Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 34
34 | MORGUNBLAÐIÐ
HB-System
ABUS kranar í öll verk
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is
Stoðkranar Brúkranar
Sveiflukranar
B
ílasýningin í París er við-
burður sem ber upp á
annað hvert ár og dregur
til sín fleiri gesti en nokk-
ur önnur bílasýning í Evr-
ópu. Aðeins stóru sýningarnar í
Bandaríkjunum ná meiri aðsókn-
artölum. Eins og alltaf er mikið um
nýjungar á Parísarsýningunni en
einn flokkur bíla var þar þó meira
áberandi en aðrir, en það var flokkur
jepplinga. Fjöldi slíkra var frum-
sýndur, bæði í nýjum útfærslum,
andlitslyftingum, nú eða sem til-
raunabílar. Nægir þar að nefna
Honda HR-V, Land Rover Disco-
very Sport, Suzuki Vitara, Volvo
XC90, Fiat 500X og Kia Sorento sem
alveg nýja jeppa og jepplinga sem
frumsýndir voru á sýningunni. Einn-
ig bar talsvert á tilraunaútgáfum
bíla í þessum flokki eins og Ssan-
gYong XIV-Air, Toyota C-HR og
Peugeot Quartz, og nokkrir í viðbót
fengu veglega andlitslyftingu, eins
og Porsche Cayenne, Mitsubishi
Outlander PHEV og BMW X6.
Honda HR-V með töfrasæti
Honda HR-V var kynntur sem
frumgerð en sem slíkur er hann ansi
nálægt endanlegri gerð bílsins.
Reyndar verður um tvær útgáfur
hans að ræða, aðra fyrir Ameríku-
markað og hina fyrir Evrópu og þar
með talið Ísland. Í Evrópu verður
hann boðinn með tveimur gerðum
véla, 1,5 lítra bensínvél og 1,6 lítra
dísilvél. Báðar vélar fást með sex
gíra beinskiptingu til að byrja með.
Hann verður með sama sætabúnaði
og Honda Jazz en aftursætið kallast
Magic Seat og má leggja á ýmsa
vegu. Honda HR-V kemur á markað
í Evrópu næsta sumar svo að vænta
má að hann komi til Íslands haustið
2015.
Discovery Sport Evrópufrumsýndur
Land Rover frumkynnti nýjan
Discovery Sport í Mexíkó nýlega en
Evrópufrumsýning hans var að
sjálfsögðu í París. Þessi sjö sæta
jepplingur leysir Freelander af
Forsmekkurinn Peugeot Quartz er tilraunabíll sem gefur forsmekkinn af nýrri kynslóð Peugeot 3008.
Frumsýning Volvo XC90 vakti mikla athygli, ekki síst annarra bílaframleiðenda.
Ítalinn Fiat 500X jepplingurinn er byggður á sömu botnplötu og Jeep Renegade
og verður í boði með fjölda véla og skiptinga. Minnir talsvert á litla bróður!
Rennilegur Nýr Honda HR-V er ansi nálægt endanlegri gerð bílsins og er væntanlegur á markað næsta sumar.
Uppruninn Línurnar frá iV-4 tilraunabílnum skína hér rækilega í gegnum en nýr
Suzuki Vitara er hærri, breiðari en samt styttri en nýr S-Cross.
Jeppar og jepp-
lingar í fyrirrúmi
Bílasýningin í París 2014
Stóru bílasýningarnar teljast hafa nokkuð for-
spárgildi um markaðinn. Einn flokkur bíla var áber-
andi í París, en það var flokkur jepplinga.