Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014 STOFNAÐ1987 einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s M ál ve rk : Si g u rb jö rn Jó n ss o n Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandaríski grínistinn Jim Breuer er einn þeirra sem kitla munu hlát- urtaugar gesta á alþjóðlegu grínhá- tíðinni Reykjavík Comedy Festival sem haldin verður í Hörpu um helgina. Hátíðin hefst í kvöld kl. 20 með uppistandi breska grínhópsins Best of Fest og Sögu Garð- arsdóttur en þekktustu grínistar hátíðarinnar, þ.e.a.s. utan land- steinanna, eru án efa Breuer og Stephen Merchant, samstarfsmaður Ricky Gervais til margra ára og einn af höfundum gamanþáttanna The Office. Breuer er frægur grínisti í heimalandi sínu og sló í gegn í gamanþáttunum Saturday Night Live sem hann samdi gamanefni fyrir og lék í á árunum 1995-8. Grínsjónvarpsstöðin Comedy Cent- ral telur Breuer einn af 100 bestu uppistöndurum allra tíma og er það býsna gott í ljósi harðrar sam- keppni í þeirri grein í Bandaríkj- unum. Fagrar konur og frábært fólk Breuer hóf fyrir viku uppistands- ferð um Evrópu og sló blaðamaður á þráðinn til hans í fyrradag, þegar grínistinn var staddur í Kaup- mannahöfn. Að sjálfsögðu var hann fyrst spurður að því hvað hann vissi um Ísland og kom svarið ekki á óvart: „Eftirfarandi er allt sem mér hefur verið sagt um landið: Ákveðinn hluti þess lítur út eins og tunglið, konurnar eru þær fegurstu í heimi og landsmenn allir eru stór- kostlegir.“ Blaðamaður bendir á að þetta séu eintómar klisjur og Breu- er segist hafa heyrt það líka. Hann hafi verið kvæntur í 20 ár og græði því ekkert á því að landið sé fullt af fögrum konum. Hann geti hins veg- ar notið fegurðarinnar sem áhorf- andi, eins og gestur á listasafni. – Ég er ekki viss um að Íslend- ingar kannist við þig, þó að þú sért frægur í heimalandinu … „Líklega ekki, ekki frekar en Evrópubúar almennt. Góðu frétt- irnar eru þær að ég hef lokið öllum sýningum með dynjandi lófataki og fagnaðarlátum gesta þannig að ég er nokkuð viss um að eftir tvær eða þrjár ferðir munu Íslendingar og allir aðrir sem ég hef látið finna fyrir því vita hver Jim Breuer er,“ svarar Breuer sposkur. Fleiri grín- ferðir séu fyrirhugaðar þar sem hann sé að safna efni í sjónvarps- þætti sem sýndir verða á sjón- varpsveitunni Netflix. Steve Martin kveikti áhugann Breuer segir áhuga sinn fyrir uppistandi hafa kviknað þegar hann var tíu ára og bróðir hans lék fyrir hann hljómplötu með gamanmálum leikarans Steve Martin. „Ég hafði aldrei áður heyrt fólk hlæja á plötu og ég varð yfir mig hrifinn. Ég fór svo að hlusta á fleiri grínplötur og fylgjast með uppistandi. Ég hef alltaf verið áhugasamur um grín og fjölskylda mín er mjög fyndin sem og allir vinir mínir,“ segir Breuer. Breuer segir árin í Saturday Night Live hafa verið lærdómsrík en erfið. Blaðamaður spyr hvort ekki megi líkja því við herþjálfun (e. boot camp) fyrir grínista að vinna við þættina. „Nákvæmlega, þú lýsir því hárrétt. Þetta er her- þjálfun og það er ekkert rökrétt við það sem gerist þar. Þú veist kannski að þú ert með besta gríninnslagið en þeir sem ráða gefa því ekki pláss í þættinum. Það er mikið um stjórnmál í þátt- unum, þetta er erfiðisvinna og mikill spuni með tilheyrandi áhættu. Þú stritar frá mánudegi til laugardags linnulaust,“ segir Breu- er og endurtekur orðið „linnulaust“ þrisvar sinnum. – Og hugmyndum þínum eða bröndurum er vænt- anlega slátrað hvað eftir annað? „Linnulaust!“ segir Breuer, enn og aftur. „Það er svo sem allt í lagi að hugmyndir manns hljóti ekki brautargengi en það er erfiðara þegar þú veist að þær eru lang- bestar. Í því liggur pirringurinn.“ „Ertu Ítali?