Morgunblaðið - 24.10.2014, Page 40

Morgunblaðið - 24.10.2014, Page 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014 Í tilefni af 400 ára afmæli Hallgríms Péturssonar verður blásið til sér- stakrar Hallgrímshátíðar í Hall- grímskirku sem hefst í dag og stend- ur til föstudagsins 31. október. „Hátíðin einkennist af mikilli ný- sköpun auk þess að spanna allan skalann frá grallarasöng til hefð- bundnari þátta eins og málþinga, tónleika, hátíðarmessa,“ segir í til- kynningu frá skipuleggjendum. Hörður Áskelsson, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, hringir há- tíðina inn í dag kl. 18 þegar hann leikur á klukknaspil Hallgríms- kirkju. Í framhaldinu opnar Sig- tryggur Bjarni Baldvinsson mynd- listarsýningu sína 360 dagar í Grasagarðinum. „Sýningin sam- anstendur af um 80 ljósmyndum sem mynda saman eitt verk sem sprettur upp úr hugleiðingum eða umþenk- ingum um líf Hallgríms Péturs- sonar. Ljósmyndirnar eru allar teknar í frjósömum bakgarði í Brig- hton á suðurströnd Englands.“ Í kvöld kl. 20 verða sálmar Hall- gríms fluttir í nýjum búningi, en meðal flytjenda eru Kirstín Erna Blöndal söngkona og Gunnar Gunn- arsson orgelleikari. Á hátíðinni verða frumflutt tvö ný tónverk sem samin eru af þessu til- efni. Fyrra verkið nefnist Celebra- tions (Fögnuður) og er eftir amer- íska prófessorinn Wayne Siegel sem samdi verkið fyrir Klaisorgelið og tölvu tengda veðurtungli. Það verð- ur flutt á morgun kl. 12. Hitt er eftir Olivier Kentish og Sigurbjörgu Þrastardóttur, sem þau sömdu að beiðni Tónmenntasjóðs kirkjunnar og verður frumflutt af Hljómeyki og Birni Steinari Sólbergssyni org- elleikara undir stjórn Mörtu G. Hall- dórsdóttur á tónleikum á morgun kl. 16. Við sama tækifæri verða frum- flutt ljóð eftir átta íslensk skáld, sem þau hafa samið fyrir þessa hátíð. Meðal höfunda eru Dagur Hjart- arson, Halla Margrét Jóhann- esdóttir, Magnús Sigurðsson og Soffía Bjarnadóttir. Tvær hátíðarmessur Mótettukór Hallgrímskirkju flyt- ur sálma eftir Hallgrím í búningi ís- lenskra tónskálda á tónleikum sín- um á morgun kl. 13.15 undir stjórn Harðar Áskelssonar. „Hver var Hallgrímur?“ er yf- irskrift málþings sem fram fer á morgun kl. 14. Þar flytja erindi þau Margrét Eggertsdóttir rannsókn- arprófessor, Þórunn Sigurðardóttir bókmenntafræðingur, Sveinn Yngvi Egilsson prófessor, en Ingibjörg Ey- þórsdóttir íslenskufræðingur stýrir umræðum. Sunnudaginn 26. október kl. 11 verður hátíðarmessa í beinni útsend- ingu þar sem Agnes M. Sigurð- ardóttir, biskup Íslands, prédikar og mikið fer fyrir tónlistarflutningi. Michael Jón Clarke barítón og Ey- þór Ingi Jónsson orgelleikari flytja Passíusálma kl. 17 sama dag. Sérstök hátíðarmessa verður á dánardegi Hallgríms 27. október þar sem Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og Schola cantorum syng- ur, en messutónið byggist á fornum grallarasöng allt frá tímum Hall- gríms. Á lokadegi hátíðarinnar, föstudaginn 31. október, fer fram málþingið „Siðbótarmaðurinn Hall- grímur“ undir stjórn Ævars Kjart- anssonar. Ókeypis aðgangur er að öllum við- burðum nema þrennum tónleikum. Allar nánari upplýsingar eru á