Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 39

Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 39
gáfu, tengiltvinnbíll, með bensínvél og rafmagnsmótorum. Þær eru hreint ótrúlegar eyðslutölurnar sem honum fylgja. Það er verið að tala um að eyðslan í plug-in bílnum fari alveg niður í 2,5 lítra á hundraðið, sem er einstök sparneytni fyrir svo stóran jeppa,“ segir Egill. Nýi Volvojeppinn er sagður verða með mestu lúxusinnréttingu Volvo til þessa. Í mælaborðinu verður 9,3 tommu snertiskjár er leysir alla takka þar af hólmi. Nái áætlanir Volvo fram að ganga verður XC90 einn öruggasti bíllinn á vegunum. Hann mun bjóða upp á „yfirgrips- mesta og tæknilega fullkomnasta ör- yggisbúnað sem völ er á í bílafram- leiðslu sem staðalbúnað,“ sagði í tilkynningu frá Volvo í sumar. Tæknibúnaði bílsins er ætlað að gera þá sýn Volvo að veruleika, að enginn bíði bana eða slasist alvar- lega í Volvobíl frá og með árinu 2020. Þar á meðal er búnaður til að vernda ferðalanga fyrir útafakstri og sjálf- virk gatnamótabremsa sem afstýrir eða dregur mjög úr tjóni í árekstri á gatnamótum; hvort tveggja nýj- ungar í bílsmíði. Þriðja umboðið sem Brimborg fer með er fyrir japanska bílsmiðinn Mazda sem verið hefur að senda frá sér velheppnaða bíla er hlotið hafa góða dóma. „Hjá Mazda er líka fullt af nýjungum. Fyrst nefni ég spenn- andi lítinn sportbíl, Mazda MX-5, þótt ekki sé stór markaður á Íslandi fyrir slíka. Þetta er frægur sportbíll, mest seldi sportbíll í heiminum. Annar bíll úr þessari átt sem líka sest vel er smábíllinn Mazda 2. Hann hefur hæfileikana til að eiga eftir að njóta ekki síðri vinsælda og Mazda CX-5, Mazda 6 og Mazda 3. Hann kemur líka alveg nýr frá grunni á næsta ári, og verður meðal annars búinn hinni skilvirku SkyActiv spa- raksturstækni. Hann verður fáan- legur með splunkunýrri lítilli dís- ilvél, SkyActiv-D 1.5, eða mismunandi útgáfum af SkyActiv-G 1.5 bensínvélinni,“ segir Egill.. Frá því fyrsta kynslóð Mazda 2 leit dagsins ljós árið 1996 hefur hann selst í um 2,5 milljónum eintaka. Bíllinn hefur verið lofaður fyrir end- ingartraust og akstursánægju, af- köst, sparneytni og öryggi. „Síðan er það Ford, sem er okkar stærsta bílamerki, og þar er rosa- lega mikið af nýjungum á ferðinni. Nýr Ford Focus, nýr Ford Mondeo – massasölubílarnir frá Ford – en þeir koma til okkar á fyrsta fjórð- ungi á næsta ári. Síðan er það Ford Edge, nýr jeppi í stærri kantinum en þó aðeins minni en Explorer. Hann er væntanlegur á götuna snemma á næsta ári en með honum stefnir Ford inn í lúxusgeira jeppamark- aðarins. Verður hann með marg- víslegan tæknibúnað, þ. á m. 10 tommu snertiskjá fyrir upplýs- ingakerfin, rúmgott fólksrými og allt að 1.788 lítra farangursrými. Edge verður fáanlegur bæði sem dísil- og bensínbíll. Síðast en ekki síst skal nefna nýja Mustanginn sem beðið hefur verið eftir með óþreyju, en hann kemur til okkar næsta vor. Af allri þessari upptalningu sést, að það eru tíð- indasöm misseri framundan hjá okk- ur með hverri frumsýningunni á fæt- ur annarri. Við verðum með öflugt og spennandi bílaval,“ segir Egill Jó- hannsson að lokum. agas@mbl.is Brimborgar AFP Athygliverður Nýr Ford Mondeo sér hér kynntur á bílasýningunni í París. Sívinsæll Ford Focus af 2015-árgerðinni er fulltrúi nýrrar og verulega uppfærðrar kynslóðar bílsins. Þá má vel greina hér bergmál af laglegum framendanum. Snaggaralegur Borgarbíllinn Mazda 2 er að koma á götuna í Japan og kemur til Íslands og Brimborgar snemma næsta árs. Mazda-fólk getur byrjað að telja niður. MORGUNBLAÐIÐ | 39 Vega- og framkvæmda- merkingar Síðumúla 28 108 Reykjavík Sími 510 5100 www.ismar.is Við mælum með því besta Bílskúrshurðir fyrir íslenskar aðstæður Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is Héðinshurðir eru glæsilegar og endingargóðar bílskúrshurðir sem hafa sannað sig í rysjóttu íslensku veðurfari. Gerðar úr galvanhúðuðu stáli með þykkri einangrun, þola mikið vindálag og kulda. Fyrsta flokks viðhalds- og varahlutaþjónusta. Ítarlegar leiðbeiningar um uppsetningu fylgja. satínáferð og rekur uppruna sinn til Hondu XL. Hjólið fæst sérpantað og í framhald- inu sérsmíðað – og hver ætlar að halda því fram að það sé ekki þess virði? Hvað sem það kostar? jonagnar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.