Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Icetrack ehf. Sími 773 4334
netfang: mtdekk@mtdekk.is / www.mtdekk.is
MICKEY THOMPSON
jeppadekkin hafa sannað sig á Íslandi
M/T merkið er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur.
STZ MTZDEEGANATZp3
Stærðir 32” - 54”
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík • S: 581-4991 • rafstilling@rafstilling.is
Alternatorar og startarar
eru okkar mál
Viðgerðarþjónusta og sala
Þ
að var harðskeytt teymi
hönnuða og verkfræðinga
hjá skothylkjaframleið-
andanum Magpul í Colo-
rado-fylki Bandaríkjanna
sem stukku til þegar Buell var sent í
glatkistuna af Harley-Davidson árið
2009. Þeir keyptu 47 af mögnuðustu
hjólunum sem Buell framleiddi, 1125
línuna, og hófu framleiðslu byggða á
hjólunum sem átti eftir að skila af
sér mögnuðum gripum í afskaplega
takmörkuðu upplagi.
Vélin fékk að halda sér – enda
ekkert slor – en ytra byrðið var lag-
að til að ljá Ronin-hjólunum sér-
stæðan svip sinn. Óhætt mun að
segja að þessi hjól verði ekki tekin í
misgripum fyrir nein önnur mót-
orhjól. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum er svipurinn einstakur
að kalla, ekki síst gaffallinn.
Nafnið er dregið af frægri jap-
anskri þjóðsögu um 47 vígamenn úr
röðum samúræja, sem allir hefndu
meistara síns um síðir. Vel má
ímynda sér að sneið sé auk þess falin
þar til Harley-Davidson, fyrir að
ætla sér að senda hjólin inn í eilífð-
ina. jonagnar@mbl.is
Hjólið sem sneri aftur
Þegar Harley-Davidson-
samsteypan ákvað að
leggja Buell, eitt af
smærri merkjunum í
eigu risans, ákváðu
nokkrir að við svo búið
mætti ekki una. Úr varð
verkefni sem kallast
Ronin 47 – og jafnmörg
lygilega flott mótorhjól.
Einstakt Það er í hæsta máta ólíklegt að einhver taki eitt Ronin mótorhjólanna 47 í misgripum.