
löng. Foreldrar
hennar eru Dagný
Sif Snæbjarn-
ardóttir og Axel
Rodriguez.
Nýir borgarar
R
agnheiður fæddist á
Landspítalanum í
Reykjavík 24.10.
1984. Hún átti heima í
Vesturbænum í
Reykjavík fyrstu æviárin, síðan í
Kópavogi, Garðabæ, og í Dan-
mörku í tvö ár þegar hún var á
sjötta og sjöunda árinu og síðan í
Garðabænum.
Ragnheiður var í Flataskóla í
Garðabæ og í Garðaskóla, stundaði
nám við Menntaskólann í Hamra-
hlíð í tvö ár og við High School í
Mission Viejo í Kaliforníu um
skeið, haustið 2001, og keppti þá í
sundi með þeim skóla. Er Ragn-
heiður kom aftur heim lauk hún
stúdentsprófi af listnámsbraut við
FG. Hún stundaði síðan nám í
förðunarfræði við Snyrtiakadem-
íuna og stundar nú nám í leiklist
við New York Film Academy í Los
Angeles í Bandaríkjunum.
Ragnheiður æfði og keppti í
sundi hjá Stjörnunni frá sex ára
aldri, keppti með Breiðabilki frá 13
ára aldri, keppti með Sundfélagi
Hafnarfjarðar frá 17 ára aldri og
hefur keppt fyrir KR frá 2005.
Ragnheiður er margfaldur Ís-
landsmeistari í sundi og auk þess
margfaldur Íslandsmethafi í 50 m
skriðsundi, 100 m skriðsundi og
100 m fjórsundi sem og í boðsundi.
Hún hefur keppt á fjölda
Evrópumeistaramóta og
heimsmeistaramóta og tekið þátt í
tvennum Ólympíuleikum.
Ragnheiður hefur hlotið viður-
kenninguna Sundkona ársins
nokkrum sinnum, var einu sinni í
topp tíu í valinu á Íþróttamanni
ársins og hefur verið kjörin
Íþróttamaður Garðabæjar,
Reykjavíkur og KR oftar en einu
sinni.
Auk þess að vera atvinnusund-
Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona og leiklistarnemi – 30 ára
Eiginmaður og börnin Atli með börnunum sínum, Sunnu Lind sem er níu ára og Breka sem er á öðru árinu.
Sundkonan sem stefnir
á kvikmyndaleik
Sundkonan Ragnheiður á Ólymp-
íuleikunum í Peking 2008.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
KOLAPORTIÐ
kolaportid.is
Einstök stemning í 25 ár
Opið laugardaga og sunnu
daga
frá kl. 11-17