Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21 EKKERT VESEN AVIS bílaleiga sími 591 4000 – avis.is Losnaðu við vesenið með langtímaleigu AVIS Vetrarleiga er 8 mánuðir. Í vetrarleigu er bíllinn tekinn á leigu að hausti og skilað inn á vorin. Hún er sérstaklega hentug fyrir vetrartengda starfsemi, skólafólk eða jafnvel þá sem einfaldlega kjósa heilsusamlegri lífsstíl á sumrin. Vetrarleiga er einungis í boði í september og október á hverju ári og eru 1.650 km á mánuði innifaldir. HÚSAVÍK AKUREYRI SAUÐÁRKRÓKUR ÍSAFJÖRÐUR REYKJAVÍKKEFLAVÍK HÖFN EGILSSTAÐIR Á R N A S Y N IR VETRARLEIGA VERÐ FRÁ 48.900 KR. ÁMÁNUÐI M argir lesenda kannast ef- laust við að hafa séð á sínum yngri árum senur úr bandarískum kvik- myndum þar sem börn léku sér á smábílum. Í kvikmyndunum voru þetta iðulega börn auðmanna og bíl- arnir sérsmíðuð og rándýr leiktæki sem millistéttarbörn á Íslandi gátu bara látið sig dreyma um. En nú er öldin önnur og leik- fangaframleiðendur dæla út á mark- aðinn jafnt dýrum sem ódýrum smábílum fyrir börnin. Ferrari handa heimasætunni Hvernig væri til dæmis að leyfa drengnum eða stúlkunni á heimilinu að eiga sinn eigin Ferrari? Þó að pabbi og mamma hafi bara efni á að taka strætó er ekkert sem segir að megi ekki nurla saman fyrir raf- magns-Ferrari í barnastærð. Log- andi rauður Ferrari California eins og sá sem sést hér til hliðar kostar 600 dali í netverslun Toys “R“ Us. Sumum þætti þó líkast til meira spennandi slökkvibíllinn á meðfylgj- andi mynd. Þar er pláss fyrir tvö börn og auðvelt að lifa sig inn í hlut- verkaleikinn þegar sírenurnar og blikkljósin fara af stað. Eins og með aðra rafmagnsbíla fyrir börn er há- markshraðanum stillt mjög í hóf og geta litlir slökkviliðsmenn ekki bjargað deginum hraðar en á 8 km/ klst. Bíllinn kostar 480 dali hjá Toys “R“ Us í Bandaríkjunum. Fótadrifin fegurð Ekki þurfa leikfangabílarnir að vera með mótor til að vera skemmtilegir. Þessi sérlega snotri fótadrifni bíll frá Playsam hentar börnum frá eins árs aldri og er góð leið til að leyfa erfingjanum að spreyta sig ögn á akstri. Hönnunin er mjög stílhrein og nett og er hér á ferð eitt af þess- um fágætu leikföngum sem bara fegra stofuna ef krakkarnir van- rækja að taka til eftir leikinn. Falleg hönnunin kostar sitt og er bíllinn verðlagður á 1.450 dali hjá versluninni www.monpetitbijou- .com. Drossía með bensínvél Ef barnið var síðan að erfa fúlgur fjár frá fjarskyldum ættingja í Am- eríku þá hreinlega verður að hafa samband hið bráðasta við Pocket Classics (www.pocketclassics.co.uk). Þar eru enn þann dag í dag smíð- aðar eftirmyndir í barnastærð af þekktum bílum, með bensínmótor og öllu tilheyrandi. Nostra bílasmið- irnir við hvert smáatriði og eru bíl- arnir t.d. með vandaða fjöðrun og diskabremsur. Undir húddinu er 110 rúmsentimetra vél sem getur skilað allt að 74 km hraða, svo varla er hægt að tala um bílinn sem barnaleikfang. Er algengt verð á bílunum frá Pocket Classics í kringum 12.000 til 15.000 pund, eða allt að 2,9 milljónir króna. ai@mbl.is Sjálfrennireiðar fyrir smáfólkið Ljósmynd / Wikipedia - Badgerracing (CC) mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.