Morgunblaðið - 10.10.2014, Qupperneq 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
F
yrir tveimur mánuðum fór
eitthvað að gerast, alveg
ótrúlega skrýtið, og í
þeim mánuði seldum við
einn bíl á dag, alla virka
daga,“ segir Gísli þegar hann er
spurður fregna úr rafbílavæðing-
unni. „Það hefur svo haldið áfram
það sem af er októbermánuði.“
Gísli útskýrir að reyndar séu inni í
því pantanir á Tesla Model X
jeppanum sem ekki verður afhent-
ur fyrr en á seinni hluta næsta
árs, en engu að síður er þetta
býsna merkileg þróun. „Við tökum
sem sagt niður pantanir, göngum
frá viðskiptunum og afhendum svo
þegar þar að kemur. Þannig ger-
um við reyndar með alla bíla sem
við seljum því Even er ekki með
neina bíla á lager.“
Hefðbundin umboð
heyra sögunni til
Gísli bætir því við að það sé ein-
mitt þess vegna sem fyrirtækið
nái niður verðinu þegar keyptur
er bíll af gerðinni Tesla, eða Niss-
an Leaf eða hvaða rafbíll sem er.
„Málið, sem fáir fatta enn sem
komið er, er að það eru í rauninni
engin einkaumboð fyrir bíla leng-
ur,“ bendir Gísli á. „Í Evrópu eru
engin umboð lengur, heldur get-
urðu keypt þér bíl hvar sem er.
Þú getur keypt þér bíl í París og
látið gera við hann, ef þörf krefur,
á viðurkenndu verkstæði í Osló.
Einkaleyfi til að selja bíla heyra
því sögunni til. Við hjá Even nýt-
um okkur það með því að taka yf-
irbygginguna út úr jöfnunni hjá
okkur, erum ekki einu sinni með
bíla til sýnis heldur bara til að
prufukeyra og þá lánum við fyrir
bíltúr eða jafnvel yfir nótt ef fólk
vill fá að prófa. En með þessu
móti höfum við byggt upp skipu-
lagið hjá okkur og seljum allar
tegundir af rafbílum. Við vorum til
að mynda að setja hinn nýja Re-
nault Zoe inn á heimasíðuna hjá
okkur, í kjölfar prófana. Við förum
að taka pantanir á þann bíl og
leyfum þá fólki að prófa hann, eins
og aðra. Síðan kemur sendi-
ferðabíllinn frá Nissan [innsk.
Nissan e-NV200] og svo BMW-
rafbílarnir. Í kjölfarið koma svo
rafknúnu gerðirnar af Volkswagen
Golf.“
Lagerinn er úti í Evrópu
Gísli útskýrir að þetta sé meðal
annars hægt með því að panta inn
bíla í samfloti við Norðmenn sem
séu verulega stórtækir í rafbíl-
unum. „Þegar þeir panta 200 bíla
þá pöntum við 20. Bílarnir eru svo
á lager í útlöndum og þegar ein-
hver kemur hingað inn og gengur
frá kaupum á bíl, þá einfaldlega
sendum við tilkynningu út, bíllinn
fer um borð í skip og er hingað
kominn eftir 3-4 vikur. En með
því að lagerinn er erlendis fær
viðskiptavinurinn bílinn sinn tals-
vert ódýrari, enda látum við hann
njóta sparnaðarins. Nákvæmlega
sama bílinn. Þess vegna er það
mín trú, eins og ég nefndi áðan, að
hin hefðbundnu bílaumboð séu bú-
in.“
Engar kostnaðarsamar
endurkomur
Að sögn Gísla á þetta sérstaklega
við um rafbíla því þá þurfi ekki að
koma með aftur og aftur í kostn-
aðarsamar skoðanir og þar fram
eftir götunum. „Öll hefðbundin
bílaumboð byggja á því að þegar
þau hafa einu sinni selt bílinn þá
fá þau hann til sín í viðhald í mörg
ár í kjölfarið. Þau ná svo aftur
kannski 60-70% af verði bílsins á
næstu sjö árum í viðhald, kostnað,
breytingar, lagfæringar á hlutum
eins og tímareim og þvíumlíkt.