“ – Þú hlýtur að hafa leikið með fjölda þekktra leikara í þáttunum? „Já, drottinn minn dýri og þeir bestu voru Tom Hanks, Kevin Spa- cey, Jack Nicholson, Robert De Niro, Joe Pesci … fyrsti sjónvarps- þátturinn í beinni sem De Niro lék í á ferli sínum var þátturinn sem ég lék í með honum. „Stóri“ þátturinn var þátturinn þegar Pesci og De Niro birtust óvænt,“ segir Breuer. – Þú gerðir einmitt mikið grín að Pesci, lékst hann í innslögum sem nefndust The Joe Pesci Show þar sem hann var spjallþáttastjórnandi. „Ég hermdi bara eftir honum og það féll honum illa í geð í fyrstu. Hann vildi hitta mig áður en hann kom með De Niro og lét mig fá það óþvegið. Þetta var eins og atriði í Goodfellas og þá er ég ekki að grín- ast,“ segir Breuer og á þar við kvikmyndina Goodfellas eftir Mart- in Scorsese þar sem De Niro og Pesci leika kaldrifjaða mafíósa. Og nú bregður Breuer sér í hlutverk Pesci og engu líkara en Pesci sjálf- ur sé í símanum. „Hann sagði: „Ertu Ítali?“ og ég svaraði: „Nei en ég ólst upp með Ítölum“. Þá segir hann: „Ég spurði þig ekki með hverjum þú hefðir alist upp heldur hvort þú værir Ítali.“ Ég sagðist ekki vera Ítali og þá segir hann: „Hvar fékkstu þá leyfi til að nota orð eins og „ginny“ og „wop“ í gríninnslögunum þínum og láta mig segja þau? Truflar það þig ekkert? Það fer í taugarnar á mér.“ Ég trúði því varla að þetta væri að gerast,“ segir Breuer („ginny“ og „wop“ eru niðrandi slanguryrði yfir ítalskættaða Bandaríkjamenn). – Þú endaðir þó ekki dauð- ur í skottinu á Cadillac … „Nei, guði sé lof! Ég hugleiddi það hvort ég ætti að gefa honum á hann og flýja land,“ segir Breuer og hlær. Pesci hafi skotið honum skelk í bringu. Enginn dónaskapur – Hvernig verður sýningin þín á Íslandi? Ferðu eftir handriti eða leikurðu meira af fingrum fram? „Ég byrja hana yfirleitt á spuna til að meta andrúmsloftið í salnum og svo flyt ég hefðbundna dagskrá sem ég hef notað á uppistands- ferðum mínum. Hún er þó ekki nið- urnegld, ég er með ákveðna fasta liði sem ég vinn út frá, sé hvað virkar og hvað ekki. Það sem ég hef verið að gera að undaförnu hef- ur virkað mjög vel á áhorfendur,“ segir Breuer og líkir uppistandi sínu við Bill Cosby klæddan í Me- tallica-jakka. Hann segi margar sögur og þá m.a. af fjölskyldu sinni. Uppistandið muni því ekki að fara fyrir brjóstið á neinum. „Fólk á að geta tengt við allt sem ég fjalla um,“ segir Breuer. Fyrir sex árum fór Breuer í uppistandsferð um Bandaríkin, Breuniversity Tour og var hún fest á filmu. Faðir hans var með í för, 85 ára að aldri og var ferðin gefin út á mynddiski, The Jim Breuer Road Journals. Tilgangurinn var að sýna hvernig það væri fyrir grín- ista að fara í uppistandsferð með föður sínum. Heimildarmynd var einnig gerð úr efninu, More Than Me, sem sýnd var á kvikmyndahá- tíðinni í Montreal árið 2009. Blaðamaður spyr hvers vegna faðir Breuers hafi farið með hon- um. Breuer segir föður sinn iðulega hafa farið með honum í uppistands- ferðir. „Við skemmtum okkur vel í þessum ferðum og hann var stjarn- an í þeim,“ segir hann. Fólk hafi auk þess fengið aðra mynd af hon- um sem grínista, komið að máli við hann og deilt því með honum hversu fallegt því þætti samband þeirra feðga. Breuer segist hafa ákveðið að taka ferðina upp til að sýna fólki fram á að það væri í fínu lagi að verja meiri tíma með for- eldrum sínum, njóta lífsins með þeim og óttast ekki dauðann. Hann hafi grunað að faðir hans ætti ekki mörg ár eftir og þeir hafi verið afar nánir. „Hann dó í fanginu á mér 25. ágúst síðastliðinn,“ segir Breuer. Uppistand Breuer á Reykjavík Comedy Festival fer fram í Silf- urbergi annað kvöld kl. 22.30 og verður jafnframt það síðasta í grín- ferð hans um Evrópu. „Eins og atriði í Goodfellas“  Grínistinn Jim Breuer verður með uppistand á Reykjavík Comedy Festival í Hörpu  Joe Pesci ósáttur við að hann væri að herma eftir honum í Saturday Night Live  Fjölskylduvænt grín L jó sm yn d/ G re g P al la nt e Stórhættulegir Pesci og De Niro í kvikmyndinni Goodfellas. Vefsíða Reykjavík Comedy Festival: rcf.is. Vefsíða Jim Breuer: officialjimbreuer.com. Orkubolti Jim Breuer bregður á leik fyrir ljós- myndara. Breuer þykir einn af bestu uppistönd- urum Bandaríkj- anna og frábær eftirherma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.