vefn- um hallgrimskirkja.is. Bjart Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Allt frá grallara- söng til málþinga  Hallgrímshátíð hefst í dag kl. 18.00 Fury Nýjasta kvikmynd leikstjórans Davids Ayers gerist í seinni heims- styrjöldinni, í apríl árið 1945. Bandamenn eru nærri því að vinna stríðið og segir af reyndum liðsfor- ingja, Warraday, sem fer fyrir fá- mennri skriðdrekasveit og á við of- urefli að etja. Sveitin er illa búin vopnum en ákveður þó að láta til skarar skríða gegn nasistum í þeirra helsta vígi. Með aðalhlut- verk fara Brad Pitt, Brad William Henke, Jason Isaacs, Jon Bernthal, Michael Peña og Shia LaBeouf. Rotten Tomatoes: 80% The Rewrite Rómantísk gamanmynd með Hugh Grant og Marisu Tomei í aðal- hlutverkum. Grant leikur staur- blankan og óhamingjusaman kvik- myndahandritshöfund sem hefur vart komið orði á blað eftir að hafa unnið til Óskarsverðlauna. Í neyð sinni fer hann að kenna handrita- skrif í háskóla og kynnist þar lífs- glaðri konu sem heillar hann upp úr skónum. Leikstjóri er Marc Law- rence. Rotten Tomatoes: 71% Hemma Sænsk kvikmynd sem tekin var upp á Eyrarbakka og er að hluta íslensk framleiðsla. Hún segir af ungri konu, Lou, sem er einfari og býr hjá móður sinni. Dag einn kemst hún að því að amma hennar, Frida, sem hún hélt að væri látin, er á lífi og býr í afskekktu sjávarþorpi. Lou þiggur boð ömmu sinnar um að flytja til hennar, gegn vilja móður sinnar. Við það verður mikil breyt- ing á lífi Lou. Leikstjóri er Max- imilian Hult og í aðalhlutverkum Simon J. Berger, Lia Boysen, Moa Gammel og Lars Lind. Bíófrumsýningar Stríð, rómantík og sænsk-íslensk Hemma Liðsforingi Brad Pitt í Fury. Kvikmyndir bíóhúsanna Sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Borgríki eftir Ólaf de Fleur Jóhannesson. Lögreglumaðurinn Hannes ræðst gegn glæpasamtökum og spilltum yfirmanni fíkniefnadeildar. Mbl. bbbbn Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 20.00, 22.10, 23.10 Háskólabíó 20.00, 22.10 Laugarásbíó 15.45, 17.50, 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 18.00, 20.00 Borgríki 2 16 Metacritic 64/100 IMDB 8,3/10 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40 Smárabíó 17.00 LÚX, 17.00, 20.00, 20.00 LÚX, 22.45, 22.45 LÚX Háskólabíó 21.00 Laugarásbíó 19.00, 22.00 Fury 16 Staurblankur kvikmyndahandritshöfundur, sem hefur vart komið orði á blað eftir að hafa unnið til Óskarsverðlauna, fer að kenna handritaskrif í háskóla. Þar kynnist hann lífsglaðri konu sem heillar hann upp úr skónum. Bönnuð innan 7 ára. IMDB 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 17.40, 20.00, 20.00, 22.20, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 20.20, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 20.00 The Rewrite Gone Girl 16 Mbl. bbbbn Metacritic 79/100 IMDB 8,6/10 Smárabíó 16.45, 20.00, 22.30 Háskólabíó 17.45, 21.00 Laugarásbíó 22.00 Borgarbíó Akureyri 22.00 The Judge Eftirsóttur lögfræðingur, þekktur fyrir að verja hvítflibbaglæpamenn, snýr aftur til heimabæjarins til að vera viðstaddur útför móður sinnar. Dvölin verður lengri en til stóð því að faðir hans er ákærður fyrir manndráp. Bönnuð innan 7 ára. IMDB 7,8/10 Metacritic 48/100 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 18.