Þetta er óþekkt að kalla í rafbíl-
unum. Við erum búnir að vera að
selja rafbíla núna í fimm ár, og á
þeim tíma höfum við einu sinni
þurft að skipta um öryggi í einum
bíl. Við höfum einfaldlega aldrei
þurft að fara með bíl í viðgerð,
sem kalla mætti svo. Stundum er
talað um að viðhaldskostnaður raf-
bíla sé þriðjungur af því sem ætla
má með hefðbundna bíla knúna
jarðefnaeldsneyti, en í raun hefur
sá kostnaður eiginlega ekki verið
neinn hjá bílum hjá okkur. Við-
haldskostnaður er nánast núll
enda þarf aldrei að fara í olíu-
skipti, aldrei að skipta um kerti,
viftureimar og hvaðeina. Þetta er
frá, alltsaman. Þessvegna segi ég
að rafmagnsbílar passa ekki í það
viðskiptamódel sem venjuleg bíla-
umboð eru byggð á. Fyrir þau er
svo ferlegt að flytja inn bílinn,
selja hann og sjá hann svo aldrei
aftur. Hann er bara farinn,“ segir
Gísli og kímir við.
Ný gerð af viðskiptamódeli
Framangreint er sumsé það við-
skiptamódel sem Gísli og félagar
hjá Even hafa verið að þróa og
byggja upp og þar er meiningin að
sérhæfa sig eingöngu í rafmagns-
bílum. „Við erum með 24 tíma
þjónustu, þú getur alltaf hringt í
okkur. Þegar þú ert búinn að
panta bílinn hjá okkur notum við
afhendingarfrestinn til að leysa
hleðslumálin fyrir þig og finnum
út hvar er best að koma þeim við,
með tilliti til þess hvernig húsnæði
þú býrð í og svo framvegis. Ef það
er vandkvæðum bundið að ganga
frá þeim málum í heimahúsi þá er-
um við þér innanhandar við um-
leitanir hjá vinnuveitanda varð-
andi að koma stöðinni fyrir í
vinnunni. Þetta er sýn okkar á það
hvernig rafbílar verða seldir í
framtíðinni.“
Gott ef framtíðin er ekki núna?
jonagnar@mbl.is
AFP
Eftirsóttur Tesla Model S er draumabíll margra í dag enda bæði glæsilegur, aflmikill og vel búinn. Þá
spillir ekki fyrir að eldsneytiseyðslan er akkúrat engin því hann er hundrað prósent rafknúinn.
Eftirvænting Þannig lítur jepplingurinn Tesla Model X út. Eintök af honum eru þegar farin að seljast hjá
Even þó hann verði ekki afhentur viðskiptavinum fyrr en að ári liðnu, í september 2015.
Allar tegundir af rafbílum
Félagar Gísli sést hér með Elon Musk, stofnanda og forstjóra Tesla Motors, í Bandaríkjunum.
AFP
Rafmagnaður Nýi rafbíllinn frá BMW vekur hvarvetna athygli enda mögnuð kerra.
Hann verður meðal annarra rafbíla fáanlegur hjá Even áður en langt um líður.
Sífellt fleiri bílnotendur
hérlendis ganga til liðs
við rafbílavæðinguna og
á síðustu vikum hefur
drjúgur kippur komið í
söluna sem gæti verið
til marks um það sem
koma skal, segir Gísli
Gíslason hjá Even. Hann
segir tíma gömlu bíla-
umboðanna liðinn.
„Málið, sem fáir fatta enn
sem komið er, er að það
eru í rauninni engin einka-
umboð fyrir bíla lengur,“
bendir Gísli á.