Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ Smiðjuvegur 2, 200 Kópavogur www.bifreidaverkstaedi.is s. 587 1350 TOYOTA ÞJÓNUSTA ALLAR ALMENNAR BÍLAVIÐGERÐIR Nýtt á Bifreiðaverkstæði Kópavogs, HJÓLASTILLINGAR L eifur er fæddur 1928 og lærði bifvélavirkjun hjá Hrafni Jónssyni sem var með verkstæði í Braut- arholti og nokkuð fyr- irferðarmikill í bransanum á sínum tíma. Hann kom svo til starfa í Kistufelli stuttu eftir stofnun þess árið 1952 og hefur verið þar allar götur síðan. Hann er víkingur til verka og vinnur hvern einasta dag. Rennir sveifarása og borar út blokkir frá morgni til miðaftans. Verk sem krefjast ekki bara nákvæmni heldur og þolinmæði manns sem unir sér ekki nema hafa næg verkefni á sinni könnu. Leifur hefur á langri starfsævi upplifað miklar breytingar í fagi sínu og verkstæðisumhverfi. Í hon- um kristallast saga bifvélavirkjunar í nær sjötíu ár. Þótt það geti verið lýjandi vinna kveinkar Leifur sér ekki og er einstaklega ern. Og var eiginlega fyrri til er blaðamaður hugðist bera upp erindið og falast eftir samtali. „Hvað ertu að spek- úlera?“ spurði maðurinn sem spek- úlerað hefur líklega meira í míkró- millimetrum en flestir núlifandi Íslendingar. Margt breyst á langri ævi „Það eru 68 ár síðan ég byrjaði að læra,“ segir hann og tekur til orða eins og hann sé enn að læra. „Ég byrjaði 18 ára gamall, árið 1946 og tók sveinspróf 1950 hjá Hrafni Jónssyni,“ bætir hann við. – Bifvélavirkjun nú til dags er ólík því sem áður var? „Það hafa orðið svakalega miklar breytingar, já. Núna eru til vara- hlutir í allt, litlir sem stórir á lager og menn skipta bara um ef svo ber undir. Áður þurfti maður að gera við þetta allt saman á alla kanta, en nú er bara skipt um stykkin. Við urðum oft að smíða helling. Maður þurfti að passa hverja einustu ró og hvern einasta bolta. Það mátti engu týna því þeir voru ekki til á lager, allt var í höftum og háð innflutn- ingstakmörkunum. Bolta sem maður tók úr varð maður að passa sem sjáaldur augna sinna, það mátti helst slípa þá. Já, það var vont að fá bolta og ýmislegt smálegt í vélar og bíla. Nú er öldin önnur, varahlutir á hverju strái og viðgerðir því ekki tafsamar eins og áður; núna rennur allt liðlega í gegn. Aðstæður eru allt aðrar nú til dags, það er engu líkt. Vinnuað- staðan er til dæmis allt önnur. Nú liggur enginn undir bíl lengur, það er alveg úrelt fyrirbæri, heldur standa menn undir þeim í lyftum. Og viðgerðir snúast meira um að setja nýjan varahlut í stað bilaðs í stað þess að gera við. Hvergi nærri hættur – Starfsdagur þinn hjá vélaverk- stæðinu Kistufelli er orðinn langur? „Ég er búinn að vinna í rúmlega 62 ár í Kistufelli. Það er dágóður tími, já já, en það er gott að vinna meðan menn hafa kost á því eða hafa heilsu til.“ – En þú ert ekkert að slá af? „Nei, nei, það er ekki kominn ald- ur á mig, ég er bara 86 ára,“ svarar hann sposkur. – Og hvenær kemur þú á ald- urinn? er spurt og grínaktugt svar- ið kom í einni svipan: „Hann er ekki fastákveðinn. Eig- um við ekki bara segja að ég hætti hundrað ára!“ Leifur kveðst aðallega hafa verið í því að bora blokkir og slípa sveif- arása. Svo segist hann setja eitt- hvað saman af vélum gefist tími til. Hann vinnur þjóðþrifaverk því fremur láta menn Leif slípa fyrir sig sveifarás fyrir 40-50 þúsund krónur og fá hann jafngóðan og nýjan, sem innfluttur kostar um hálfa milljón. Eins og nærri má geta hefur Leifur Eiríksson á starfstíma sínum útskrifað margan meistarann í bif- vélavirkjun. Og samferðamenn hafa komið og farið á árunum 62 því nú- verandi stjórnendur fyrirtækisins eru af þriðju kynslóð eigenda þess. Og fulltrúi þeirrar fjórðu birtist í fyrirtækinu sl. sumar. „Það er örugglega afar óvenju- legt að menn starfi með fjórðu kyn- slóð eigenda fyrirtækis en Leifur afrekaði það í sumar þegar dóttir mín vann á verkstæðinu,“ segir Guðmundur Ingi Skúlason, fram- kvæmdastjóri Kistufells. „Hann stendur fyrir sínu, er afar samviskusamur og lætur ekkert drabbast. Tvær vélanna þriggja sem hann vinnur á eru til dæmis 40- 50 ára og væru ekki í svo fínu standi nema vegna þess hversu vel hann hirðir um þær,“ segir Guð- mundur Ingi. „Hann er ótrúlega frískur af 86 ára manni að vera og eldist hægt. Vandvirknin með eindæmum og ná- kvæmnin líka. Allt gengur upp hjá honum. Ég er eiginlega mjög hissa hvað hann skilar góðu verki kominn á þennan aldur. Hann á mörg góð ár eftir hjá fyrirtækinu, það vona ég. Hann hefur það til siðs að spyrja mig á haustin hvort ég muni þola hann eitt ár í viðbót. Því er fljótsvarað, alltaf.“ agas@mbl.is Í nákvæmnisvinnu á níræðisaldri Hann heitir því flotta nafni Leifur Eiríksson og er fæddur 1928. Hann hefur lengi staðið vaktina á verkstæðisgólfi vélaverkstæðisins Kistu- fells og telur tíma ekki vera á sig kominn þótt 86 ára sé. Þar vinnur hann alla daga verk sem krefjast einstakrar nákvæmni þar sem ekki má skeika einum hundraðasta úr millimetra. Og það fer hann létt með, að sögn Guðmundar Inga Skúlasonar framkvæmdastjóra. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tímarnir Það hafa orðið svakalega miklar breytingar, já. Núna eru til varahlutir í allt, litlir sem stórir á lager og menn skipta bara um ef svo ber undir. Áður þurfti maður að gera við þetta allt saman á alla kanta, en nú er bara skipt um stykkin. Við urðum oft að smíða helling,“ segir Leifur Eiríksson bifvélavirki hjá Kistufelli. Vandvirkni Leifur vinnur þjóðþrifaverk því fremur láta menn Leif slípa fyrir sig sveifarás fyrir 40-50 þúsund krónur, sem innfluttur kostar um hálfa milljón. „Það eru 68 ár síðan ég byrjaði að læra,“ segir hann og tekur til orða eins og hann sé enn að læra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.