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 17.20, 22.20 Sambíóin Akureyri 22.20 Dracula Untold 16 Þegar Vlad Tepes kemst að því að kraftur hans og hug- rekki nægir ekki til að vernda fjölskyldu hans fyrir grimm- um óvinum ákveður hann að leita á forboðnar slóðir eftir styrk sem dugar. IMDB 7,1/10 Sambíóin Egilshöll 22.00 Laugarásbíó 20.00 Borgarbíó Akureyri 18.00 Annabelle 16 John Form hefur fundið full- komna gjöf handa ófrískri eiginkonu sinni, Miu – fallega og sjaldgæfa gamla dúkku í fallegum hvítum brúðarkjól. En gleði Miu vegna Annabelle endist ekki lengi. IMDB 6,6/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.10 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 22.40 Alexander and the Terrible, Horrible, No Good, Very Bad Day IMDB 4,7/10 Rotten Tomatoes 59/100 Sambíóin Álfabakka 16.00, 18.00 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00 Sambíóin Akureyri 18.00 Sambíóin Keflavík 18.00 Hemma Háskólabíó 18.00, 20.00 The Equalizer 12 Fyrrverandi leynilögreglu- maður sviðsetur andlát sitt til að lifa rólegu lífi í Boston. Þegar hann hittir stúlku sem er undir hælnum á ill- skeyttum rússneskum glæpamönnum verður hann að koma henni til bjargar. IMDB 7,9/10 Metacritic 48/100 Háskólabíó 22.10 A Walk Among the Tombstones 16 Matthew Scudder er fyrrver- andi lögga og einkaspæjari. Tilveran er býsna róleg þar til eiturlyfjasali ræður hann til að komast að því hverjir myrtu eiginkonu hans. Mbl. bbbnn Metacritic 51/100 IMDB 7,4/10 Laugarásbíó 17.40 Afinn Eftirlaunaaldurinn blasir við Guðjóni á sama tíma og erfiðleikar koma upp í hjóna- bandinu og við undirbúning brúðkaups dóttur hans. Mbl. bbbmn Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Kringlunni 17.40, 20.00 Sambíóin Akureyri 20.00 The Hundred-Foot Journey Indversk fjölskylda opnar veitingastað í Suður- Frakklandi. Keppinautarnir eru lítt hrifnir og hefst at- burðarás og barátta sem þróast í óvænta átt. Bönnuð innan 7 ára. Metacritic 55/100 IMDB 7,5/10 Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00 Boyhood Metacritic 100/100 IMDB 8,7/10 Háskólabíó 17.30 The Maze Runner 12 Metacritic 58/100 IMDB 7,9/10 Smárabíó 17.30, 20.00 If I Stay 12 Metacritic 47/100 IMDB 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 París norðursins Mbl. bbbnn IMDB 7,4/10 Háskólabíó 17.45 Kassatröllin Mbl. bbbnn IMDB 7,2/10 Metacritic 63/100 Sambíóin Álfabakka 15.30 3D ísl., 15.30 ísl., 17.50 ísl., 22.20 Sambíóin Keflavík 17.50 3D ísl. Smárabíó 15.30 ísl., 17.45 ísl. Laugarásbíó 15.50 Teenage Mutant Ninja Turtles Sambíóin Álfabakka 15.40 Smáheimar: Dalur týndu mauranna Smárabíó 15.30 ísl. Laugarásbíó 15.40 ísl. Töfrahúsið Kettlingur á vergangi kemst í kynni við gamlan töframann. Með íslensku tali. Sambíóin Álfabakka 16.00, 18.00 Sambíóin Akureyri 18.00 Turist 12 Mbl. bbbbn Bíó Paradís 17.45, 22.30 20.000 Days on Earth Bíó Paradís 18.00, 20.00, 22.00 Leviathan Bíó Paradís 20.00 The Tribe 16 Bíó Paradís 20.00, 22.45 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.